Rökkur - 01.03.1940, Qupperneq 13

Rökkur - 01.03.1940, Qupperneq 13
RÖKKUR 45 „Nei, Tom, eg gerði það ekki — ó, Tom segðu mér hvað er að.“ „Það — það er hræðilegt, Molly,“ sagði Tom hálfstam- andi. „Það gerði ekki svo mikið til með fyrri bréfin, en — þetta seinasta. Eg var svo sannfærður um, að það væri þú, sem skrif- aðir bréfin, að eg — eg skrif- aði ástarbréf til Rosemary — og sagði henni frá helgustu tilfinn- ingum mínum.“ Hann þagnaði andartak og bætti svo við hásum rómi: „Og hún hefir svarað.“ Hann rétti henni bréfið og var all-skjálfhendur. Molly var næsta föl, er hún las bréfið, og hvarmar hennar voru rakir. „Tom, Tom, hvað þú hefir gert hana hamingjusama,“ sagði hún. „En hvað geturðu gert? Þú getur ekki sagt henni hið sanna. Það máttu ekki — þú mátt ekki taka það frá henni, sem hefir fært henni ham- ingju.“ „Nei,“ sagði hann. „Eg get víst ekki sagt henni hið sanna. En eg verð að hætta að skrifast á við hana.“ Molly varð enn meira hugsi á svip. „En það mundi særa hana.“ „Segðu mér það hvað eg get gert? Eg get ekki hætt að skrifa henni, en eg get heldur ekki sagt henni sannleikann. Hvað get eg gert?“ En Molly svaraði engu. Það var ekkert hægt að gera til þess að ráða fram úr þessu, bæta um fyrir þessi mistök, hann hlaut að skilja eftir opið sár. — 5. Molly hafði hugsað fram og aftur um þetta langt fram eftir nóttu og daginn eftir ranglaði hún af stað til þess að heim- sækja gamla vinkonu, sem átti heima þarna í nágrenninu. Molly og Tom höfðu rætt málið ítarlega þá um kvöldið, en án þess að komast að nokk- urri niðurstöðu, og loks hafði Molly látið hann einan um að reyna að ráða fram úr því. „Kannske dett eg niður á einhverja leið,“ sagði hann, en það var auðheyrt á máli hans, að hann hafði ekki mikla von um það. Molly var komin að garðhliði nokkuru og staðnæmdist þar. Upp að dyrum hússins var braut lögð fallegum tígulstein- um, en til beggja hliða var blómaskraut mikið — það var eins og öll fegurstu blóm sum- arsins væri þarna saman kom- in í þessum litla garði. „Er ungfrú Penelope heima?“

x

Rökkur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Rökkur
https://timarit.is/publication/1770

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.