Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.11.2022, Blaðsíða 15
1527.11.2022 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR
tíðarinnar eigi eftir að fara fögrum orðum um
hlutverk hans í stríðinu.“
– Hvernig sérðu stríðið þróast á komandi
vikum og mánuðum?
„Erfiður vetur bíður okkar. Ljósin eru
slökkt, enginn hiti, undir sprengjuárásum.
En ég trúi á sigur okkar. Þá trú tuga milljóna
Úkraínumanna verður erfitt að berja niður.
Ekkert afl, ekkert vopn, getur drepið anda
okkar og þrá til að byggja upp frjálst og
velmegandi land.“
Veltur á trausti fólksins
Velta má fyrir sér hvort framganga
Selenskís í embætti á undanförnum mánuð-
um komi til með að verða óhefðbundnum
stjórnmálamönnum innblástur. Mönnum sem
annars væru jafnvel ekki að íhuga að gefa
kost á sér til pólitískra starfa. Rudenko hefur
svo sem ekki sterka skoðun á því. „Forsetar
eru þjóðkjörnir. Þegar fólk, hvort sem það er
hér í Úkraínu eða annars staðar í heiminum,
segir rangan mann hafa orðið fyrir valinu þá
svara ég: Áfrýið til fólksins. Treysti fólkið
óhefðbundnum stjórnmálamönnum, þá er það
bara þannig.“
Spurður um framtíð Selenskís og
úkraínsku þjóðarinnar svarar Ruden-
ko: „Eftir sigurinn á Rússum tekur við
áratugur enduruppbyggingar í ríkinu. Von
mín er sú að Selenskí, og aðrir úkraínskir
stjórnmálamenn, hafi visku til að haga sér
með réttum hætti eftir sigurinn. Ég á við
að verja lýðræðið, vinna bug á spillingu
og byggja upp nýja Úkraínu. Bregðist þeir
skyldum sínum þá munum við kjósa nýjan
forseta. Því, eins og ég segi, þá höfum við
barist og erum að berjast fyrir frelsi okkar
og sjálfstæði.“
Í beinni á meðan sprengjum rigndi
Tal okkar berst að lokum að persónulegum
högum Rudenkos. Hann bjó í Kænugarði en
þegar stríðið braust út flutti hann ásamt
sjónvarpsstöðinni sem hann vinnur fyrir
til Lviv í vesturhluta landsins. Þar sem
stöðin var til húsa í höfuðborginni er núna
sprengjuskýli. „Ég hef búið á hótelum í níu
mánuði en eldflaugar Rússa ber einnig niður
í Lviv; slökkt er á rafmagni og enginn hiti.
Við förum stundum í loftið úr sprengju-
skýli. Ég var til dæmis í beinni útsendingu
á mánudaginn var þegar Rússar sendu 100
eldflaugar á Úkraínu. Það var eftirminnilegt,
verð ég að segja. En ég trúi á sigur okkar og
Volodimír Selenskí,
forseti Úkraínu, hefur
blásið þjóð sinni bar-
áttuþrek í brjóst.
AFP
Rishi Sunak, forsætisráðherra
Breta, heimsótti Selenskí í Kænu-
garði nýlega og skoðaði aðstæður.
AFP