Fréttablaðið - 24.01.2023, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 24.01.2023, Blaðsíða 16
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit- stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Guðmundur Hilmarsson, gummih@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is, s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768 Útgefandi: Torg ehf Ábyrgðarmaður: Jón Þórisson Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103. Guðrúnu tókst ekki að tryggja sér fullan keppnisrétt eftir að hún hafnaði í 42. sæti á lokaúrtök- umótinu sem fram fór á La Manga á Spáni í síðasta mánuði. Hún hefði þurft að enda á meðal 20 efstu á mótinu til að halda keppnisrétti sínum en þar sem henni tókst það ekki verður hún með keppnisrétt í styrkleikaflokki 16 á LET-Evr- ópumótaröðinni ár. Hún kemur til með að taka þátt í mörgum mótum á mótaröðinni en ekki eins mörgum og þeir kylfingar sem náðu að enda í 20 efstu sætunum. Guðrún varð fjórða íslenska konan til að komast inn í LET-mótaröðina á eftir Ólöfu Maríu Jónsdóttur, Ólafíu Þórunni Kristinsdóttur og Valdísi Þóru Jónsdóttur. Guðrún tók þátt í 16 mótum á LET-mótaröðinni á síðasta ári. Besti árangur hennar var 27. sæti á móti í Ástralíu og 10. sæti í liða- keppni sem fram fór í Taílandi. Fréttablaðið sló á þráðinn til Guðrúnar þar sem hún var stödd á Spáni að undirbúa heimferð en Guðrún var þar ásamt öðrum atvinnukylfingum frá Íslandi og landsliðshópi Golfsambands Íslands við æfingar á Hacienda Del Alamo golfsvæðinu á Spáni. Var svolítið upp og niður „Í hreinskilni sagt þá segi ég nei,“ segir Guðrún þegar hún er spurð hvort hún sé ánægð með árangur sinn á síðasta tímabili. „Þetta var svolítið mikið upp og niður hjá mér. Það var margt gott sem ég gerði en annað sem var lélegt á móti. Það má því segja að þetta hafi verið sveiflukennt ár hjá mér,“ segir Guðrún, sem hefur í þrígang hampað Íslandsmeistaratitlinum í höggleik, 2018, 2019 og 2020. Guðrún segir að hún hafi ætlað sér meira á tímabilinu en raun bar vitni. „Ég neita því ekki að ég ætl- aði mér meira. Ég átti ágætu gengi að fagna til að byrja með en ég datt svo aðeins niður. En ég var ánægð með hvernig ég endaði tímabilið á lokamótinu sem gefur mér ágætis rétt fyrir þetta ár. Ég verð að sjá til hvernig þetta tímabil þróast og hvernig þetta kemur til með að spilast fyrir mig. Það yrði frábært að ná að vinna sig upp listann með góðri frammistöðu í fyrstu mótum ársins og eiga þannig möguleika á að keppa á fleiri stærri mótum. Ég mun mæta tvíefld til leiks,“ segir Guðrún. Þegar vel gengur opnast tækifæri Guðrún stoppar stutt við á Íslandi en hún heldur utan í lok mánaðarins og tekur þátt í fyrsta móti í mótaröðinni í Kenía 2. til 5. febrúar. Um markmið hennar á þessu ári segir Guðrún: „Já, já, ég er alveg búin að setja mér markmið en þetta er svolítið Guðmundur Hilmarsson gummih @frettabladid.is Guðrún ásamt föður sínum Björgvini Sigur- bergssyni sem er margfaldur Íslandsmeistari í golfi. MYNDIR/LET Guðrún að undirbúa sig undir að pútta á móti í Svíþjóð. Guðrún var útnefnd íþróttakona Hafnarfjarðar og hér er hún á verðlauna- hátíðinni ásamt Rósu Guðbjartsdóttur bæjarstjóra og Antoni Sveini McKee, sem var valinn íþróttakarl Hafnarfjarðar. MYND/HAFNARFJARÐARBÆR erfitt vegna óvissunnar um það hvaða mótum ég fæ að taka þátt í. Markmið mitt til að byrja með er að nýta vel þau tækifæri sem ég fæ án þess að setja einhverja pressu á mig sjálfa. Þegar vel gengur opnast alltaf einhver önnur tækifæri í hverju sem þú gerir.“ Nú ert þú búin að vera atvinnu- kylfingur frá árinu 2018. Hefur þetta verið erfitt? „Þetta er heilt yfir náttúrulega algjört hark og stundum furðar maður sig á því hvað maður er að gera. Það góða sem stendur klár- lega upp úr er að þetta er ótrúlega gaman. Ég elska það að spila golf og fá að gera það nánast á hverjum degi á hreint ótrúlegum stöðum með skemmtilegu fólki er algjör draumur,“ segir Guðrún. Spurð hvernig henni gangi að ná endum saman fjárhagslega segir hún: „Ég er með alveg frábært bakland og það er fullt af fólki sem sýnir mér stuðning. Það er alltaf erfitt að fá pening og persónulega finnst mér erfitt að spyrja fólk um pening. Minn stærsti styrktaraðili er Forskot sem er afrekssjóður Golfsambands Íslands. Án hans væri ég ekki á þeim stað sem ég er í dag og gæti í raun ekki verið að gera það sem ég er að gera. Ég er mjög þakklát fólkinu sem er að styrkja mig,“ segir Guðrún. Getur þú einbeitt þér alfarið að golfinu eða þarft þú að vinna með því? „Þegar ég er heima á Íslandi þá tek ég vaktir inni á milli í versluninni Kúnígúnd í Kringlunni og vinn þar í jólavertíðinni. Mér finnst frábært að gera allt annað en að spila og æfa golf og gott að geta fengið smá pening í vasann.“ Guðrún lauk stúdentsprófi við Flensborgarskólann í Hafnarfirði og eftir það fór hún Bandaríkjanna og kláraði BS í hreyfifræði. „Þetta tengist mikið íþróttum og er svona í áttina að sjúkraþjálfun. Ég hafði mjög gaman af þessu námi og ég get alveg séð það fyrir mér einhvern daginn að halda áfram á þessu sviði. Það hefur líka hjálpað mér sem íþróttamanni að læra þetta.“ Pabbinn ekki lengur að þjálfa Guðrún byrjaði snemma að munda golfkylfurnar en frá tíu ára aldri hefur hún stundað golf- íþróttina. Faðir hennar, Björgvin Sigurbergsson, hefur verið hennar helsti þjálfari í gegnum tíðina. Björgvin var um árabil einn fremsti kylfingur landsins og varð fjórum sinnum Íslandsmeistari og hefur í fjölda ára sinnt golf- kennslu. „Pabbi hefur verið minn aðal- leiðbeinandi frá því ég var lítil. Hann hætti í golf þjálfun fyrir um þremur árum síðan en hann hélt áfram að vinna með mér. Í haust varð hins vegar breyting á og núna er ég að vinna með Nökkva Gunnarssyni. Mér fannst kominn tími á breytingu og fyrst pabbi var búinn að draga sig út úr golf umhverfinu þá fannst mér ég þurfa að breyta til. Hann verður hins vegar alltaf til staðar fyrir mig en þjálfari minn í dag er Nökkvi.“ Guðrún var í síðasta mánuði krýnd íþróttakona Hafnarfjarðar og hreppti þann titil þriðja árið í röð. „Það var mikill heiður og gott „pepp“ inn í nýja árið fyrir mig að hljóta þessa viðurkenningu. Ég vann í tvígang þessi verðlaun í Covid. Þá var ekki hægt að halda verðlaunahátíð en það tókst núna og það var mjög skemmtilegt að taka á móti verðlaununum í hátíðarstemningu.“ n Guðrún Brá segist hafa ætl- að sér meira á síðasta tímabili en raun bar vitni. Hún segir að árið í fyrra hafi verið sveiflukennt hjá sér. 2 kynningarblað A L LT 24. janúar 2023 ÞRIÐJUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.