Fréttablaðið - 19.01.2023, Page 16
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Jón Þórisson
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og um-
fjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Guðmundur Hilmarsson,
gummih@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.
is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is, s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir,
thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550
5652, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654,
Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103.
MgB
ISGLÝSÍN
A
T
300 mg
5 mg
75 mg
100 mg
200 mcg
B6 vítamín
Schisandra
Burnirót
B9 vítamín (fólinsýra)
Magnesíum bisglýsínat
Léttari lund,
alla daga
MAG-YOUR-MIND®
vinnur gegn streitu og
skerpir hugsun
Nettó, Fjarðarkaup, Hagkaup, Krónunni,
Lyf og heilsu og á goodroutine.is
fæst í Apótekaranum, GOOD ROUTINE®
K
AV
IT
A
Sylvía, töff að vanda. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Glæsileg kápa sem er jafnframt hlý og góð í vetrarkuldanum.
Oreo bangsi sem er hannaður
þannig að krakkar geti lesið fyrir
hann og fyrir jólin kom Oreo
vatnsbrúsi og Oreo buff.“
Sylvía segir að skólakerfið sé
sett upp þannig að það henti ekki
öllum. „Þegar ég fór í háskóla
fékk ég að láta ljós mitt skína í
námi með því að fara í f lest prófin
munnlega. Mér hefur alltaf þótt
erfitt í þessum skriflegu prófum
þar sem ég er lesblind. Allt of mikil
orka fer í að hugsa hvernig ég eigi
að skrifa og stafsetja rétt. Ég verð
aldrei góð í stafsetningu,“ segir
Sylvía hlæjandi. Sylvíu finnst þurfa
að aðlaga skólakerfið að breyt-
ingum í heiminum.
„Í desember 2022 gaf Evrópu-
sambandið út skýrslu sem segir
að árið 2023 yrði „Year of Skills“.
Hugmyndafræði þar sem krafist
er að horft verið meira á hæfni
hvers einstaklings og möguleika
sem í honum búa frekar en próf-
gráður og fyrri reynslu. Ég held að
skólakerfið okkar sé ekki byggt
upp á þessari hugmyndafræði. Við
erum að missa of marga nemendur
vegna þess að þeir passa ekki inn í
kassann sem skólakerfið er, og við
sem samfélag höfum ekki efni á
missa þessa nemendur út úr skóla-
kerfinu. Ég hefði svo auðveldlega
geta gefist upp ef ég hefði ekki haft
það bakland sem ég hafði,“ segir
hún.
Á mér draum
„Ég held að við sem samfélag
þurfum að hugsa hvað við getum
gert. Ég er að þróa vettvang fyrir
fólk þar sem það getur aðstoðað.
Síðan er gamla góða aðferðin að
spyrja: „Get ég aðstoðað?“
Það er alltaf hægt að líta í kring-
um sig hvort hægt sé að hjálpa
til við heimanám í fjölskyld-
unni, hjá vinum barna ykkar, í
götunni hjá þér, í sveitarfélag-
inu. Sumir foreldrar þurfa
að lesa allt námsefni
upp fyrir börnin sín
nokkrum sinnum,
allur frítími fer í að
læra með börnum. Í
skýrslu um brott-
hvarf úr íslenskum
framhaldsskólum
frá Velferðarnefnd
kemur fram að
brotthvarf úr fram-
haldsskólum sé
birtingarmynd
ójafnra tæki-
færa í íslensku
samfélagi og
við sem samfélag
eigum ekki að sætta
okkur við það. Ég á
mér draum um að sem
flestir komi að þessu
verkefni, ríkið, mennta-
stofnanir, skólar,
kennara, nemendur
á öllum stigum og
foreldrar taka þátt til
að við getum búið til
forrit og notað það til
að það nýtist samfélag-
inu okkar sem best.
Með Ask Study höfum
við samfélagið tækifæri
til að hjálpa til við að
aðstoða hvert annað
og leggja okkar lóð á
vogarskálarnar til að
hjálpa þeim sem vantar aðstoð.
Allir hafa skoðanir á mennta-
kerfinu en mig langar að skapa
verkfæri sem allir geta nýtt sér
og sýnt viljann í verki.“ Þegar við
lokum umræðunni um drauma
Sylvíu segir hún mikilvægt að láta
þá rætast. „Láttu drauma rætast og
gerðu þá að veruleika, ekki hafa þá
sem bara draum, það er aldrei of
seint. Lesblinda er engin hindrun,
þú getur allt sem þú ætlar þér.“
Gulur uppáhaldsliturinn
Sylvía hefur alltaf haft sjálfstæðar
og sterkar skoðanir, líka þegar
kemur að eigin stíl. „Hversdags-
legi stíllinn minn er frekar
einfaldur og fer alveg eftir
dögum hvernig hann er. Ég
vel alltaf föt þegar ég vakna
og fer eftir hvernig mér
líður þennan dag
og veðrinu. Ég hef
alltaf verið rosalega
hrifin af höttum og á mikið
af þeim. Ég elska jarðliti og
svartan, en á milli er ég rosa-
lega hrifin af gulum. Gulur
er uppáhaldsliturinn
minn. Stíllinn að
koma fram á sviði
fer meira út í öfga
og ég elska að vera í
einhverju öðruvísi
og leika mér þannig
með fötin og með
skemmtilegum
farða.“
Ákveðin snið
heilla Sylvíu. „Snið
sem eru þröng í mitt-
inu heilla mig. Einnig
er ég rosalega hrifin
af rúllukragapeysum
núna og í fyrra.
Spurð segist Sylvía
ekki eiga sér neina
uppáhaldsflík. „Reynd-
ar ekki uppáhaldsflík
en ég er mjög hrifin af
yfirhöfnum. Mér þykir
náttúrlega mest vænt
um þær flíkur sem ég
hef fengið frá ömmum
mínum, Erlu og Völu.“
Sylvía segist eiga
sinn uppáhaldshönn-
uð, Riccardo Tisci,
en hún fylgi í raun
ekki tískustraumum
og hafi aldrei gert. „Ég
elska jarðliti, grænan,
brúnan, beige og
svartan. En út af því
að ég er með blágræn
augu, þá er mjög gaman að klæðast
alveg bláu og síðan alveg grænu því
augnliturinn breytist. Sem dæmi;
ef ég er í bláu þá verða augun alveg
blá, í grænu verða þau græn.“
Elska pinnahæla
Þegar kemur að skótískunni þá eru
það hælaskór. „Ég elska hælaskó. Ég
hef safnað þeim síðan ég var lítil, þá
erum við að tala um pinnahælaskó.
Það er því miður ekki oft tækifæri
að nota þá á Íslandi,“ segir Sylvía.
Fylgihlutir eru eitthvað sem
Sylvía er ekki að missa sig yfir. „Ég
er sérstök með þetta, ég er eiginlega
aldrei með skartgripi. Það er ekki
oft sem fólk sér mig með eyrna-
lokka, hringi, armbönd eða
hálsmen og hvað þá úr, það ger-
ist aldrei. Það er eitt hálsmen
sem mamma keypti á fimm
dollara sem er vinaháls-
menið okkar, ég nota
það mest.“ n
Hversdagslegi
stíllinn minn er
frekar einfaldur og fer
alveg eftir dögum hvern-
ig hann er.
Fallegur
klæðnaðir við
flest tilefni.
2 kynningarblað A L LT 19. janúar 2023 FIMMTUDAGUR