Rökkur - 01.09.1926, Page 30
28
gatan, sem var nógu stór og breið til
þess að geta verið miðstöð, nógu stór
svo allir vagnar frá einum bæjarhluta
til annars, gætu farið þar um. En
húsa- og lóðabraskararnir fullyrtu, að
Broadway myndi aldrei aftur verða
aðalstræti og margir helztu kaup-
mennirnir trúðu þeím og fluttu yfir á
Washingtongötu. Og þá var það að
Josiah Childs leigði nýtískubyggingu á
Broadway, um langt árabil, og var
svo um hnútana búið, að hann hafði
íyrsta rétt til þess að kaupa — fyrir
ákveðið verð. Seinna, þegar fólkið fór
aftur að þyrpast á Broadway, þá sögðu
menn, að Josiah Childs væri heppinn.
Og þeir hvísluðu því hvor að öðrum,
að hann hefði grætt um fimtíu þúsund
á því arna.
Þessi búðin hans var öðru vísi en
hinar, sem hann hafði áður haft. Og
öðru visi var um hnútana búið.
Engin kjarakaup. Alt með hæsta verði,
en af allra beztu tegund.
Hann ætlaði sér að ná í viðskifti