Víkurfréttir


Víkurfréttir - 19.01.2022, Síða 13

Víkurfréttir - 19.01.2022, Síða 13
Verksmiðja í sátt við umhverfið Skúli Thoroddsen. Höfundur er íbúi í Reykjanesbæ. Ímyndum okkur framlag Reykja­ nesbæjar að vistvænni orku í heim­ inum væri að framleiða kísilmálm í Helguvík, sem verði síðan yrði notaður í sólarrafhlöður sem endast áratugum saman og skapa vistvænt rafmagn út í heimi í stað rafmagns framleitt með kolum og olíu. Mikið væri það göfugt verkefni. Bæjar­ stjórn Reykjanesbæjar er á móti því. Not in my backyard! Forseti bæjarstjórnar, Guðbrandur Einarsson, telur að „íbúar Reykja­ nesbæjar muni aldrei sættast á að rekstur kísilmálmverksmiðjunnar í Helguvík fari aftur í gang. Það skal aldrei verða,“ segir hann og er „von­ svikinn með álit Skipulagsstofn­ unar“ sem telur að neikvæð áhrif sem íbúar upplifðu megi rekja til þess hvernig staðið var að hönnun og rekstri verksmiðjunnar í upp­ hafi. En Skipulagsstofnun telur – að því gefnu – að innleiðing endurbóta verði farsæl, að áhrif efna frá verk­ smiðjunni á heilsufar íbúa verði óveruleg, eins og raunin er um sam­ bærilegar verksmiðjur í þröngum dölum Noregs. Hér togast á tilfinn­ ingaleg pólitík og skiljanleg reiði íbúa sem bæjarstjórn tekur vitaskuld undir, vegna þess hvernig staðið var að verki í upphafi annars vegar og svo ný og fagleg afstaða Skipulags­ stofnunar hins vegar. Með kísilkristöllum er sólar­ geislum breytt í raforku. Kísilmálmur er lykilefni til framleiðslu á sólarraf­ hlöðum, einum af framtíðarstólpum vistvænnar framleiðslu á rafmagni úr sólskini. Í Suður­Þýskalandi eru þök húsa oft þakin sólarrafhlöðum. Í Sahara rísa nú risavaxin sólar­ orkuver. Hreinsaður kísilmálmur er líka lykilefni í nútíma tölvutækni og rafeindaiðnaði. Kísilmálmverksmiðja er þannig mikilvæg í þágu grænnar orku og tækniframfara til framtíðar. Orkuskortur hrjáir heiminn. Á Ís­ landi er næg vistvæn orka og hana þarf að auka um 50% ef við eigum að klára orkuskiptin hér á land nema „við barasta hættum að ferðast, hættum að aka bílum og barasta spörum rafmagn,“ eins og Landvernd leggur til. Slíkur málflutningur er auðvitað fráleitur. Við þurfum meiri orku. Heimurinn þarf meiri orku. Kísilver eru orkufrekur iðnaður. Járnblendiverksmiðja Elkem á Grundartanga í Hvalfirði hefur verið starfrækt í fjóra áratugi, án þess að vera úthrópuð fyrir „kolabrennslu“ eða að eitra fyrir íbúa í Hvalfjarðar­ sveit eða valda mönnum hæsi. Þar er framleiddur kísilmálmur, (75% blandaður með 25% járni), til íblönd­ unar m.a. í rafmagnsstál fyrir spenna og rafmótora sem notaðir eru í raf­ magnsbíla, hástyrktarstál fyrir vind­ myllur, ryðfrítt stál fyrir farartæki o.fl. Ættum við að vera mótfallin þessu vegna þess að kol og trjákurl eru notuð við efnaferli fram­ leiðslunnar? Meint eitrun í Hvalfirði hefur ve r i ð ra n n ­ sökuð og skoðuð. Áhrifin óveruleg eða engin. Tvö kísilver hafa verið reist á Ís­ landi. Annað á Bakka við Húsavík og hitt hér í Helguvík sem til stendur að endurbæta og keyra í gang að nýju en hróp andstöðunnar heyrast inn í bæjarstjórn. Fólk vill auðvitað ekki láta eitra fyrir sér og „vilji bæjar­ yfirvalda stendur til þess að verk­ smiðjan verði rifin,“ segir Friðjón Einarsson, formaður bæjarráðs, og bæjarstjórn virðist fljóta með um þröngsýna villigötu tilverunnar þar sem upphrópanir og hræðsla ríkir. Væri ekki nær að leysa vandann, vinna með lausninni, vinna hnatt­ rænt, í stað þess „að berjast til síð­ asta blóðdropa“ gegn endurbótum? Maður bara spyr sig. Við hjá Landsvirkjun leitumst við að eiga sem best samskipti við nágranna okkar nær og fjær. Því leitum við að verkefnisstjóra í teymi nærsamfélags og græns reksturs. Við leiðum sameiginlega vegferð fyrirtækisins að kolefnishlutleysi, grænum rekstri, samfélagslega ábyrgri starfsemi og virku samstarfi og samtali í nærsamfélögum. Helstu verkefni: – Undirbúningur og framkvæmd samfélagsverkefna – Gerð og eftirfylgni samskiptaáætlana – Samskipti við hagsmunaaðila í nærsamfélagi aflstöðva – Miðlun verkefna og árangurs – Styðja við þróun, innleiðingu og eftirfylgni græns reksturs Hæfniskröfur: – Framhaldsmenntun af háskólastigi sem nýtist í starfi – Framúrskarandi samskiptaeiginleikar og jákvætt viðhorf – Þekking og reynsla af samskiptum við mismunandi hópa – Þekking eða reynsla af umhverfis- og/eða orkumálum er kostur – Sjálfstæði í vinnubrögðum – Metnaður til að vera hluti af sterkri liðsheild Starfsstöð viðkomandi verður á Suðurlandi, í Sogsstöðvum og Þjórsárstöðvum Umsóknarfrestur er til og með 27. janúar Sótt er um starfið hjá Hagvangi hagvangur.is Viltu hjálpa okkur að vera góður granni? Starf Íbúar vilja ekki þessa verksmiðju Það er nokkuð ljóst að Arion banki og PCC á Bakka eru í þreifingum með það að koma kísil­ verinu í Helguvík aftur af stað, við hjá Andstæð­ ingum stóriðju í Helguvík viljum hvetja bankann til þess að endurskoða þessa samninga og leitast frekar við það að selja verk­ smiðjuna úr landi, bankinn getur ekki kastað af sér allri ábyrgð með sölu á mengandi stóriðju í hendur aðila sem að hafa þau áform að ræsa verksmiðjuna aftur. Það vekur mikla furðu að bankinn standi í sölu á umhverfis­ vænum skuldabréfum samhliða því að gæla við það að koma einu mesta mengunarslysi Íslandssög­ unnar aftur í gang. Að sama skapi standa þeir einnig í auglýsingaher­ ferð um að bankinn sé að taka sam­ félagslega ábyrgð með minnkun losunar á mengandi lofttegundum og beri fyrir sig umhverf­ isvæna vottun. Einnig vil jum við benda á, að núverandi byggingar eru ekki stað­ settar í samræmi við samþykkt deiliskipulag og þegar byggingar eru byggðar sem ekki rúmast innan gildandi deiliskipu­ lags ber eiganda lagalega skyldu til þess að rífa þær niður. Það er ríkjandi meirihluti á móti þessum áformum ásamt bæjar­ stjórn og það væri ábyrgðarleysi ef Arion banki ætlar að þvinga þessa sölu í gegn, í andstöðu við bæði bæjarstjórn, meirihluta hennar og minnihluta ásamt íbúum Reykja­ nesbæjar og Suðurnesjabæjar. Þá viljum við benda á að nú er rannsókn í gangi á nýgengi lungna­ krabbameins á Suðurnesjum sem er meira en á öðrum stöðum og því alveg ljóst að aukin loftmengun á eftir að bæta á þann vanda. Reykjanesbær hefur gefið út lýðheilsustefnu bæjarins og þar er kveðið á um að íbúar eigi rétt á því að anda að sér hreinu og ómenguðu lofti en ef að þessum áformum verður, um að selja og ræsa aftur ofna kísilverksmiðjunar, þá er þessi stefna að engu orðin. Íbúar vilja ekki þessa verksmiðju í Helguvík og munu berjast á móti því með öllum ráðum eins og áður að hún verði ekki endurræst. Fyrir hönd stjórnar og með kveðju! Ragnhildur L. Guðmundsdóttir vÍkurFrÉttir á SuðurnESjuM Í 40 ár // 13

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.