Due to maintenance work, there may be disruptions to the Tímarit.is service from 18:00 onwards.

Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.11.2022, Qupperneq 20

Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.11.2022, Qupperneq 20
20 HÖNNUN MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27.11.2022 Hátúni 6a, 105 Reykjavík | Sími 822 1574 | hotelrekstur.is Komdu og skoðaðu úrvalið í glæsilegri verslun Það skiptir máli hvað er næst húðinni og viðheldur raka hennar HÓTELREKSTUR OG HEIMILI Morgunblaðið/Ásdís Auður Gná hefur tekið þátt í að breyta áhersl- um Rammagerðarinnar. Vettvangur hönnuða Allir Íslendingar þekkja Rammagerðina og muna margir eftir að hafa staðið sem börn fyrir framan glugga versl- unarinnar á aðventunni og horft agndofa á jólasveinana. Áður fyrr voru þar aðallega til sölu klassískar íslenskar prjónaflíkur, handverk og fjöldaframleiddar vörur sem ferða- menn gætu verið ginnkeyptir fyrir. En nú er öldin önnur því Ramma- gerðin er orðin að búð sem selur það besta sem íslensk hönnun hefur upp á að bjóða, en það hefur þó ekki fælt ferðamenn frá, nema síður sé. Inn í nútímann Blaðamaður lagði leið sína í Hörpu þar sem Rammagerðin er á 300 fermetra plássi og er búðin smekklega hönnuð inn í rýmið. Verslunin í Hörpu á einmitt eins árs afmæli um helgina og haldið verður upp á það með ýmsum uppákom- um. Hönnuðir verða á staðnum á laugardag og haldið verður happ- drætti. Auður Gná Ingvarsdóttir hóf störf hjá Rammagerðinni sem listrænn stjórnandi fyrir um þremur árum og var þá hugmyndafræðin endur- hugsuð. „Rammagerðin var stofnuð 1940 og við grínumst með það að hún sé eldri en lýðveldið sjálft, sem er dálítið magnað. Hún byrjaði sem rammagerð þar sem allir helstu listamenn borgarinnar létu ramma inn sín verk, eins og Kjarval. Seinna var farið að selja handverk og vatt það svo upp á sig. Svo muna auð- vitað allir eftir jólasveinunum sem voru settir upp löngu fyrir jól til að minna fólk á að kaupa gjafir handa ættingjum erlendis vel í tíma, þannig að margir eiga minningar héðan,“ segir Auður og segir að eigendurnir, Bjarney Harðardóttir og Helgi Rúnar Óskarsson, hafi viljað breyta áherslunum eftir að þau keyptu Rammagerðina fyrir rúmum áratug. „Þau byrjuðu aðeins að pæla í hvernig væri hægt að þróa verslun- ina og svo þegar covid kom vannst tími til að vinna að þróun og ég kom inn í verkefnið. Ég fór þá að tala við fólk í hönnunarsamfélaginu með það í huga að sjá hvaða vörur væri hægt að taka í sölu og hvað við gætum sjálf farið að búa til,“ segir Auður og nefnir að allar vörur séu tengdar íslenskum hönnuðum eða framleiðendum á einn eða annan hátt. „Búðir Rammagerðarinnar hafa breyst mikið undanfarið og nýjar búðir bæst við, hér í Hörpu og í Kringlu. Það er búið að færa Rammagerðina meira inn í nútím- ann og það er upplifun að koma inn í búðirnar okkar, en þessi búð hér í Hörpu er ennþá best geymda leyndarmál borgarinnar.“ Fólk í fjársjóðsleit Auður segir að áherslan í dag sé mest á hönnun, en íslenski lopinn fær þó enn að njóta sín. „Handverkið er sagan og það kemur ekki til með að hverfa og við verðum alltaf með handprjónaðar lopapeysur. Við erummeð tugi kvenna sem prjóna fyrir okkur,“ segir hún og segir þau einnig selja prjóna- vörur sem búnar séu til í prjónaverk- smiðjunni Glófa, en Rammagerðin festi kaup á fyrirtækinu nýlega. Fjölmargir íslenskir hönnuðir hafa fengið tækifæri til að þróa og hanna vörur fyrir Rammagerðina, en Auður segir flesta hönnuðina vera konur. „Þetta er mikil kvennastétt, sér- staklega á Íslandi,“ segir Auður og telur að Rammagerðin sé lyftistöng fyrir íslenska hönnun. „Íslenskir hönnuðir hafa aldrei áður haft álíka söluvettvang fyrir sínar vörur. Hingað streyma inn kaupendur sem hafa áhuga, bæði Íslendingar og erlendir ferðamenn. Vörurnar hér eru á heimsmæli- kvarða,“ segir Auður og segir ferða- menn þó helstu viðskiptavinina. „Erlendir ferðamenn hafa verið næstum 90% af kaupend- um Rammagerðarinnar en okkar hugmynd er að breyta því. Við viljum að Íslendingar byrji að hugsa um íslenska hönnun sem fyrsta kost þegar kemur að því að kaupa gjafavöru eða ef fólk er að leita að einhverju fallegu fyrir sjálft sig. Það er líka svo magnað hvað við eigum mikið af góðum hönnuðum og við leggjum mikla áherslu á að velja það besta í íslenskri hönnun og setja þær vörur á stall með því að leggja mikinn metnað í búðirnar sjálfar og útlit þeirra,“ segir hún. „En talandi um ferðamenn, þá hafa þeir margir ótrúlegan áhuga á hönnun og eru að reyna að þefa uppi eitthvað alveg einstakt; hluti sem finnast ekki í heimalandi þeirra. Það er ótrúlegt hvað fólk er tilbúið að taka heim með sér í handfarangri. Hér er fólk í smá fjársjóðsleit,“ segir Auður. „Við vitum líka að það þarf að vera hægt að bjóða upp á vörur sem fólk á ferðalagi um Ísland vill kaupa til að gefa þegar komið er heim. Það er búin að vera skemmtileg áskorun að þróa þannig vörulínur og við fengum í lið með okkur mjög færan hönnuð til að útfæra vörulínu sem tengist Reykjavík og hún hefur algjörlega slegið í gegn, bæði hjá Íslendingum og ferðamönnum, sem er auðvitað mjög ánægjulegt að sjá og við hyggjumst halda áfram á þessari braut.“ Við römmum ekki inn En hér eru engir rammar lengur? „Nei, við römmum ekki inn,“ segir Auður og brosir. „Það er einmitt setning í einni af okkar leiknu auglýsingum: „Við römmum ekki inn.“ Það var mjög fyndið að ég hringdi í söngkonuna Bríeti til að biðja hana að sitja fyrir í einni af okkar peysum fyrir auglýsingu. Ég hélt langa ræðu um breytta ásýnd búðarinnar og að við vildum höfða til yngra fólksins líka. Það kom bara þögn í símann og ég hélt að henni litist ekkert á þetta. Svo kom bara spurningin: „En eruð þið þá ekki að ramma inn?“,“ segir Auður og hlær og segir í framhaldi að það sé mikið verk óunnið að endurkynna Rammagerðina fyrir yngra fólki. Hún segir ekki standa til að breyta nafninu, þó rammarnir séu hvergi sjáanlegir, enda er nafnið rammíslenskt og gott. „Ferðamenn vilja eitthvað sem er ekta. Þeir vilja ekki eitthvað sem er sérsniðið fyrir ferðamenn heldur vilja frekar versla þar sem við verslum, alveg eins og við viljum gera þegar við erum í útlöndum.“ Rammagerðin hefur tekið miklum breytingum undanfarið. Auður Gná Ingvarsdóttir er listrænn stjórnandi versl- unarinnar sem með breyttum áherslum er nú orðin vettvangur íslenskra hönnuða. Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is Rammagerðin í Hörpu er best geymda leyndarmál borgarinnar. Íslenkar hönnunarvörur er í fyrirrúmi í Rammagerðinni.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.