Rökkur - 01.06.1935, Síða 9
RÖKKUR
89
ist hann búinn að koma flug-
vélinni í samt lag, en það var
enn eins og hann væri sleginn
ótta. Hann var altaf að horfa út
á sjóinn og í kringum sig.,
Þegar viðgerðinni var lokið
rétti hann úr sér og þurkaði
svitann af andliti og hálsi. Hann
virtist vera i þann veginn að
stökkva upp í vélina og leggja
af stað, en nú varð hann alt í
einu rólegri og áhyggjuminni á
svip, enda hafði óvissa og
áhvggjur haft hann að miklu
leyti á valdi sínu meðan á við-
gerðinni stóð, en nú þóttist hann
öruggur um að sleppa á brott
og róaðist allur við það. Hann
sneri sér brosandi að Sam og
mælti:
„Jæja, afi sæll, nú er alt í
lagi, er eklci svo?“
En þegar hann gekk nær
Sam og horfði í andlit honum
var eins og hann kiptist við.
„Gott in himmel,“ hrópaði
hann, „Paul Jouperts."
Sam varð enn undrunarfyllri
á svip, þegar þessi vitfirringur
fór að mæla á annarlegri tungu.
Og Sam hristi höfuðið og svar-
aði engu.
En flugmaðurinn hélt áfram
að stara á liann og þá sagði
Sam:
„Þú áttir ekkert með að lenda
hérna á rófnaakrinum hans Mr.
Hodge’s.“
En nú fór flugmaðurinn a‘ð
haga sér mjög undarlega. Hann
gekk alveg að Sam og skoðaði
andlit hans mjög gaumgæfilega.
Og svo tók hann bæði i hár hans
og skegg, eins og hann hefði
grun um, að Sam gengi með
hárkollu og falskt skegg.
„Hvað heitirðu, gamli?“
spurði hann.
„Sam Gates!“
Flugmaðurinn sagði eittlivað
í hálfum hljóðum,. sem Sam
skildi ekki og gekk að flugvél
sinni. Svo nam hann staðar, eins
og maður, sem veit ekki hvað
taka skuli til hragðs. Hann var
að þulcla á hinu og þessu, hand-
föngum og snerlum, með mikl-
um efunarsvip, en við og við
horfði hann á Sam. En loks
settist hann í flugvélina og
festi sætisólina. En hann setti
ekki mótorinn af stað. Hann sat
í þungum þönkum, uns hann alt
í einu losaði sætisólina og stökk
út úr flugvélinni og til Sam og
sagði ákveðnum rómi:
„Afi gamli! Þú verður að
koma með mér!“
Sam gapti af undrun.
„Ha? Hvað segirðu? Að eg
verði að fara með þér? Ó-ekkí!
Eg verð að grisja rófurnar,
maður, eg er orðinn á eftir
áætlun. —“
En nú var vitfirirngurinn aft-