Rökkur - 01.03.1940, Page 5

Rökkur - 01.03.1940, Page 5
R Ö K K U R 37 óvíst með öllu, eins og komið var. 2. Það liafði komið til átaka milli þeirra feðganna út af þessu máli. Viðræða þeirra fór fram í gistihúsherbergi sem vissi út að víkinni. Toby hafði í fyrstu reynt að slá þessum mótbárum föður síns upp í gaman, en faðir hans reyndi, árangurslaust í fyrstu, að koma honum á aðra skoðun, en smám saman fór að þykna í Toby og hann varð æ geðstirð- ari og loks sagði hann í reiði: „Eg get ekki farið heim með þér. Eg hefi beðið hana að gift- ast mér og hún hefir játast mér.“ Peter Bettington beit á jaxl- inn. Annað gaf ekki til kynna, að hann hafði heyrt það, sem Toby sagði, því að Peter sagði ekki neitt Um þetta í bili. En er þögn hafði ríkt í nokkurar mínútur sagði hann: „Þú heldur vitanlega, að þú elskir hana?“ Roby leit hvasslega á föður sinn, en faðir hans hugsaði á þessari stundu er hann horfði i.augu sonar síns, að hann hefði augu móður sinnar bláeygrar, fagurrar, göfugrar konu, er nú hvíldi í kirkjugarði í Com- wall. „Eg held ekkert Um það — eg veit það,“ sagði Toby. Peter kinkaði kolli. „Við skulum þá kannast við að svo sé,“ sagði liann kyrlát- lega. En Toby starði á hann og var sem hann gæti ekki trúað sinum eigin eyrum. En hann varð hörkulegur á svip er faðir hans bætti við: „Hefirðu heyrt — gerirðu þér grein fyrir — hvers konar kona þetta er?“ „Vitanlega liefir þú lagt hlust- irnar við rógburði um hana,“ sagði Toby, riddaralegur í garð kvenna, eins og títt er um æsku- menn, — „Það er talað mikið um konur, sem eru eins fagrar og Dolores. En það er óþarff að leggja við hlustirnar eftir slík- um sögum. Eg geri það ekki fyrir mitt leyti.“ Mikil þrákelkni var í rödd Toby. „Eg liefi látið athuganir fram fara í kyrþei. Og er er smeyk- ur um, að það hafi lítið verið sagt um hana, sem ekki er satt.“ Peter Bettington þagnaði og mælti svo eftir dálitla stund: „Þú getur ekki kvongast henni, Toby.“ „Eg get það og eg skal gera það,“ sagði Toby. „Ó eg veit hvað þú segir, að eg taki niður fyrir mig — að hún sé ekki þess

x

Rökkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Rökkur
https://timarit.is/publication/1770

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.