Fréttablaðið - 19.01.2023, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 19.01.2023, Blaðsíða 30
Maður á alltaf að búa til list fyrir vini sína og vona svo að annað fólk sé jafn óvandað. Tyrfingur Tyrfingsson, annar handritshöfunda hinnar íslensku bíómyndar Villi- bráðar, segist vera steinhissa á vinsældum myndarinnar. Hann segist fyrst og fremst hafa skrifað handritið fyrir vini sína og svo hafi komið í ljós að almenningur sé jafn óvandaður. odduraevar@frettabladid.is „Ég er alla vega mjög hissa,“ segir leikskáldið Tyrfingur Tyrfingsson um vinsældir kvikmyndarinnar Villibráðar sem Tyrfingur skrifar handritið að ásamt leikstjóranum Elsu Maríu Jakobsdóttur. „Þegar við tókum þetta að okkur ákváðum við Elsa að við myndum bara skrifa einhverja mynd um vini okkar fyrir vini okkar,“ segir Tyrf- ingur hlæjandi en þetta er í fyrsta sinn sem þau skrifa handrit að kvik- mynd í fullri lengd. „Svo bara kemur í ljós að almenn- ingur er bara jafn ómerkilegur og vinir okkar og alveg eins óvandað- ur,“ segir hann enn hlæjandi. „Fólk var mjög bjartsýnt, en ég var það eiginlega ekki. Ég hugsaði að þetta væri bara fyrir einhverja perverta og eitthvert skrítið lið.“ Villibráð gerist í matarboði í Vesturbænum þar sem sjö vinir fara í háskalegan samkvæmisleik sem gengur út á að allir leggja síma sína á borðið og samþykkja að öll skila- boð og símtöl sem þeim berast verði afgreidd upphátt og fyrir opnum tjöldum. Þannig geti þau öll sannað að þau hafi ekkert að fela. Myndin er byggð á dökkri ítalskri kómedíu, Perfetti sconosciuti, eða Fullkomlega ókunnugir, frá 2016. Myndin er mest endurgerða mynd sögunnar. Tyrfingur útskýrir að sér og Elsu hafi verið fengið fullkomið frelsi í hendurnar við handritsskrif- in, eini fastinn væri hinn umtalaði samkvæmisleikur. „Við Elsa vorum saman í MH og eigum mikið af sameiginlegum vinum og vorum svo bara eitthvað að slúðra og tala um fólk,“ segir Tyrfingur sem segir það hafa komið sér sérlega vel við handritsskrifin. Hann ber framleiðandanum Þóri Snæ Sigurjónssyni vel söguna, enda hafi þau Elsa fengið frjálsar hendur. „Svo vorum við mjög heppin með Önnu Maríu [Karlsdóttur] hjá kvik- myndasjóðnum. Hún las yfir fyrstu drög og sagði okkur að ganga enn lengra. Ég man að ég spurði hana hvort hún væri að grínast,“ segir Tyrfingur hlæjandi. Handritið hafi því orðið enn villt- ara. „Þetta varð enn meira lókal og eitthvert rugl og pródúsjónin fór algjörlega úr böndunum,“ segir Tyrfingur á léttu nótunum. „Þess vegna var ég bara: „Æi, þetta er nú meira ruglið. Jæja, maður á alla vega einhvern hittara í leikhúsinu,“ segir Tyrfingur og á þar við leikritið Sjö ævintýri um skömm í Þjóðleikhús- inu. „En svo bara kemur í ljós að fólk er ekkert eins vandað og maður heldur, maður á greinilega ekki að ofmeta almenning,“ segir handrits- höfundurinn í gríni. „Við göngum svo langt líka að við notum bara nöfn vina okkar. Stína Gunn, ég notaði nafnið hennar Grúnu bara af því að ég vildi fá ein- hver viðbrögð frá henni. Ég hafði áhyggjur af því að þau yrðu ógeðs- lega sár og reið en svo var þeim bara alveg sama. Þau bera enga virðingu fyrir þessu,“ segir Tyrfingur. Hann segist ekki síst hafa reynt að hugsa handritið mikið fyrir vinkonu sína. „Því hún hefur ekki gaman af neinu, horfir aldrei á bíó- myndir og hlustar ekki einu sinni á útvarp. Hún hlustar bara á Bubba Morthens en hefur ekki einu sinni gaman af því,“ segir Tyrfingur hlæj- andi. Hann segir markmiðið hafa náðst, Grúna hafi haft gaman af myndinni. „Eða hún segir það alla vega,“ segir Tyrfingur sem er himin- lifandi yfir viðbrögðunum. „Oft er verið að reyna að búa til eitthvað fyrir heimsmarkaðinn, sem gengur ekkert í listum. Maður á alltaf bara að búa til list fyrir vini sína og vona svo að annað fólk sé jafn óvandað og vinir manns.“ n Villtustu sögurnar byggðar á alvöru íslensku slúðri Tyrfingur leitaði í sögur af eigin vinum ásamt leikstjóranum Elsu Maríu Jakobsdóttur. Fréttablaðið/Sigtryggur ari Leikhópurinn er stjörnum prýddur og vel valinn leikari í hverju hlutverki. 26 lífið FRÉTTABLAÐIÐ 19. jAnúAR 2023 fiMMTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.