Rökkur - 01.03.1922, Qupperneq 2
Bœn.
Lífsins faSir, lát mig finna
ljóss þíns magn í sál og hjarta,
finna hita handa þinna,
hingað gegnum skugga svarta.
Lát mig finna lífsins gleSi
ljúfa og sanna í trú og verki ;
auktu von í veiku geSi,
vertu hjá mér, þú, hinn sterki,
Lífsins herra ! Lát mig deySa
lágar hvatir sálar minnar,
láttu trú í sál mér seiSa
sólskin, blíSu ástar þinnar.
Gef mér kraft aS kremja iS lága
kross þíns sonar helgan viS ;
gef mér styrk aS steypa og fága
stoóir lífs míns. Veit mér liS.
Veit mér lið og ljóss þíns bjarma
láttu signa hverja þrá,
svo eg fái huggaS harma
hvers og eins, er sorgir þjá ;
svo eg bræSrum mínum megi
mildi þinni segja frá.
Faðir! Þeim aS vera á vegi
varSa lítil er mín þrá.
'21.