Vesturland

Ukioqatigiit

Vesturland - 01.12.1993, Qupperneq 5

Vesturland - 01.12.1993, Qupperneq 5
VESTURLAND Blaö vestfirskra sjálfstœðismanna 5 FLUGELDASALA Hin árlega flugeldasala Björgunarsveitarinnar TINDA verður í Slysavarnarhúsinu Hnífsdal og er opnunartími sem hér segir: Þriðjudag 28.des. frá kll 3:00 - 20:00 Miðvikudag 29.des. frá kl 10:00 - 22:00 Fimmtudag 30. des. frá kl 10:00 - 22:00 Föstudag 31.des. frá kl 10:00-15:00 SVFÍ Björgunarsveitin TINDAR Hnífsdal „Margir hafa það mælt að fleira sé skrifað um stjórnmál hér á landi en þarflegt sé og minna að gæðum en þörf væri á. Hitt hafa þó fleiri mælt að hér á landi væri einna til- finnanlegust þörf á blöðum sem laus væru við alla þá samábyrgð og öll höft stétta og flokkshagsmuna og hefðu jafnframt þekkingu og einurð til þess að halda fram hve- rju því sem landi voru og þjóð er hollt og nauðsynlegt hvort sem það er vinsælt eða óvinsælt og víttu það sem miður er gert án tillits til þess hver á í hlut. Það er þá fyrst af öllu ætlun þessa blaðs að legga fram sinn skerf til þess að bæta úr þeirri þörf sem að ofan er nefnd.“ Rétturinn til þess að hafa skoðanir Þannig komst Sigurður Krist- jánsson að orði þegar hann sem ritst- jóri blaðsins fylgdi því úr hlaði 21. ágúst 1923. Þar með markaði hinn nýji ritstjóri blaðinu hugmyndalegan sess. Athyglisvert er á hvern veg Si- gurður skrifar. Hann legurr áherslu á að blaðið sé sjálfstætt, en um leið að skoðanir þess séu skýrar. Þegar Vesturland minntist 60 ára afmælisins meðjólablaðinu 1983, skrifaði sá er hér stýrir penna ítarlega grein um blaðið. Þar var rækileg grein gerð fyrir tilurð blaðsins og ví- sast í þá umfjöllun hér. Þar var meðal annars sagt svo um framangreind orð Sigurðar Kristjánssonar: „I sama mund og Sigurður Kristjánsson setur fram ákveðnar skoðanir um ritstjórnarlegt frjálsræði, túlkar hann skoðanir blaðs þess sem hann ritstýrir. Hann segir með öðrum orðum að í ritstjórnarlegu sjálfstæði hans felist rétturinn til þess að hafa skoðanir; fylgja þeim eftir og berjast fyrir þeim.“ Barn síns tíma Vesturland er að sjálfsögðu all- taf barn síns tíma. Hugmyndafræði Sigurðar Kristjánssonar var sú hug- myndafræði sem Jón Þorláksson hélt fram og hefur mótað Sjálfstæðisflok- kinn æ síðan. Blaðið var íhaldssamt í besta skilningi þess hugtaks. Vildi standa vörð um gróin og æskileg gildi, „sem reynslan hafði sniðið eftir eðlilegum vexti“, eins og ritstjórinn orðaði það. En einnig var Vesturland frjálslynt í afstöðu sinni til atvinnu- lífsins og hvatti til frjálsræðis og svi- grúms atvinnulífsins á sem flestum sviðum. í þessum anda hefur Vesturland unnið æ síðan. Ritstjórar þess hafa verið æði margir. Tfðum hefur blaðið verið gefið út án þess að aðstanden- dur þess hafi ætlast til peninga- greiðslna. Það hefur skiljanlega komið niður á tíðni útgáfunnar og fjölbreytninni. Sigurður Kristjánsson flutti suður árið 1930. Þá tók Sjálfstæðis- flokkurinn við útgáfunni ári eftir að Sjálfstæðisflokkurinn var stofnaður. Var blaðið í höndum ísfirskra sjálfs- tæðismanna allt til ársins 1963 er Kjördæmisráð Sjálfstæðisflokksins á Vestfjörðum var stofnað og tók við blaðinu. hefur það annast útgáfuna æ sfðan. 70 ára saga Á eftir Sigurði Kristjánssyni tók við blaðinu Loftur Gunnarsson kaupmaður 1930 - 1931, Jón Gríms- son málflutningsmaður 1931 - 1932, Steinn Emilsson jarðfræðingur 1932 - 1933. Arngrímur Fr. Bjarnason kaupmaðurá Isaftrði 1933 - 1941 og Sigurður Bjarnason frá Vigur alþing- ismaður 1941 - 1959. Vegna fjarvista Sigurðar sakir þingmennsku voru einnig ritstjórar og ábyrgðarmenn á þessum tíma þeir Sigurður Halldórs- son bæjarstjóri, Ásberg Sigurðsson sýslumaður en alveg sérstaklega Matthías Bjarnason þá bæjarfulltrúi, Fjórir fyrrverandi ritstjórar Vesturlands. Einar K. Guðfinnsson, Matthías Bjarnason, Hlynur Þór Magnússon og Sigurður Bjarnason. Ljósmynd: G u n n a r Haallsson. Vesturland hefur tekið málefnalega forystu Vesturland hefur spjarað sig í 70 ár. Það hefur verið misjafnlega hresst eins og gengur. Nú lýtur það stjórn en síðar alþingismaður og ráðherra. Matthías Bjarnason var síðan einn ritstjóri blaðsins. Á eftir honum gegndi ritstjórastarfinu Guðfinnur Magnússon skrifstofumaður og svei- tarstjóri. Högni Torfason var síðan ráðinn ritstjóri blaðsins árið 1963 og annaðist hann það verk til ársins 1968. Á þeim tíma kom það hvað tí- ðast út. Á árunum sem í hönd fóru voru þeir Finnur Th. Jónsson og Guðmundur Agnarsson þá skrifsto- fumenn í Bolungarvík ábyrgðarmenn blaðsins. Högni Torfason sá þó tíðum um útgáfuna, ekki síst jólablöð og blöð sem gefin voru út í aðdraganda kosninga. Veturinn 1974 - 1975 ön- nuðust undirritaður og Sigurður Grímsson síðar kvikmyndagerðar- maður útgáfuna. Um sumarið 1975 tók Úlfar Ágústsson kaupmaður við blaðinu og gaf það út fram á árið 1977. Þá var undirritaður enn fenginn til þess að ritstýra þvf og gerði það með hléum til ársins 1991. Sigurður Stefánsson hótelstjóri á ísafirði gaf út tvö tölublöð á árinu 1980 - 1981, vegna fjarveru undirritaðs við nám erlendis. Ásgeir Jakobsson rithöfun- dur ritstýrði blöðum sem gefin voru út í kosningabaráttu vegna sveitarst- jórnarkosninga árið 1978. Árið 1987 var Hlynur Þór Magnússon ráðinn ritstjóri og efldi hann blaðið mjög. Kom það út vikulega uns hann réðist til annarra starfa. Þegar undirritaður var kjörinn á þing árið 1991 lýsti ég því yfir að nauðsynlegt væri að fá aðra til ritstjórastarfa. Með nýrri blaðnefnd sem kosin var um haustið komu nýir menn til starfa. Þar voru virkastir þeir Auðunn J. Guðmunds- son á Isafirði, Ásgeir Þór Jónsson í Bolungarvfk og Steinþór Gunnarsson á ísafirði. Allir þessir þrír dugnaðar- forkar hafa staðið fyrir útgáfu blað- sins og notið liðsinnis annarra eins og Jóhanns Olafsonar ísafirði , Björg- vins Björgvinssonar Isafirði og Steinþórs B. Kristjánssonar á Flatey- ri. dugmikils ungs manns Steinþórs Gunnarssonar, sem hefur átt mikinn þátt í að efla það og bæta. Sérstök ástæða er til að fagna því hvernig blaðið hefur tekið upp umræðu í mi- kilvægum málum og haft þar forystu um. Nægir þar að nefna Sjómanna- dagsblað Vesturlands, sem þeir Steinþór og Ásgeir Þór Jónsson rits- týrðu. Fóru þeir félagar um alla Vestfirði og hittu sjómenn og útger- ðarmenn að máli. Er enginn vafi á því að í því blaði megi sjá þverskurð þess sem er efst á baugi og brennur mest á mönnum í sjávarútvegi á Vestfjör- ðum um þessar mundir. Sama er að segja um blað sem gefið var út nú í haust og var helgað sveitarstjómar- málum. Hvergi annars staðar gat að líta jafn ítarlega og skipulega umræðu um sameiningarmál sveitarfélaga og önnur mál sem hæst bar á þeim vett- vangi. Á þennan hátt má hiklaust segja Úlfar S. Ágústsson var ritstjóri Vesturlands á árunum 1975-1977. að blaðið hafi tekið ákveðna málef- nalega forystu. Við vitum að örðugt er um út- gáfu blaða um þessar mundir. Erfið- leikar í þjóðfélaginu gera auglýsing- amarkað torsóttan. Útgáfan hefur því þróast í átt að því að gera blaðið að myndarlegum vettvangi, þó blaðið komi ekki eins oft út. Ég er þeirrar skoðunar að þar hafi tekist vel til. Ég óska forráðamönnum blaðsins vel- farnaðar og veit að þeir munu halda glæsilea á lofti þeim fána sem frum- hverjar blaðsins reistu fyrir sjö tugum ára. Bolungarvík í nóvemberlok, Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður Vesturland í 70 ár

x

Vesturland

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vesturland
https://timarit.is/publication/633

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.