Fréttablaðið - 24.01.2023, Blaðsíða 15
KYNN INGARBLAÐ
ALLT
ÞRIÐJUDAGUR 24. janúar 2023
Elska það að spila golf
Guðrún Brá Björgvinsdóttir, atvinnukylfingur úr Keili, er byrjuð að undirbúa sig fyrir kom-
andi tímabil en eftir að hafa haft fullan keppnisrétt á LET-Evrópumótaröðinni frá árinu
2020 verður hún með takmarkaðan keppnisrétt í ár. 2
Guðrún Bá segist ætla mæa tví efldiliks húnefur tí mabili ð í Kení í by r j un feb rúa r. MYND/LET
starri@frettabladid.is
Fyrstu tónleikar ársins í hádegis
tónleikaröðinni Kúnstpásu verða í
hádeginu í dag, þriðjudag, í Hörpu.
Í þessari tónleikaröð koma fram
margir af þekktustu söngvurum
þjóðarinnar, ásamt yngri söngv
urum sem eru að kynna sig til leiks
á óperusviðinu.
Í dag eru það söngkonurnar og
frænkurnar Hrafnhildur Björns
dóttir og Karin Torbjörnsdóttir,
ásamt píanóleikaranum Martyn
Parkes, sem munu flytja nokkra
þekkta dúetta auk þess sem
nokkrar aríur fá að fylgja með,
segir Hrafnhildur. „Tónleikarnir
bera heitið Dúett dagsins og við
munum bjóða upp á fjölbreytta
og skemmtilega dagskrá þar sem
meðal annars má heyra verk eftir
Monteverdi, Mozart, Handel og
Donnizetti.“
Æfingar gengið vel
Hrafnhildur býr á Englandi en
Karin býr í Tékklandi. „Ég ákvað
því að heimsækja Manchester
þar sem þau búa svo við gætum
æft saman en æfingar hafa gengið
mjög vel,“ segir Karin. „Markmið
okkar er að kynna klassíska tónlist
fyrir fólki og vonandi náum við
aðeins að lífga upp á janúarmán
uðinn. Meðal klassískra dúetta
verða verk sem gestir þekkja úr
kvikmyndum og auglýsingum.“
Tónleikarnir verða haldnir í
Norðurljósasal Hörpu og aðgangur
er ókeypis. Nánar á harpa.is n
Ætla að lífga upp á
dimman janúar
F.v. eru Karin Torbjörnsdóttir, Hrafn-
hildur Björnsdóttir og Martyn Parkes.
Alla daga
gegn kulda og sól
Apótek, Hagkaup og Fjarðarkaup
www.celsus.is