Víkurfréttir


Víkurfréttir - 19.01.2022, Side 6

Víkurfréttir - 19.01.2022, Side 6
augnablik MEð jÓni StEinari Jón Steinar Sæmundsson Útgefandi: Víkurfréttir ehf. Afgreiðsla og ritstjórn: Krossmói 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbæ, sími 421­0000. Ristjóri og ábyrgðarmaður: Páll Ketilsson, s. 893­3717, pket@vf.is. Fréttastjóri: Hilmar Bragi Bárðarson, s. 898­2222, hilmar@vf.is Auglýsingastjóri: Andrea Vigdís Theodórsdóttir, s. 421­0001, andrea@vf.is Umbrot/blaðamaður: Jóhann Páll Kristbjörnsson. Dagleg stafræn útgáfa: vf.is og kylfingur.is Eins lengi og elstu menn muna Oft er notað orðatiltækið eins lengi og elstu menn muna – og það má kannski nota þessi orð yfir þessa hörmulegu byrjun á árinu 2022 gagnvart sjósókn hérna frá Suður­ nesjunum því veðráttan er búin að vera gríðarlega erfið og t.d. liðu ellefu dagar á milli þess að minni bátarnir úr Grindavík gátu róið. Kannski ein versta byrjun á vetrar­ vertíð, veðurfarslega séð, og elstu menn muna. Ef við reynum í það minnsta að skoða eitthvað af aflatölunum þá nú bara afskaplega lítið að frétta af því. Helst að skoða stóru línubátana því þeir hafa getað verið á sjó í þessum haugasjó og brælum sem hafa verið. Páll Jónsson GK, Fjölnir GK og Sighvatur GK hafa allir verið með línuna utan við Reykjanes og síðan á línuslóðinni utan við Sandgerði. Sighvatur GK er kominn með 177 tonn í þremur róðrum, Páll Jónsson GK 128 tonn í tveimur, Hrafn GK 105 tonn í tveimur og Valdimar GK 103 tonn í einum, síðastnefndu bátarnir lönduðu í Hafnarfirði. Enn sem komið er þá er Óli á Stað GK eini 30 tonna báturinn sem er kominn suður til veiða en vegna veðurs hefur hann einungis komist í tvo róðra og landað fimmtán tonnum. Einhamarsbátarnir eru ennþá fyrir austan nema að Gísli Súrsson GK lagði á sig 25 klukkustunda ferðlag norður fyrir landið og á Siglufjörð en hann er á leiðinni í Breiðafjörðinn. Eins og fyrir sunnan þá hefur veiði bátanna sem hafa verið fyrir austan heldur ekkert verið neitt sérstök enda líka haugasjór þar og brælur. Best hefur kannski Huldu GK gengið því hún er komin með 39 tonn í fimm róðrum, með línuna í Breiðafirðinum. Auður Vésteins SU með 37 tonn í sjö, Hópsnes GK 29 tonn í fimm á Skagaströnd en hann er á balalínu. Vésteinn GK 24 tonn í fimm róðrum og Gísli Súrsson GK nítján tonn í fjórum. Yfir vertíðina hefur helsta veiðar­ færið á vertíð verið net en vegna veðurs þá hafa netabátarnir svo til ekkert komist á sjóinn, nema Halldór Afi GK byrjaði ansi vel, komst í átta tonn í einni löndun frá Sandgerði en fór síðan í Faxaflóann þar sem veiðin hefur verið treg. Grímsnes GK fór í ufsann á Sel­ vogsbankann en veiðin þar var lítil, aðeins 4,4 tonn í einni löndun. Báturinn er núna kominn í Njarðvík. Í síðasta pistli var fjallað um að eldur hefði komið upp í Erlingi KE þar sem hann lá í Njarðvíkurhöfn og tjónið það mikið að báturinn fer ekki meira á veiðar. Um 1.500 tonna kvóti er óveiddur á Erlingi KE og strax var hafist handa við að finna annan bát til að koma í staðinn fyrir Erling KE. Að leita að öðrum netabáti var kannski ekki svo auðvelt því ef tekinn er hringur í kringum Ísland þá er lítið um svona stóra stálbáta á lausu til þess að fara að stunda netaveiðar. Reyndar þurfi Þorsteinn Erl­ ingsson, eigandi Saltvers, ekki að leita langt því Hólmgrímur, sem gerir út Maron GK, Halldór Afa GK og Grímsnes GK, átti í geymslu í Njarðvíkurslipp netabátinn Langanes GK sem hafði síðast landað afla í júlí árið 2021. Sá bátur er að öllu tilbúinn til veiða og endirinn var sá að Langanes GK var leigt og mun koma í staðinn fyrir Erling KE núna á ver­ tíðinni. Eftir vertíðina þá mun verða tekinn ákvörðun um hvort að Saltver muni kaupa Langanes GK. Nokkur munur er á bátunum og þá aðallega stærðarlega séð. Erling KE er 40 metra langur en Langanes GK 35 metra langur. Erling KE er 7,2 metra breiður en Langanes GK 6,7 metrar. Aftur á móti er Langanes GK nýrra, Erling KE er smíðað árið 1964 í Noregi en Langanes GK er smíðaður 1972 í Garðabæ. Eitt er þó víst að áhöfninn á Er­ ling KE er að fá ansi góðan bát því Hólmgrímur er þekktur fyrir að hugsa mjög vel um bátana sína og Langanes GK er þar enginn undan­ tekning. aFlaFrÉttir á SuðurnESjuM Gísli Reynisson gisli@aflafrettir.is Byggðakvóti upp á 140 tonn til Suðurnesjabæjar Atvinnuvega­ og nýsköpunarráðu­ neytið hefur tilkynnt Suðurnes­ jabæ um úthlutun byggðakvóta. Út­ hlutað er 70 þorskígildatonnum til byggðarlagsins Garðs og 70 þorskí­ gildatonnum til byggðarlagsins Sand­ gerðis. Úthlutunin var til afgreiðslu á síð­ asta fundi bæjarstjórnar Suðurnesja­ bæjar þar sem samþykkt var sam­ hljóða að óska eftir við atvinnuvega­ og nýsköpunarráðuneyti, að ákvæði reglugerðar nr. 995/2021 gildi um út­ hlutun byggðakvóta byggðarlagsins Garðs með eftirfarandi breytingum: a) Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 4. gr. reglu­ gerðarinnar breytist og verði: Skipting þess aflamarks, sem nú kemur í hlut byggðarlags, auk þess aflamarks byggðarlagsins sem kanna að vera eftir af út­ hlutun fyrra fiskveiðiárs, skal að öðru leyti fara fram til einstakra fiskiskipa sem uppfylla skilyrði 1. gr., sbr. og reglur um sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggða­ kvóta í einstökum sveitarfélögum sem ráðuneytið staðfestir sam­ kvæmt 2.­3. gr, eftir því sem við á og skal skipt hlutfallslega af því aflamarki sem fallið hefur til viðkomandi byggðarlags, miðað við allan landaðan botnfiskafla í tegundum sem hafa þorskígildis­ stuðla, í þorskígildum talið innan sveitarfélagsins á tímabilinu 1. september 2020 til 31. ágúst 2021. b) Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 6. gr. reglu­ gerðarinnar breytist og verður: Fiskiskipum er skylt að landa innan sveitarfélagsins þeim afla sem telja á til byggðakvóta Garðs og til vinnslu innan sveitar­ félagsins á tímabilinu frá 1. sept­ ember 2021 til 31. ágúst 2022. Það er við hæfi um áramót að horfa aðeins um öxl. Ég er ekkert frá­ brugðinn meirihluta landsmanna með þann sið að strengja nýársheit. Í desember 2020 ákvað ég að nú skyldi ég hreyfa mig meira á árinu 2021 en ég hafði gert áður og nú skyldi það gert skipulega og kerfis­ bundið. Markmið sett. Gengið skyldi á fjallið Þorbjörn hið minnsta einu sinni á viku á árinu. Já ég veit, ekki svo sem bratt markmið en Þorbjörn er brattur. Hætta öllu sykur­ og brau­ ðáti ásamt einhverju fleiru sem ég „man ekkert“ hvað var. Ráðist var í gerð excelskjals þar sem allt yrði skráð sem við kæmi átakinu. Þess ber að geta að aldrei hafði undirritaður áður farið í sitt árvissa átak jafn skipulagður. Hið nýja ár 2021 gekk í garð og framtakssemin ekkert að þvælast fyrir manni, skjalið góða beið óhreyft í tölvunni og gerði ekkert til að ýta við manni. Svo koma að því að kall þurfti að fara í reglubundið tjékk hjá lækni sem kvað upp sinn úrskurð. Þú ert allt of feitur! ,„Já, þurftir ekkert að segja mér það,“ sagði ég sposkur. En, þá kom hann með „hægri krók“ sem lækkaði nú í mér rostann. Þú ert á frábærum millitíma með að ná þér í sykursýki 2! Þú þarft að létta þig og ekkert múður með það! Þennan dag 26. febrúar síðast­ liðinn þegar ég labbaði út frá lækn­ inum með skottið á milli lappanna mundi ég eftir ónotuðu excelsk­ jalinu sem átti öllu að redda í hreyf­ ingunni. Væri ekki tilvalið að starta því núna? Rauk heim og fyrstu ferð upp á fjallið en ekki verður sagt að maður hafi rokið upp þessa fyrstu ferð, móður og másandi með tilheyr­ andi stoppum til að kasta mæðinni. Með fleiri ferðum fækkaði stoppum og eftir nokkrar ferðir fór þetta að ganga viðstöðulaust. Excelskjalið fór loksins að fyllast út og eftir standa á árinu sem leið 110 ferðir á fjallið, sem samanlagt gerðu 237 kílómetra. Einnig bættust við nokkrar óvæntar gosferðir sem teljast þó ekki með þar sem þær voru ekki inni á upphaflega planinu Ávinningurinn af þessu brölti eru 13 kíló týnd sem ég kæri mig ekkert um að finna aftur og sykursýkin á undanhaldi. Með þessu vildi ég sagt hafa: Maður þarf stundum bara gott spark í rassgatið! ps.Excelskjal fyrir 2022 er í smíðum … Að drattast af stað… 6 // vÍkurFrÉttir á SuðurnESjuM Í 40 ár

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.