Tímarit rafvirkja - 01.12.1953, Blaðsíða 11

Tímarit rafvirkja - 01.12.1953, Blaðsíða 11
NÝR ÞÁTTUR ÍSLENZKS IÐNAÐAR: VerksmiSja, er framleiðir rafhreyfla, tekur til starfa Fyrir nokkru hvisaðist að hafin væri undirbún- ingur að stofnun verksmiðju hér í bæ, er fram- leiðir rafhreyfla. Vakti fregn þessi mikla athygli, þar sem hér er um nýjan iðnað að ræða. Að vísu mynnumst vér þess, að hafa séð á Iðnsýning- unni 1952 rafhreyfla, sem framleiddir voru á Ak- ureyri, en ekki minnumst vér þess að hafa séð framleiðslu þess fyrirtækis á markaði hér. Getum vér oss til, að þar hafi eingöngu verið um til- raunaframleiðslu að ræða. Athygli sú er frétt þessi vakti varð þó stórum meiri þegar upplýst var að a. m. k. tvær slíkar verksmiðjur myndu í uppsigl- ingu. Við eftirgennslan komst Tímaritið á snoðir um að Samband ísl. samvinnufélaga stæði að stofnun annarar verksmiðjunnar og myndi hún um það bil að hefja starfrækslu. I þessu tilefni snérum vér oss til hr. Stein- gríms Hermannssonar, rafmagnsverkfræðings, en hann hefur að hálfu S. í. S. annast undirbúning að þessari starfsemi, og veitti hann oss góðfús- lega eftirfarandi upplýsingar: Verksmiðjan: Verksmiðjan verður til húsa í byggingu Jötuns h.f. við Hringbraut, og fær þar til umráða rösk- lega 200 m2 húsnæði, sem er þannig fyrir komið að það má mjög auðveldlega stækka eftir því sem starfsemin eykst og þörf krefur. Verksmiðjuhúsnæðið er á einni hæð og skiptist niður í steypudeild, renni og véladeild, og vind- inga og samsetningardeild. í hverri deild er fyrir komið þeim vélum og tækjum, er hvert starf út- heimtir, voru nokkrar þeirra til hér í eigu S. I. S., en aðrar eru keyptar erlendis í sambandi við verksmiðjustofnunina. Að framleiðslunni munu fyrst í stað starfa 3 Þjóðverjar, einn málmsteypumaður, einn renni- smiður og einn vindingamaður, sem sérmenntaðir eru til þessara starfa, auk íslendinga, sem þeim er ætlað að þjálfa. í tengslum við verksmiðjuna mun svo Rafmagns- deild S. I. S. starfrækja viðgerðarverkstæði sem mun annast viðgerðir á allskonar rafmagnstækj- um, en þar munu eingöngu starfa íslenzkir raf- vélavirkjar. Framleiðslan. Fyrst í stað mun verksmiðjan binda framleiðslu sína við „kortslutnings“ hreyfla upp í 15 Hö. En síðar er áformað að framleiða einnig aðrar gerðir, svo og generatora fyrir sveitirnar. Hreyflarnir verða gerðir eftir þýzkum fyrir- myndum, og mót fengin frá þýzka firmanu Elektro- motoren Briiss & Co í Berlín, Briiss er reyndar einn hinna þriggja Þjóðverja sem S. I. S. hefur nú fengið í þjónustu sína við hina nýju verksmiðju. En hinir tveir voru áður samstarfsmenn hans í Berlín. Um framleiðslu hreyflanna er annars það að segja, að húsin verða steypt hér úr alaminíum, og mun verulegur hluti þess fást hér innan lands. Öxlar verða einnig skornir og renndir hér, en kjarnajárnið verður flutt inn tilskorið, svo og að sjálfsögðu vír og einangrun. Framleiðslugeta. — Gjaldeyrissparnaður. Gert er ráð fyrir að verksmiðjan muni fyrst í stað, með þeim mannafla sem rætt var um að framan, geta framleitt 400—500 hreyfla á ári, mið- að við algengustu gerðir. Verðlag mun verða full- komlega samkeppnisfært við lægsta verð á inn- fluttum hreyflum nú. Lauslegar áætlanir sem gerðar hafa verið sýna, að gjaldeyrissparnaður af því að framleiða hreyfl- ana hér, miðað við ef flytja þá inn fullgerða, verð- ur allt að 50%. Verksmiðjan mun taka 1 árs ábyrgð á þeim hreyflum er hún framleiðir. Rafnmagnsdeild S. I. S. mun sjá um sölu og dreyfingu framleiðslunnar og að sjálfsögðu selja TÍMARIT RAFVIRKJA 1 1

x

Tímarit rafvirkja

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit rafvirkja
https://timarit.is/publication/1766

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.