Rökkur - 01.09.1926, Side 75

Rökkur - 01.09.1926, Side 75
73 Mundu það einnig, þegar miðnætur- sólin kysti land og lá. Þegar miðsumar- friðurinn ríkli. Þegar dökkblá fjöllin stóðu á höfði í gulli lituðum sjónum og hvítur jökullinn sýndist rósrauður í skini aftansólarinnar. Mundu það þannig og gleymdu því ekki, að einnig á slíkum stundum mót- uðust islenskar sálir, Mildar, ástríkar sálir, sál móður minnar — og þinnar. Sálir íslenskra kvenna. Mundu það í söng skáldsins. Mundu sál íslands eins og skáldið lýsti henni með pennadráttum; skáldið, skáldin, skáldin okkar mörgu og góðu. Mundu sál þess í orðum Njáls, Þor- geirs og Jóns Arasonar. Mundu hana í sál Gunnlaugs og Steingrims, Kórmáks og Þorsteins, Egils og Einars. Mundu hana eins og óþektir íslenskir listamenn hundruðum saman greyptu hana í myndir, sem prýddu söðulboga mæðra okkar, asklokið hans langa-langafa þíns, og mundu hana eins og hún var ofin í glitklæði víkinganna og kvenna þeirra.

x

Rökkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Rökkur
https://timarit.is/publication/1770

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.