Fréttablaðið - 19.01.2023, Qupperneq 30
Maður á alltaf að búa
til list fyrir vini sína og
vona svo að annað fólk
sé jafn óvandað.
Tyrfingur Tyrfingsson, annar
handritshöfunda hinnar
íslensku bíómyndar Villi-
bráðar, segist vera steinhissa
á vinsældum myndarinnar.
Hann segist fyrst og fremst
hafa skrifað handritið fyrir
vini sína og svo hafi komið í
ljós að almenningur sé jafn
óvandaður.
odduraevar@frettabladid.is
„Ég er alla vega mjög hissa,“ segir
leikskáldið Tyrfingur Tyrfingsson
um vinsældir kvikmyndarinnar
Villibráðar sem Tyrfingur skrifar
handritið að ásamt leikstjóranum
Elsu Maríu Jakobsdóttur.
„Þegar við tókum þetta að okkur
ákváðum við Elsa að við myndum
bara skrifa einhverja mynd um vini
okkar fyrir vini okkar,“ segir Tyrf-
ingur hlæjandi en þetta er í fyrsta
sinn sem þau skrifa handrit að kvik-
mynd í fullri lengd.
„Svo bara kemur í ljós að almenn-
ingur er bara jafn ómerkilegur og
vinir okkar og alveg eins óvandað-
ur,“ segir hann enn hlæjandi. „Fólk
var mjög bjartsýnt, en ég var það
eiginlega ekki. Ég hugsaði að þetta
væri bara fyrir einhverja perverta
og eitthvert skrítið lið.“
Villibráð gerist í matarboði í
Vesturbænum þar sem sjö vinir fara
í háskalegan samkvæmisleik sem
gengur út á að allir leggja síma sína
á borðið og samþykkja að öll skila-
boð og símtöl sem þeim berast verði
afgreidd upphátt og fyrir opnum
tjöldum. Þannig geti þau öll sannað
að þau hafi ekkert að fela.
Myndin er byggð á dökkri ítalskri
kómedíu, Perfetti sconosciuti, eða
Fullkomlega ókunnugir, frá 2016.
Myndin er mest endurgerða mynd
sögunnar. Tyrfingur útskýrir að sér
og Elsu hafi verið fengið fullkomið
frelsi í hendurnar við handritsskrif-
in, eini fastinn væri hinn umtalaði
samkvæmisleikur.
„Við Elsa vorum saman í MH og
eigum mikið af sameiginlegum
vinum og vorum svo bara eitthvað
að slúðra og tala um fólk,“ segir
Tyrfingur sem segir það hafa komið
sér sérlega vel við handritsskrifin.
Hann ber framleiðandanum Þóri
Snæ Sigurjónssyni vel söguna, enda
hafi þau Elsa fengið frjálsar hendur.
„Svo vorum við mjög heppin með
Önnu Maríu [Karlsdóttur] hjá kvik-
myndasjóðnum. Hún las yfir fyrstu
drög og sagði okkur að ganga enn
lengra. Ég man að ég spurði hana
hvort hún væri að grínast,“ segir
Tyrfingur hlæjandi.
Handritið hafi því orðið enn villt-
ara. „Þetta varð enn meira lókal og
eitthvert rugl og pródúsjónin fór
algjörlega úr böndunum,“ segir
Tyrfingur á léttu nótunum. „Þess
vegna var ég bara: „Æi, þetta er nú
meira ruglið. Jæja, maður á alla vega
einhvern hittara í leikhúsinu,“ segir
Tyrfingur og á þar við leikritið Sjö
ævintýri um skömm í Þjóðleikhús-
inu.
„En svo bara kemur í ljós að fólk
er ekkert eins vandað og maður
heldur, maður á greinilega ekki að
ofmeta almenning,“ segir handrits-
höfundurinn í gríni.
„Við göngum svo langt líka að við
notum bara nöfn vina okkar. Stína
Gunn, ég notaði nafnið hennar
Grúnu bara af því að ég vildi fá ein-
hver viðbrögð frá henni. Ég hafði
áhyggjur af því að þau yrðu ógeðs-
lega sár og reið en svo var þeim bara
alveg sama. Þau bera enga virðingu
fyrir þessu,“ segir Tyrfingur.
Hann segist ekki síst hafa reynt
að hugsa handritið mikið fyrir
vinkonu sína. „Því hún hefur ekki
gaman af neinu, horfir aldrei á bíó-
myndir og hlustar ekki einu sinni á
útvarp. Hún hlustar bara á Bubba
Morthens en hefur ekki einu sinni
gaman af því,“ segir Tyrfingur hlæj-
andi.
Hann segir markmiðið hafa
náðst, Grúna hafi haft gaman af
myndinni. „Eða hún segir það alla
vega,“ segir Tyrfingur sem er himin-
lifandi yfir viðbrögðunum. „Oft er
verið að reyna að búa til eitthvað
fyrir heimsmarkaðinn, sem gengur
ekkert í listum. Maður á alltaf bara
að búa til list fyrir vini sína og vona
svo að annað fólk sé jafn óvandað og
vinir manns.“ n
Villtustu sögurnar byggðar
á alvöru íslensku slúðri
Tyrfingur leitaði í sögur af eigin vinum ásamt leikstjóranum Elsu Maríu Jakobsdóttur. Fréttablaðið/Sigtryggur ari
Leikhópurinn er stjörnum prýddur og vel valinn leikari í hverju hlutverki.
26 lífið FRÉTTABLAÐIÐ 19. jAnúAR 2023
fiMMTUDAGUR