Rökkur - 01.09.1926, Page 35
33
Hún var þó móðir drengsins hans,
og kannske hafði hún altaf, þrátt fyrir
alt, viljað vel. t*ar að auki, hann
þurfti ekki að leggja eins mikið erfiði
á sig nú. Gat hugsað um annað en
verzlun og viðskifti. Hann langaði til
þess að sjá drenginn sinn. Hann hafði
hann aldrei augum litið. Pegar Josiah
fékk vitneskju um, að hann ætti sér
son, var drengurinn þriggja ára. Og
svo var komin í hann heimþrá. í tólf
ár hafði hann ekki séð snjó og oft
var hann að hugsa um, hvort ber og
ávextir Nýja Englands væri ekki betri
á bragðið en Californiu-ávextir.
Hann mintist gömlu daganna í Nýja
Englandi og löngun til þess að líta
það augum á ný vaknaði, Að líta það
á ný áður en hann dæi. Og svo —
síðast en ekki síst: Orðið skylda og
það, sem við það er hnýtt, bjó í hug
hans. Agatha var konan hans. Nú
ætiaði hann að sækja hana, fara með
hana vestur. Hann þóttist viss um, að
sér væri það óhætt. Hann var maður
3