Borgfirðingabók - 01.12.2009, Page 204

Borgfirðingabók - 01.12.2009, Page 204
204 Borgfirðingabók 2009 og berjalautirnar, allt þetta sem sveitin mín átti í svo ríkum mæli, fegurra en raun er á. Þó vil jeg geyma mynd þína sem helgan grip í huga mínum. Jeg vil taka hana fram þegar mjer leiðist og mig langar heim, jeg vil láta hana lýsa mjer eins og stjarna ferðamanni aftur heim til átthaganna. „Út vil jeg út,“ sagði þráin í mjer, að leita fjár og frama, þegar jeg gekk sem fátækur smaladrengur þar heima í dalnum milli fjallanna háu. „Heim vil jeg, heim“ hvíslar í barmi mjer núna. Það er röddin helga sem alltaf segir að föðurlandið á fyrsta rjett til sona sinna. Og aldrei gleymi jeg að það er torfbærinn á Desey, áin með fossanið, fjöllin og holt og hæðir, lækir og lindir, skógarkjarr og grænar grundir, eldgígirnir og hraunið og bæirnir og fólkið, sem býr þar, aldrei gleymi jeg að það er mitt föðurland. Og nú þegar jeg hef verið fjarri þjer nokkur ár þá hefi jeg lært að elska þig, meta það sem þú gafst mjer og þrá það alt sem jeg átti þar heima. Á margan hátt hefi jeg haft gott af að sjá sveitina mína, landið og fólkið mitt úr fjarlægð nokkur ár. Jeg hef líka lært margt og aukið þekkingu mína á ýmsum sviðum í þessi átta ár, meira en væri mögulegt á nokkrum skóla. Lífið er ávalt besti skólinn. En oft er það þannig í skóla lífsins að fátækt og einstæðingsskapur hrindir manni áfram eins og þau hulin öfl er knýja dauða hluti vjelarinnar til að hreyfast. Reynslan hefur kennt mjer að ekkert er betra fyrir unglinginn en að vera neyddur til að hjálpa sjer sjálfur. „neyðin kennir naktri konu að spinna,“ Háleitt markmið er líka nauðsynlegt að setja sjer. Unglingur er leggur á stað út í heiminn með því einbeitta áformi; „jeg vil og verð að komast áfram hvað sem það kostar,“ hann skortir a. m. k. ekki viljann til að berjast og sigra á vígvelli lífsins. Þetta áform byrjaði fyrst eins og óljós löngun í brjósti hans. En svo varð löngunin að áformi og enginn getur lýst gleði hins unga manna er hann sjer æskudraumana rætast og takmarkið nálgast. Og alltaf kemur myndin af sveitinni minni og fólkinu mínu heima aftur og aftur fram í huga mjer og manar mig til að vera lifandi vitnisburður als þess besta er bærist í brjósti Íslendinga. Í þessu sambandi minnist jeg sjerstaklega tveggja atburða frá útiveru minni er þjóðernistilfinningin sigraði yfir öllum erfiðleikum sem sá er tilheyrir lítilli þjóð getur ratað í á meðal stærri og ríkari þjóða. Sumarið 1926 var jeg á kennaranámskeiði í Svíþjóð. Þar voru ca 200 kennarar frá æðri og lægri skólum í níu löndum og höfðu dvalið
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192
Page 193
Page 194
Page 195
Page 196
Page 197
Page 198
Page 199
Page 200
Page 201
Page 202
Page 203
Page 204
Page 205
Page 206
Page 207
Page 208

x

Borgfirðingabók

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Borgfirðingabók
https://timarit.is/publication/1750

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.