Víkurfréttir


Víkurfréttir - 19.01.2022, Page 7

Víkurfréttir - 19.01.2022, Page 7
Afmælisþættir skólans í Vogum, birtast vikulega í Víkurfréttum og vf.is á afmælisárinu. Þorvaldur Örn Árnason, áður kennari við skólann, tekur saman með góðra manna hjálp. 3. ÞÁTTUR FJÖLÞÆTT STARF Á 56 FERMETRUM Skólinn okkar er þriðji elsti grunnskóli landsins sem starfað hefur samfellt. Eldri eru barnaskólar Eyrarbakka (1852) og Reykjavíkur (1862). Gerða­ skóli er stofnaður sama ár, mánuði yngri. Fordæmin voru ekki mörg og skólaskylda engin. Árið 1870 hóf Stefán Thorarensen, prestur og sálmaskáld á Kálfatjörn, undirbúning stofnunar barnaskóla í Vatnsleysustrandarhreppi. Efnt var til samskota, keyptur jarðarpartur og reist skólahús sem var vígt 12. sept­ ember 1872 með því að halda þar stofnfund skólans sem hóf starfsemi 1. október og hefur starfað óslitið síðan, stundum á fleiri en einum stað sam­ tímis. Með leyfi kóngsins og Alþingis fékkst 1.200 ríkisdala vaxtalaust lán til skólans úr Thorchillii­sjóði sem ekki þarf að greiða meðan skólinn sinnir vel börnum sem minna mega sín. Thorchillii­sjóðurinn greiddi um áratuga skeið skólagjöld fátækustu barnanna í skólanum og síðar í fleiri skólum sem stofnaðir voru á Reykja­ nesskaga, einnig til fátækra heimila um tíma. Mörg „Thorchillii­barnanna“ bjuggu á skólatíma í risi skólahússins og ráðið var fólk til að ala önn fyrir þeim. Þannig var skólinn bæði heima­ vistarskóli og heimangönguskóli og einnig var börnum komið fyrir á nálægum bæjum, m.a. börnum úr Njarðvík en fyrstu árin var þessi skóli líka fyrir Njarðvíkinga uns þeir komu sér upp eigin skóla rúmum áratug síðar. Einnig var frá upphafi vísir að ungl­ ingaskóla (fyrir fermd börn) og handa­ vinnukennsla fyrir stálpaðar stúlkur í skólahúsinu. Fyrsta veturinn voru 30 börn í skólanum, þar af átta fermdir ungl­ ingar, og bjuggu tíu af börnunum í skólahúsinu. Í húsinu, sem var 56 m2 að grunnfleti, hæð og ris, var einnig íbúð fyrir kennarann svo það hefur verið búið þröngt. Kannski hefur það komið sér vel því timburhús á þessum tíma voru mjög köld. Byggt var við skólahúsið 1886 og það stækkað í 90 m². Síðan var það endurbyggt árið 1907 á sama grunni og er myndin af því húsi þegar það var komið til ára sinna. Í þessum þáttum er víða byggt á bók Guðmundar Björgvins Jónssonar: Mannlíf og mannvirki í Vatnsleysu­ strandarhreppi, (útg.1987) einkum bls. 173 – 179. Keilir, miðstöð vísinda, fræða og atvinnulífs hélt hátíðlega athöfn í Hljómahöll í síðustu viku í tilefni útskriftar frá Háskólabrú og Heilsuakademíu Keilis. Háskólabrú útskrifaði 58 nemendur og Heilsuakademía útskrifaði ellefu nemendur úr fótaaðgerðafræði. Frá upphafi hafa nú samtals 4.221 einstaklingur útskrifast úr námi frá skólum Keilis. Af sóttvarnarástæðum var athöfnin aðeins opin fyrir útskriftarnemendur sem allir þurftu að framvísa vottorði um neikvætt hraðpróf eða nýlega covid-19-sýkingu (eldri en fjórtán daga og yngri en 180 daga). Í upphafi athafnar var tónlistaratriði flutt af gítarsveitinni C-sveit í stjórn Arnars Freys Valssonar frá Tónlistar- skóla Reykjanesbæjar. Nanna Kristjana Traustadóttir, framkvæmdastjóri Keilis, flutti ræðu og leiddi athöfnina. Allir eiga sína sögu „Það er alltaf mjög hátíðlegt að út­ skrifa nemendur úr sínu námi og er þetta ávallt mikil gleðistund. Allir eiga sína sögu og margir hverjir að vinna gríðarlega stóra sigra eftir að hafa sýnt mikla þrautseigju. Það er fátt betra en að sjá nemendur upp­ skera,“ hafði Nanna Kristjana að segja eftir athöfnina. Berglind Kristjánsdóttir, forstöðu­ maður Háskólabrúar, flutti einnig ávarp og afhenti útskriftarskírteini og viðurkenningarskjöl ásamt Ingi­ björgu Elvu Vilbergsdóttur, verk­ efnastjóra Háskólabrúar. Dúx Há­ skólabrúar var Sóley Kristín Harð­ ardóttir með 9,75 í meðaleinkunn og fékk hún peningagjöf frá Arion banka og Keili sem viðurkenningu fyrir góðan námsárangur. Hafliði Breki Waldorf hélt ræðu fyrir hönd útskriftarnema Háskólabrúar. Miklar framfarir í kennsluháttum Háskólabrú hefur boðið upp á að­ faranám til háskóla frá árinu 2007 og hafa á þeim tíma átt sér stað miklar framfarir í kennsluháttum samhliða breyttum þörfum og kröfum nemenda. Nú geta nemendur því valið að sækja Háskólabrú í stað­ námi eða fjarnámi, bæði með og án vinnu. Boðið er upp á Háskólabrú í samstarfi við Háskóla Íslands og gildir námið til inntöku í allar deildir háskólans. 40 fótaaðgerðafræðingar útskrifast frá Keili Elvar Smári Sævarsson, forstöðu­ maður Hei lsuakademíunnar, ávarpaði gesti og afhenti útskriftar­ skírteini og viðurkenningar ásamt Haddý Önnu Hafsteinsdóttur, verk­ efnastjóra Heilsuakademíunnar. Sandra Friðriksdóttir hlaut viður­ kenningu fyrir bestan námsárangur í fótaaðgerðafræði. Sandra var með meðaleinkunn upp á 9,65 sem er hæsta meðaleinkunn frá upphafi fótaaðgerðafræðináms hjá Keili og hlaut hún gjafir frá heildsölunum Áræði og EM heildverslun. Allir út­ skriftarnemendur úr fótaaðgerða­ fræði fengu rós frá félagi íslenskra fótaaðgerðafræðinga. Sigrún Áslaug Guðmundsdóttir hélt ræðu fyrir hönd útskriftarnema Heilsuaka­ demíunnar. Keilir bauð í fyrsta skipti upp á nám í fótaaðgerðafræði vorið 2017 og hafa síðan þá samtals 40 fótaað­ gerðafræðingar útskrifast. Nám í fótaaðgerðafræði er viðurkennt starfsnám á þriðja hæfniþrepi sam­ kvæmt reglum mennta­ og menn­ ingarmálaráðuneytis. Fótaaðgerða­ fræðingur er lögverndað starfsheiti og veitir Embætti landlæknis útskrif­ uðum nemendum starfsleyfi. Fótaaðgerðafræðingar meta ástand fóta, greina og meðhöndla þau fótamein sem ekki krefjast sérhæfðari læknisfræðilegrar með­ ferðar. Námið býður upp á góða atvinnumöguleika um allt land og hafa útskrifaðir nemendur gjarnan hafið störf á fótaaðgerðastofum eða stofnað sínar eigin stofur. „Það er fátt betra en að sjá nemendur uppskera“ Hafliði Breki Waldorf hélt ræðu fyrir hönd útskriftarnema Háskólabrúar. Nanna Kristjana Traustadóttir, framkvæmdastjóri Keilis. Sigrún Áslaug Guðmundsdóttir hélt ræðu fyrir hönd útskriftarnema Heilsuakademíunnar. Sóley Kristín Harðardóttir (t.v.) var dúx Háskólabrúar með 9,75 í meðaleinkunn og Sandra Friðriksdóttir var með hæsta meðaleinkunn frá upphafi fótaaðgerðafræðináms hjá Keili, 9,65. STARFSMAÐUR ÓSKAST ÓJS verkfræðistofa í Reykjanesbæ leitar að dug- legum starfsmanni til framtíðarstarfa í spennandi verkefnum, um er að ræða stöðu verkfræðings/ tæknifræðings á véla- eða mannvirkjasviði. Menntunar- og hæfniskröfur n Háskólamenntun í véla- eða byggingaverkfræði eða -tæknifræði. n Starfsreynsla í véla- eða mannvirkjahönnun kostur en ekki skilyrði. n Þekking á Inventor, SolidWorks, Revit eða sambærilegum hugbúnaði. n Reynsla af notkun hönnunarforrita. n Iðnréttindi eru kostur. n Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð. Umsókn, með upplýsingum um menntun og starfsreynslu, skal berast til ojs@ojs.is eigi síðar en 30. janúar 2022. Nánari upplýsingar veitir Óli Jón Sigurðsson oli@ojs.is. Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál. vÍkurFrÉttir á SuðurnESjuM Í 40 ár // 7

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.