Fréttablaðið - 19.01.2023, Side 29

Fréttablaðið - 19.01.2023, Side 29
Hið nýstárlega langvinsælast á rauða dreglinum Verðlaunahátíðir vestanhafs eru hafnar af fullum krafti. Kvikmyndastjörnurnar hafa nú komið saman í glæsilegum fötum hvaðanæva úr heimin- um og tók Fréttablaðið saman það sem mesta athygli hefur vakið á rauða dreglinum á hátíðum líkt og Golden Globes og Critics Choice Awards. odduraevar@frettabladid.is Rapparinn og plötusnúðurinn Anderson Paak hélt uppi stuðinu í eftir- partíinu á Golden Globes. Hann var glæsilegur í framúrstefnulegum rauðbrúnum jakka- fötum. Wednesday- stjarnan Jenna Ortega klæddist bleikbrúnum Gucci-kjól og segist hafa viljað klæðast einhverju öðru en dökku að þessu sinni. Julia Garner klæddist bleikum kjól frá Gucci með fallegum steinum. Leik- konan sló í gegn sem svikahrappurinn Anna Delvey í Netflix- seríunni Inventing Anna. Top Gun-leik- konan Monica Barbaro klæddist glæsilegum og klass- ískum flæðandi tjullkjól frá Dolce & Gabbana. Dakota Johnson mætti í fallegum kjól frá Gucci þar sem bakið vakti mestu athyglina. Ayo Edibiri, stjarn- an úr The Bear, vakti verðskuldaða athygli á Critics Choice Awards fyrir glæsilegan kjól úr hönnun Thom Browne þar sem jakkaföt og kjóll mætast á skemmti- legan hátt. Lily James vakti athygli í gegnsæjum kjól úr hönnun Oscar de la Renta á Critics Choice Awards. Anya Taylor- Joy mætti í gegn- sæjum kjól frá Dior Haute Couture á Critics Choice Awards, með 25 karata demant um háls- inn og á hælum frá Jimmy Choo. Emma D’Arcy og Millie Alcock vöktu bæði mikla athygli fyrir fataval sitt á Golden Glo- bes. Millie klæddist glæsi- legum kjól frá Givenchy á meðan D’Arcy klæddist stórum smóking frá Acne Studios. Fréttablaðið lífið 2519. janúar 2023 fiMMTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.