Rökkur - 01.03.1940, Síða 9

Rökkur - 01.03.1940, Síða 9
R Ö K K U R 41 kendi með sjálfum sér hversu fögur liún var. Og hann gat vel gert sér ljóst, hversu auðvelt það hafði reynst henni, að blekkja Toby. „Eg hélt, að þig myndi renna grun í það,“ sagði hún af kæti, „og kæmir til þess að sjá með eigin augum hvemig eg lít út núna.“ Hann horfði á hana íhugandi augum. „Eg held að til þess hafi eg komið,“ sagði hann, „til þess að sjá hvernig þú ert núna“. „Jæja,“ sagði hún ögrandi — fullviss um, að hún væri ósigr- andi vegna fegurðar sinnar. „Hvernig er eg núna?“ „Eg get ekki svarað spurn- ingunni •— nú þegar. Eg hefi ekki komist að raun um það enn. Eg legg kannske dálítið annan skilning í orðin en þú.“ fHann mælti af djúpri al- vöru. Skyndilega varð mikil breyt- ing á svip hennar. Tillit augna liennar varð hörkulegra. „Við hvað áttu?“ spurði hún. Hún settist aftur á legubekk- inn og benti honum að setjast á stól. „Sestu niður og segðu mér hvað þér er í hug“. „Eg á við það, að eg veit ekki enn hvernig þú t ekur erindi mínu — hvort þú tekur þvi af fullri sanngirni og drenglyndi.“ Hún lét óþolinmæði i ljós. „Aha! Eg skil, vinur minn, Toby hefir sagt þér, að eg hafi tekið bónorði hans.“ „Hann hefir sagt mér, að hann hafi beðið þig að verða konuna sína“, sagði Peter, í þeim tón, sem væri hann að leiðrétta hana. Það var eins og brygði fyrir glömpum í augum hennar — glömpum sem eins og gáfu til kynna, að ekki hefði allar hinar gömlu glæður verið kulnaðar út með öllu. En það var eittlivað sem minti á sigurhrós í svip hennar. „Og eg' tók bónorði hans, eins og eg sagði. Eg hefi lifað margan glaðan dag — og nú finst mér tími til kominn að breyta Um stefnu, og lifa kyr- látu lifi — njóta virðingar, um- hyggju og ástar.“ „Á kostnað sonar míns,“ sagði Peter þurrlega. „Ó, eg skal gera liann ham- ingjasaman. Hafðu engar á- hyggjur af því gamli vin.“ „Eitt ár — eða tvö ef til vill“, sagði Peter. „Og þá — ef til vill fyr, fer hann að gera sér fulla grein fyrir því, að hann hafði lagt út á skakka braut. Þá þakk- ar hann þér ekki fyrir að hafa eyðilagt líf hans.“ „Eg þakkaði þér ekki, þegar þú eyðilagðir xnitt líf.“

x

Rökkur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Rökkur
https://timarit.is/publication/1770

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.