Fréttablaðið - 24.01.2023, Blaðsíða 30
Ég meina, maður getur
ekki verið svo tíkar-
legur að segja bara nei.
FRÉTTAVAKTIN
KL. 18.30 ALLA VIRKA DAGA
Fréttavaktin býðum landsmönnum upp á
fjölbreytta fréttaumfjöllun í opinni dagskrá.
Úrvalslið fjölmiðlafólks fer yfir fréttayfirlit
dagsins ásamt því að fá til sín góða gesti að
ræða helstu mál líðandi stundar.
Fréttavaktin er á dagskrá alla virka daga á
Hringbraut, dv.is og frettabladid.is
Svanfríður breytti húsinu í
kumbalda fyrir Jodie Foster
Svanfríður Jónasdóttir gat ekki annað en samþykkt að fallega steinhúsinu hennar við Hafnarbraut í Dalvík yrði breytt
í timburhjall í hálfan mánuð eða svo til þess að það skyggði ekki á sviðsmynd True Detective. Fréttablaðið/Valli
Pósthúsið í Dalvík verður
lögreglustöð í sviðsmynd
HBO-þáttanna True Detec-
tive: Night Country. Holly-
wood-stjarnan Jodie Foster
verður því líklega tíður gestur
þar og nágranni Svanfríðar
Jónasdóttur sem á huggulegt
steinhús handan götunnar í
beinni skotlínu kvikmynda-
tökuvélanna.
toti@frettabladid.is
Steinhús Svanfríðar Jónasdóttur,
fyrrverandi bæjarstjóra á Dalvík,
lendir í skotlínunni þegar útsendar-
ar bandaríska sjónvarpsrisans HBO
hafa breytt pósthúsinu í miðbæn-
um í lögreglustöð bæjarins Ennis í
Alaska, sögusviði bandarísku saka-
málaþáttanna True Detective: Night
Country.
„Þannig háttar til að ég á hús sem
er akkúrat hérna í miðbænum og
lendir í skotlínu þegar kvikmynda-
tökurnar byrja og ég held að þá þyki
það bara of fallegt,“ segir Svanfríður.
„Pósthúsið hérna handan við
götuna verður lögreglustöðin í þátt-
unum þannig að það þyrfti sem sagt
að setja húsið í dulargervi,“ segir
Svanfríður sem telur víst að fína
steinhúsið hennar frá 1929 sé of
fallegt fyrir drungalega sviðsmynd
þáttanna.
Ekki hægt að
segja nei
Sva nf r íðu r sagði
frá því á Facebook
í gær að verið væri
að „setja ramma á
húsið mitt svo hægt verði að breyta
þessu fína steinhúsi frá 1929 í
timburhjall.“ Þá fylgdi sögunni
að þetta þýddi þó ekki að hún
yrði innilokuð á meðan tökur
væru í gangi því hún kæmist út
á austurhlið hússins.
„Auðvitað segir maður bara
já. Það er ekki annað hægt. Ég
meina, maður getur ekki verið
svo tíkarlegur að segja bara
nei,“ segir alþingiskonan
fyrrverandi sem samþykkti
fúslega að fegurð húss-
ins yrði tónuð tíma-
bundið niður, því
breytt í timburhjall
og að rómantísk
girðingin sunnan
hússins yrði báru-
járnsklædd í list-
rænum tilgangi.
Svanfríður segist aðspurð gera
ráð fyrir að steinhúsið hennar verið
timburhjallur í hálfan mánuð eða
svo enda hefjist tökurnar sjálfar
ekki fyrr en um mánaðamótin.
Jól í febrúar
Þá verður stórleikkonan Jodie Fost-
er líklega tíður gestur á pósthúsinu
og nágranni Svanfríðar en hún er í
aðalhlutverki rannsóknarlögreglu-
konunnar Liz Danvers.
„Þetta er bara mjög skemmtilegt.
Upplyfting í skammdeginu,“ segir
Svanfríður og bætir við að þótt
Dalvík sé mikill jólabær
þá vinni liðið frá HBO
nú hörðum höndum
að því að magna
þ á s t e m n i ng u
enn frekar með
hressilegri við-
bót af amerísku
jólaskrauti. n
Jodie Foster breytir Dalvík í
Alaska og steinhúsi Svanfríðar í
timburkofa. SkjáSkot/ja.iS
26 lífið FRÉTTABLAÐIÐ 24. JAnúAR 2023
ÞRiðJUDAGUR