Fréttablaðið - 19.01.2023, Side 4
Það má búast við að
þetta veður valdi
áhrifum.
Teitur Arason,
veðurfræðingur
v
Til að taka þátt í leiknum þarft þú að
1) Finna PLAY flugvélina á flugi í Fréttablaðinu.
2) Segja okkur á hvaða blaðsíðu þú fannst
PLAY flugvélina og skrá það á
www.frettabladid.is/lifid/playleikur
Fréttablaðið og PLAY ætla að bjóða
heppnum lesanda Fréttablaðsins 100.000
króna gjafabréf frá PLAY í hverri viku fram
að 11. febrúar.
Finnur þú
á flugi í
Fréttablaðinu?
jonthor@frettabladid.is
Dómsmál Mennirnir sem grunaðir
eru í hryðjuverkamálinu, Ísidór Nat-
hansson og Sindri Snær Birgisson,
neituðu að hafa skipulagt hryðju-
verk við þingfestingu málsins í gær.
Þeir játuðu og neituðu ýmist
öðrum ákæruliðum sem varða
vopnalagabrot og þá játaði annar
þeirra fíkniefnalagabrot.
Dómari hefur til athugunar
að vísa þeim ákærum sem varða
hryðjuverk frá dómi. Sveinn Andri
Sveinsson hefur gagnrýnt að meint
hryðjuverk séu ótilgreind í ákæru.
Annar maðurinn er ákærður fyrir
tilraun til hryðjuverka og hinn fyrir
hlutdeild í þeim. „Það var verið að
taka afstöðu til ákærunnar en að
öðru leyti ákvað dómarinn að hafa
frumkvæði að því hvort það væri
eitthvað í ákærunni sem varðar frá-
vísun,“ sagði Sveinn Andri.
Spurður hvort umbjóðandi hans
aðhyllist öfgastefnur segir Sveinn
Andri hann alls ekki aðhyllast neitt
slíkt. n
Hryðjuverkamál
þingfest í gærdag
Ákærðu bæði neituðu og játuðu sök.
Veðurstofa Íslands býst við
asahláku á öllu landinu,
vatnselg og mikilli hálku.
Bráðamóttakan býst við
slysum vegna þess.
kristinnhaukur@frettabladid.is
veður Veðurstofa Íslands býst við
miklum vatnselg og slæmri færð
fyrir bíla og vegfarendur vegna
hálku á föstudag og inn í helgina.
Þá býst bráðamóttaka Landspítal-
ans við hálkuslysum en hún er illa
mönnuð til að sinna þeim.
Eftir óvenju langan frostakaf la
er mikill viðsnúningur í kortunum
og hlý sunnanátt á leiðinni. Hún ber
með sér talsverða rigningu sunnan-
og vestanlands, með hitatölum frá
5 upp í 9 stig samkvæmt spá Veður-
stofunnar. Norðan- og austanlands
má búast við sunnan-hnúkaþey og
hitinn gæti farið í 10 gráður eða
rúmlega það þar sem vindurinn
nær að blanda hlýja loftinu niður
á jörð.
„Það er spáð asahláku á öllu land-
inu og afleiðingarnar af því eru flug-
hálka,“ segir Teitur Arason veður-
fræðingur. „Það verður hált og mjög
erfið færð út af blautum klaka.“
Teitur segir að búast megi við
miklum vatnselg. Fólk þurfi því að
huga að því að vatn komist leiðar
sinnar í niðurföll, bæði rigningar-
vatn og vatn sem fellur til þegar
snjórinn bráðnar. En þrátt fyrir að
sveitarfélög vinni hörðum höndum
að því að fjarlægja snjó er enn þá
mikið magn snjós og klaka í þétt-
býlinu.
Til sveita er líka önnur hætta sem
skapast, af f lóðum. „Nokkuð víða á
landinu eru ár í klakaböndum. Það
er möguleiki á að þær ryðji sig og
þá verða staðbundin flóð þar sem
þær mynda klakastíf lur og f læða
yfir bakka,“ segir Teitur. Af þessu
Bein gætu brotnað og ár rutt sig
Það verður ekki auðvelt að fóta sig í blautri hálkunni. Fréttablaðið/Vilhelm
getur orðið tjón. „Það má búast við
að þetta veður valdi áhrifum. Óljóst
er þó hvernig þetta verður,“ segir
hann. Gul viðvörun hefur verið
gefin út vegna hvassviðris sunnan-
og vestanlands á föstudagsmorgun.
Asahlákuviðvörun er á öllu landinu
eftir það, en hún er sjaldan gefin út.
Hjördís Guðmundsdóttir, upp-
lýsingafulltrúi almannavarna,
segir að vel sé fylgst með stöðunni í
samstarfi við Veðurstofuna. Upplýs-
ingagjöf sé mikilvæg, einkum vegna
hættunnar á f lóðum. „Enginn veit
hvar það gerist. Það er vandamálið,“
segir Hjördís.
Bráðamóttaka Landspítalans býst
líka við erli um helgina vegna hálku.
„Við höfum séð þessa veðurspá og
höfum áhyggjur af því að margir
detti og slasi sig í hálkunni,“ segir
Hjalti Már Björnsson yfirlæknir.
Mönnunin er hins vegar dræm eins
og fjallað hefur verið um í fjölmiðl-
um. „Við hefðum viljað vera betur
undirbúin en að sjálfsögðu tökum
við á móti öllum eins og hægt er,“
segir Hjalti.
Í mikilli hálku kemur talsvert af
fólki með beinbrot, oft á úlnlið eða
fæti. Einnig er talsvert um höfuð-
áverka. „Sumt getur verið alvarlegt,“
segir Hjalti. Hvetur hann alla til að
nota mannbrodda og fara sérstak-
lega varlega í hálkunni sem fram
undan er. n
benediktarnar@frettabladid.is
samgöngur „Lokanir eru til gagns,
ef þeim er beitt rétt,“ sagði Harald
Teitsson, for maður Fé lags hóp ferða-
leyfis hafa og hóp bif reiða nefndar
Samtaka ferðaþjónustunnar, á fundi
Vegagerðarinnar í gær þar sem fyrir-
komulag vetraþjónustu og starfsemi
vaktstöðva Vegagerðarinnar voru til
umfjöllunar.
Þennan vetur hafa fjölmargar
vegalokanir hamlað starfsemi
ferðaþjónustunnar hér á landi. Vega-
gerðin hélt því fund ásamt aðilum
frá ferðaþjónustunni. Á fundinum
voru ræddar leiðir til þess að bæta
vetrarþjónustuna. Harald sagði á
fundinum að aðal málið væri að
mokstri yrði haldið á fram og að það
væri lág marks tími sem vegir væru
lokaðir. „Við þolum alveg nokkurra
klukku tíma stopp, ekkert vanda mál.
Við getum sniðið okkar ferðir að því.
En ef þetta er orðin lang tíma lokun
þá er þetta orðið erfiðara.“
Harald segir að Vega gerðin vinni
gott starf, en að upp lýsingar komi
stundum of seint. Hann segir að í
upp hafi dags sé nauð syn legt að fá
upp lýsingar um lokanir vega. Að
sögn Haralds þarf að horfa til fram-
tíðar þegar kemur að vetrarþjónust-
unni.
„Við þekkjum alveg vond veður.
Vanda málin eru að það er breytt
ferða mynstur og vega mann virki.
Við erum að gera þessa fínu vegi með
vegriðum og fullt af hring torgum, en
við gleymum kannski að hugsa: Æ,
æ, það kemur stundum snjór,“ segir
Harald. n
Ræddu leiðir til að bæta vetrarþjónustuna
Á fundi Vegagerðarinnar í gær voru
ræddar leiðir til að bæta vetrar-
þjónustuna. Fréttablaðið/auðunn
helenaros@frettabladid.is
Dómsmál Aðalmeðferð í stærsta
kókaínmáli Íslandssögunnar fer
fram í Héraðsdómi Reykjavíkur í
dag. Sakborningar málsins eru fjórir
en þeir eru ákærðir fyrir innflutning
á tæpum hundrað kílóum af kókaíni
auk peningaþvættis upp á samtals
tæpar 63 milljónir króna.
Lögreglan handtók mennina í
ágúst í fyrra og fór þingfesting máls-
ins fram í nóvember síðastliðnum.
Þar neituðu fjórmenningarnir ýmist
sök í málinu eða neituðu að taka
afstöðu til þess.
Saksóknari krafðist þess að
mennirnir fengju ekki að vera við-
staddir skýrslutöku hver annars við
aðalmeðferðina í dag en þeirri kröfu
var hafnað. n
Kókaínmálið
stóra fyrir dóm
4 fRéttiR FRÉTTABLAÐIÐ 19. jAnúAR 2023
fiMMtUDAGUR