Víkurfréttir - 19.01.2022, Blaðsíða 2
FINNDU OKKUR Á FACEBOOK
DAGLEGAR FERÐIR ALLA VIRKA DAGA
S U Ð U R N E S - R E Y K J A V Í K
845 0900
FERÐIR Á DAG
ALLTAF PLÁSS
Í BÍLNUM
HREINSUM
RIMLAGARDÍNUR OG
MYRKVUNARGARDÍNUR
NÁNARI UPPLÝSINGAR Á ALLTHREINT.IS
Líkur eru á því að kísilverksmiðja hefi rekstur á nýjan leik en í áliti Skipulagsstofnunar sem birt var
á gamlársdag er farið yfir matsskýrslu Stakksbergs, dótturfélags Arion banka, eiganda verksmiðj-
unnar í Helguvík, og hyggur félagið á endurræsingu verksmiðjunnar eftir verulegar endurbætur sem
fela m.a. í sér byggingu 52 hás skorsteins.
Verkmiðjan United Silicon hætti
starfsemi 1. september 2017 og
hálfu ári síðar fór rekstur hennar í
gjaldþrot. Í áliti Skipulagsstofnunar,
kemur fram að skýrsla Stakksbergs
uppfylli skilyrði laga um mat á um
hverfisáhrifum en bendir á marga
þætti sem þurfi að uppfylla og bæta
frá fyrri rekstri verksmiðjunnar.
Í matsskýrslunni er gert ráð fyrir
að ráðast í tæknilegar og rekstrar
legur endurbætur á verksmiðjunni
og mannvirkjum sem reist voru af
Sameinuðu Sílíkoni hf., kísilverk
smiðju með einn ljósbogaofn og
framleiðslugetu upp á 25.000 tonn
af kísli á ári. Síðari áfangar fela í sér
uppbyggingu frekari mannvirkja og
fjölgun ofna. Fullbyggð verksmiðja
mun framleiða allt að 100.000 tonn
á ári í fjórum ljósbogaofnum.
Áfram lykt þó reistur verði
52 metra hár skorsteinn
Meðal breytinga á verksmiðjunni
strax í fyrsta áfanga er að reisa 52
m háan skorstein í stað þess að út
blástur fari út um rjáfur síuhúss.
Endurbætur á verksmiðjunni miði
að því að bæta búnað og rekstur
þannig að stopp á ofnum verði í lág
marki og skorsteinn muni tryggja
betri dreifingu efna í útblæstri.
Stakksberg metur áhrif á heilsu
óveruleg. Skipulagsstofn u telur líkur
á að íbúar í nágrenn inu komi til með
að verða varir við lykt frá starf sem
inni en tíðni til vika og styrkur lyktar
verði minni en á fyrri rekstr ar tíma.
Framleiðslugeta eftir fyrsta
áfanga verður 25.000 tonn á ári.
Fyrirhugað er að bæta við einum
ofni og auka framleiðslugetu um
25.000 tonn á ári í hverjum áfanga
eftir þann fyrsta. Í öðrum áfanga
verksmiðjunnar verður núverandi
ofnhús stækkað en byggt verður nýtt
ofnhús fyrir þriðja og fjórða áfanga.
Annar áfangi mun samnýta skorstein
með þeim fyrsta en gert ráð fyrir að
byggja samskonar skorstein fyrir
þriðja og fjórða áfanga. Hverjum ofni
sem bætist við fylgja ýmis mann
virki, eins og síuhús og kælivirki.
Nokkur ár geta liðið á milli áfanga en
Stakksberg áformar að reisa annan
áfanga þegar stöðugleiki er kominn á
rekstur fyrsta áfanga. Staða á mörk
uðum muni ráða því hvenær verði
ráðist í þriðja og fjórða áfanga.
Fjöldi starfa
Í skýrslu Stakksbergs kemur fram
að á rekstrartíma kísilverksmiðj
unar verði áhrif á samfélag talsvert
jákvæð. Áætlað er að um 70–80 bein
störf verði í verksmiðjunni í 1. áfanga
og í fullbyggðri verksmiðju verði
fjöldi starfa allt að 200. Að mati
Stakksbergs mun verksmiðjan lík
lega draga úr atvinnuleysi á svæðinu
og renna styrkari stoðum undir at
vinnulíf, sem hafi jákvæð áhrif á íbúa
og sveitarfélög.
Á grundvelli fyrirliggjandi gagna
telur Skipulagsstofnun að neikvæð
áhrif á heilsufar sem íbúar Reykja
nesbæjar upplifðu á fyrri rekstrar
tíma megi fyrst og fremst rekja til
þess hvernig staðið var að hönnun
og rekstri verksmiðju Sameinaðs
Sílikons. Að því gefnu að innleiðing
endurbóta verði farsæl telur Skipu
lagsstofnun að áhrif VOCefna á
heilsufar verði óveruleg.
Í fjölda athugasemda almennings
við frummatsskýrslu Stakksbergs
komu fram áhyggjur af áhrifum á
lykt og heilsu með vísan til fyrri
rekstrartíma. Stakksberg hyggst
halda úti vefsíðu með niðurstöðum
vöktunar og upplýsingum um frávik.
Einnig verður þar hægt að leggja
fram nafnlausar ábendingar um
lyktarmengun sem fylgt verður eftir
með mælingum á VOCefnum.
Kísilver United Silicon í Helguvík á vormánuðum 2017 þegar eldur varð laus í verksmiðjunni. VF-mynd: Hilmar Bragi Bárðarson
Minni mengun og 52 metra hár
skorsteinn á endurbættu kísilveri
Öll bæjarstjórn á móti?
„Íbúar í Reykjanesbæ munu aldrei
sættast á að rekstur þessarar verk
smiðju fari í gang aftur og ég óttast
að verulegur ófriður verði nái þetta
fram að ganga.
Ég er að sjálf sögðu mjög von
svik inn yfir þessu áliti. Enn og
aftur telur Skipu lags stofnun að
það sé í lagi að gerðar séu til raunir
á íbúum Reykja nes bæjar sem
margir hverjir upp lifðu tals verð
veik indi á meðan þessi rekstur var
í gangi. Breyt ing á bygg ingu mun
að mínu mati ekki breyta neinu
þar um nema þá helst að dreifa
meng un inni yfir fleiri íbú a,“ segir
Guðbrandur Einarsson í viðtali við
Kjarnann.
Og Hannes Friðriksson, einn af
mörgum sem sjá ekki framtíð verk
smiðjunnar fyrir sér í Helguvík
segir:
„Stjórn endur Arion banka hafa
nú í nokkurn tíma valið að láta
svo líta út að kís il verk smiðjan
væri verð laus í þeirra bók um. Að
vilji þeirra stæði til að sinna sínu
„græna“ hlut verki. Nú virð ist breyt
ing hafa orðið og glýjan komin í
augu þeirra. Kís il verð hefur farið
hækk andi og nú skal allt reynt til að
koma kís il ver inu í gott verð.
Friðjón Einarsson, formaður
bæjarráðs Reykjanesbæjar segir
í samtali við Kjarnann að bæjar
stjórn hafi ítrekað komið skoð
unum sínum á framfæri við Arion
banka varðandi rekstur verksmið
unnar í Helguvík. „Við höfum óskað
form lega eftir sam starfi við bank
ann um að rífa verk smiðj una og
hefja sam starf um atvinnu þróun í
Helgu vík. Því miður hefur það ekki
gengið eft ir,“ sagði Friðjón í viðtali
við Kjarnann.
Margrét Sanders, oddviti Sjálf
stæðismanna sagði við Ríkisút
varpið að flokkurinn vildi ekki sjá
enduropnun kísilverksmiðjunnar.
Hún sagði reynsluna frá fyrri
aðila ekki góða og ekki væri hægt
að styðja við tilraunastarfsemi í
Helguvík.
Bæjarstjórnarfundur var síð
degis á þriðjudag en í bókun sem
þar var lögð fram skorar bæjar
stjórn Reykjanesbæjar á Arion
banka um að falla frá öllum
áformum um endurræsingu kísil
versins í Helguvík og hefja við
ræður við sveitarfélagið um aðrar
og grænni leiðir.
Á bls. 12–13 er grein frá Skúla
Thoroddsen sem er einn mjög fárra
sem virðist sjá eitthvað jákvætt við
endurræsingu kísilversins en þá
er líka aðsend grein frá Ragnhildi
Guðmundsdóttur fyrir hönd and
stæðinga stóriðju í Helguvík.
Kaup á stúku og töflu í nýjan íþróttasal í Grindavík var til umræðu á fundi
bæjarráðs Grindavíkur í síðustu viku. Gert er ráð fyrir á fjárfestingará-
ætlun þessa árs að nýrri stúku og nýjum skjám eða stigatöflu verði komið
fyrir í nýja salnum.
Undirbúningur verksins er í gangi en á fundinum var lögð fram kostnaðará
ætlun um að koma líka fyrir veggsvölum fyrir ofan stúkuna ásamt fjölmiðla
stúku við ritaraborð.
Ný stúka og stigatafla væntanlegt
í nýjan íþróttasal í Grindavík
2 // vÍkurFrÉttir á SuðurnESjuM Í 40 ár