Rökkur - 01.06.1935, Qupperneq 15

Rökkur - 01.06.1935, Qupperneq 15
RÖKKUR 95 ungi,“ hugsaði Sam. — „ef eg væri tuttugu árum yngri skyldi eg lumbra á lionum svo, að hann gleymdi því ekki." Bifreiðin nam staðar lijá veggbroti. Hermennirnir flýttu sér iit og tóku hann með sér að liaug nokkrum og hinum meg- in við hann var op, sem þeir fóru niður um — í neðanjaröar- byrgi, þar sem þrír yfirforingj- ar sátu reykjandi að drykkju. Hermennirnir lieilsuðu þeim og réttuþeimvélritaða skipun.Yfir- foringjarnir lásu Iiana og því næst gengu þeir að Sam. Annar togaði í skegg hans, en hinn hrækti framan í liann og kall- aði liann „gamalt, enskt svín“, þvi næst kallaði hann á tvo her- menn, sem tóku Sam og leiddu hann inn í þrönga skotgröf. Annar þeirra gekk á eftir hon- um og ýtti byssuskefti sínu í bak honum við og við. Það var rakt loft þarna og þeir óðu í vatni upp á miðja kálfa. Loftið var daunilt. Þarna hlandaðist saman gas-, púður- og rotnunarlykt. Skothríð kvað stöðug't við og annað veifið féllu sprengikúlur niður í skotgraf- irnar og lokuðu sumum þeirra. En áfram héldu þeir og skriðu frekar en gengu, stundum yfir líkami dauðra manna. Loks komust þeir í auða skotgröf og annar hermannanna ýtti honum út í fjarlægari enda hennar og sagði eitthvað í nöldurstón og livarf svo frá honum. Sam gamli var alveg uppgef- inn. Hann hallaði sér upp að aurvegg skotgrafarinnar og bjóst við því á liverju andar- taki, að einhver sprengikúlan mundi koma niður skamt frá sér og rífa sig í tætlur. Alt af var skothríðin að aukast og verða geigvænlegri og gekk svo í tuttugu mínútur og Sam var enn einn í skotgröfinni. Alt í einu þóttist liann heyra blásið í flautu. Og brátt sá hann annan hermanninn koma í áttina til sín og Sam geðjaðist ekki að augnaráði hans. Þegar hermað- uriiin átti að eins ófarna til hans n.n fimm metra nam hann staðar og miðaði á hann. Ósjálf- rátt kastaði Sam sér áfram og á grúfu og um leið og hann gerði það heyrði hann ógurleg- an hávaða og er hann and- artaki síðar gægðist upp sá hann hermanninn hníga nið- ur og skotgrafarveggina lirynja yfir hann. Því næst misti Sam meðvitundina. En þegar hann raknaði úr roti sá hann, að hann lá á gólfinu í skála nokkr- um og heyrði einlivern segja: „Eg held að karlinn sé ensk- ur!“ Hann horfði í kringum sig. Þar var mergð manna í brúnurn

x

Rökkur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Rökkur
https://timarit.is/publication/1770

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.