Due to maintenance work, there may be disruptions to the Tímarit.is service from 18:00 onwards.

Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.11.2022, Side 29

Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.11.2022, Side 29
2927.11.2022 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR Alltaf tekið réttar ákvarðanir Ljósmynd/Markus Felix Englaristirinn er ekkert blávatn. STOLT „Ég sé ekki eftir neinu; hef alltaf tekið réttar ákvarðanir á hverjum tíma,“ segir Thomas „Englaristir“ Such, forsprakki Sodom, í samtali við málmgagnið Blabbermouth en þýska þrass- bandið heldur upp á fertugsaf- mæli sitt um þessar mundir með safnútgáfunni 40 Years At War – The Greatest Hell Of Sodom. Sodom hefur alla tíð feykt flösu í skugga Kreators og Destruction en á samt sína dyggu fylgjendur. BÓKSALA 16.-22. NÓBEMBER Listinn er tekinn saman af Eymundsson 1 Játning Ólafur Jóhann Ólafsson 2 Reykjavík glæpasaga Ragnar Jónasson/Katrín Jakobsdóttir 3 Kyrrþey Arnaldur Indriðason 4 Eden Auður Ava Ólafsdóttir 5 Var, er og verður Birna Ingibjörg Hjartardóttir 6 Amma glæpon enn á ferð David Walliams 7 Húðbókin Lára G. Sigurðard./Sólveig Eiríksd. 8 Á sporbaug – nýyrði Jónasar Hallgrímssonar Anna S.Þráinsd./Elín E.Einarsd. 9 The 13 yule lads of Iceland Brian Pilkington 10 Gættu þinna handa Yrsa Sigurðardóttir 1 Amma glæpon enn á ferð David Walliams 2 Salka Tímaflakkið Bjarni Fritzson 3 Lára fer í útilegu Birgitta Haukdal 4 Orri óstöðvandi: Draumur Möggu Messi Bjarni Fritzson 5 Vala víkingur og hefnd Loka Kristján Már Gunnarsson/Sól Hilmarsdóttir 6 Hundmann og Kattmann Dav Pilkey 7 Bannað að ljúga Gunnar Helgason 8 Hrekkjavaka með Láru Birgitta Haukdal 9 Snjókorn falla Laddi Laddi 10 Fagurt galaði fuglinn sá Helgi Jónsson/Anna Margrét Marinósdóttir Allar bækur Barnabækur Bækur skipa mjög áhugaverð- an sess innan veggja heimila landsins. Og kannski eru bækur heimila eins og fingraför okkar mannanna. Engin tvö heimili eru eins. Hjá minni fjölskyldu sitja þær þétt saman og er að finna í flestum herbergjum. Það er hugsað vel um þær, þeim er úthlutað hinu bestu svæði gegn því að þær beri sig vel. Réttilega eiga þær heimtingu á að verða flett og líklegast vilja flestar fá athygli spjaldanna á milli. Og með hljóðlátum hætti hafa margar náð sínum kröfum fram en eftir sitja of margar öskrandi á athygli. Þeirra bíður betri tíð, vonandi. Þær er ná að fanga athygli mína koma flestar með í svefnherbergið. Oftast tvær eða þrjár saman. Um það ríkir gott samkomulag á heimilinu. Síðustu ár hafa Lærdómsrit Bókmennafélagsins átt að minnsta kosti einn fulltrúa í þeirri samkomu. Sú sem nýtur sín hvað mest þessa dagana er rit þýska heim- spekingins og guðfræðings- ins Friedrich Schleiermacher, Um trúarbrögðin. Einstakt konfekt í þýðingu Jóns Árna Jónssonar. Það kom því góða riti í opna skjöldu þegar ég gerðist svo djarfur að koma áhugaverðri kilju á milli okkar. Sú glæsilega kilja er Kommúnisminn – Sögu- legt ágrip eftir Richard Pipes í þýðingu Jakobs F.Ásgeirssonar og Margrétar Gunnarsdóttur. Á meðan þessar bækur ná að fanga mig í svefnherberginu, hvor með sínum hætti, þá eru aðrar tvær sem kitla mig utan þeirra veggja.Á mjög aðgengi- legum stað sitja innbundnar örsögur Daníil Kharms, Gaml- ar konur detta út um glugga, í frábærri þýðingu Áslaugar Agnarsdóttur og Óskars Árna Óskarssonar. Þessi bók er mjög ávanabindandi enda nærandi með orkuskot á hverri blaðsíðu. Að lokum má ég til með að deila leyndarmáli. Ég hef verið að stelast til þess að lesa fyrir annan af mínum frábæru unglingsdrengj- um. Sú bók segir frá ævintýrum félaganna í Hund- raðmetraskógi og ber heitið Bangsímon eftir Alan Alexand- er Milne og í einstakri þýðingu Guðmundar AndraThorssonar. Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem þessi bók er lesin en rétt eins og lesendur hennar vita þá er hún síbreytileg og vekur alltaf hlátur og hug- renningar hjá hverju aldursstigi. GUNNAR SIGURÐARSON ER AÐ LESA Eins og fingraför okkar mannanna Gunnar Sig- urðarson er viðskiptastjóri hjá Samtökum iðnaðarins. Kaja organic, Kalmansvellir 3, kajaorganic.com, kajaorganic@gmail.com Veldu lífræna hollustu LKL, vegan, gluteinlaust glugga og einn réttarrannsakend- anna segir: „Þetta er gluggi!“ Þá finnur einhver þriðja líkið og annar sérfræðingur mælir: „Þá eru komin þrjú lík!“ The Guardian sér ekki ástæðu til að eyða dálksentimetrum í frammistöðu leikaranna en Molly Windsor fer með hlutverk Emmu Hedges. Af öðrum leikurum má nefna Lauru Fraser og Martin Compston sem í eina tíð vann fyrir sér sem knattspyrnumaður. Lék heila tvo leiki fyrir Greenock Morton veturinn 2001-02, þegar liðið féll í þriðju deild í Skotlandi. Fljótlega eftir það sneri hann sér af fullum þunga að leiklistinni. Þess má geta að önnur sería af Traces hefur litið dagsins ljós og mun án efa skila sér hingað með hægðinni. Molly Windsor, sem leikur Emmu Hedges, er 25 ára gömul og þekktust fyrir leik sinn í sjónvarps- þáttunum Three Girls árið 2017 en fyrir framgöngu sína þar hlaut hún BAFTA-verðlaunin. Lauren Lyle, sem leikur Karen Pirie, er 29 ára gömul og margir kannast líklega best við hana úr sjónvarpsþáttunum Outlander. Hún stjórnar líka vinsælu hlaðvarpi, She's a Rec, þar sem hún ræðir við konur um konurnar sem hafa haft mest áhrif á líf þeirra. leikkonuna, Lauren Lyle, sem ljái Pirie sterkan tilgang. „Handritið og Lyle hræra saman ákveðni, sjálfsör- yggi og sjarma í fullkomnum hlutföll- ummeðan hún þræðir sig gegnum þetta gamla mál, pólitíkina í kringum það og ljónin sem tíminn leggur í veg hennar og einbeitta þrá morðingjans til að komast upp með ódæðið.“ Líta laumulega undan Traces fær ekki alveg jafn góða dóma hjá The Guardian, svo við höldum okkur við sanngjarnan samanburð, en blaðinu þykir flokk- urinn þó ekki alslæmur. Áður en lagt var í’ann hefði hann þó betur ákveðið hvort hann ætlaði sér að verða The Killing eða CSI þegar hann yrði stór. Stærsti kostur Traces, að áliti gagnrýnandans, er að hver sem er gæti hafa framið morðið. „Vegna þess að Traces er einn af þess- um þáttum þar sem hver einasti karakter venur sig á að svara spurningum með því að gera aðeins of langt hlé á máli sínu, líta laumu- lega undan og skipta að lokum vandræðalega um umræðuefni.“ Blaðinu þykir Traces þó gera nóg til að viðhalda forvitni áhorfandans og lóðsa hann milli þátta. Fullmikið sé þó stafað ofan í okkur. „Í fyrsta þætti sjáum við herbergi sem orðið hefur eldi að bráð. Myndavélin er á AFP/Valerie Hache Enska leikkonan Molly Windsor leikur aðalhlutverkið í Traces. Ekki fylgir sögunni hvort hún sé skyld Karli III kóngi og öllu því ágæta fólki. Vinsæll krimmahöfundur Val McDermid fæddist í Kirkcaldy í Fife í Skotlandi árið 1955. Hún er af verkafólki og varð á sínum tíma fyrsti nemandinn úr skoskum ríkisskóla til að fá inngöngu í St Hilda's College í Oxford, þar sem hún nam ensku.Að útskrift lokinni gerðist McDermid blaðamaður en vakti fyrst athygli sem glæpasagnahöfundur með bókinni Report for Murder:The First Lindsay Gordon Mystery árið 1987. Meðal karaktera sem hún hefur skapað eru blaðamaðurinn Lindsay Gordon, einkaspæjar- inn Kate Brannigan, klíníski sál- fræðingurinn Tony Hill og okkar ko rannsóknarlögreglumaðurinn Kare Pirie. McDermid hefur hlotið fjölda viðurkenninga fyrir skrif sín. na, n Rithöfundurinn Val McDermid.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.