Vesturland

Volume

Vesturland - 01.12.1993, Page 9

Vesturland - 01.12.1993, Page 9
VESTURLAND Blað vestfirskra sjálfstœðismanna 9 F rá blýprenti til tölvutækni - eftir Einar K. Guðfinnsson Vesturland - Vesturlandið blíða - eins og Högni heitinn Torfason kallaði það stundum, spilaði stóra rullu í lífsmynstri mínu um 12 - 15 ára skeið. Það má kannski segja að það hafi með einum eða öðrum hætti verið eitt helsta tómstundastarf mitt um þetta árabil. Hobbí, eins og menn kalla það stundum. Ég var á síðasta ári í Menntas- kólanum veturinn 1974 - 1975, þá þegar orðinn illa plagaður af hinni pólitísku bakteríu. Og einn góðan veðurdag eða vondan, datt okkur Si- gurði Grímssyni nú kvikmyndager- ðarmanni í hug að gaman gæti verið að gefa út Vesturland. Það var svo fastmælum bundið að ég hitti Guð- mund B. Jónsson framkvæmdastjóra í Bolungarvík, sem þá var formaður Kjördæmisráðsins. Hann tók erindi mínu vel. Og innan skamms vorum við Siggi komnir á fulla ferð í útgá- fumálin. Sjálfur hafði ég þá eina reynslu af útgáfumálum, að hafa verið Högna vini mínum Torfasyni til aðstoðar á kosningaskrifstofu vorið 1974 og kom þá eitthvað að útgáfu Vesturlands. Einnig hafði ég eitthvað föndrað við útgáfu skólablaðs. Ritstjórnarreynsla Eftir þetta varð smá hlé á þátt- töku minni við útgáfu Vesturlands, enda hélt ég brott til náms og starfa. Ég skrifaði að vísu eitthvað smávegis fyrir Úlfar Ágústsson meðan hann var ritstjóri. En árið 1977, þegar Úlfar sagði starfinu lausu, var enginn til þess að taka við og djobbið dæmdist eiginlega á mig. Það var svo sem ekki hlaupið að því að gefa út blaðið, samfara námi úti í útlöndum. Ég reyndi þó og tókst að gefa út jólablöð. Og á sumrin tókst mér alltaf að gefa út all nokkur tölu- blöð. , Eftir að ég flutti heim árið 1980, var útgáfan aðgengilegri. Útgáfutíð- nin var samt sem áður alltaf mjög misjöfn. Það fór bókstaflega eftir efnum og aðstæðum. En þó nokkur blöð á ári litu alltaf dagsins Ijós. Og ég gladdist að minnsta kosti yfir því að þetta launalausa hobbí mitt kom jafnan oftar út en önnur málgögn Sjálfstæðisflokksins. Það þótti bara dægilegur árangur. I fyrstu ætlaði ég að fá fullt af fólki til að skrifa í blaðið. Og það verður að segjast að jafnan var mér ljúfmannlega tekið. En verra var það með efndirnar. Reynsla áranna kenn- di mér það að örðugt var að treysta á hið aðsenda efni. Undirritaður komst sem sé fljótt að því að ólíkt fljótlegra var bara að setjast við ritvélargar- minn sinn og hamra efnið frá eigin brjósti og koma í prentsmiðjuna. Mér dugði vel reynsla frá bla- ðamennsku um tveggja ára skeið. Þar lærðist að vera ekki feiminn við hið skrifaða orð og þegar vel gekk dundu orðin eins og vélbyssuskot niður á pappírinn. Þá var bara að koma skri- funum inn á Isafjörð. Stundum skut- laðist maður sjálfur, eða kom blöðu- num með flugrútunni, eða hafði einhver önnur ráð með það. Alla vega hafðist þetta einhvern veginn. Auglýsingaöflun og vinna við að brjóta blaðið Auglýsingaöflunin var tafsöm Einar K. Guðfinnsson á fullu við pikkuna. Einbeittur að vanda. A sjötíu ára afmæli blaðsins læt ég í ljósi vonir um að það megi sem hingað til verða brjóstvörn vestfirskra sjálfstæðismanna. Mál- gagn sem hikar ekki við að tala máli þess fólks sem Vestfírðina býr og trúir á þær hug- sjónir sem brautry- ðjendurnir hófu á loft árið 1923 í Vesturlandi. og stundum þreytandi. En með þeim hringingum kynntist ég mörgu fólki, sem seinna hafa orðið góðir kunningjar og vinir. Við sem fáumst við blaðaútgáfu sem þessa erum þessum forsvarsmönnum fyrir- tækjanna mikið þakklátir fyrir þeira framlag. Mörg fyrstu ritstjóraárin mín kom blaðið í örkum úr prent- smiðjunni. Þá var eftir að brjóta það, bæði svo að hægt væri að bjóða það til sölu og síðan til þess að senda tugum ef ekki hundruðum áskrifenda út um alla Vestfirði og jafnvel víða um land. Það var mikið verk og lei- ðigjarnt. Mörg kvöldin sat ég og braut blaðið. Oft einn, en einnig með hjálp móður minnar. Ég man hvað ég var þakklátur þegar duglegt sjálf- stæðisfólk á Isafirði bauðst til þess að brjóta blaðið fyrir mig og spara mér þannig þá vinnu. Það var mikil hjálp. Mér þótti það þess vegna einhver bestu tíðindin á útgáfuferlinum þegar prentsmiðjan eignaðist brotvél. Frá blýprenti til tölvutækni Þegar ég fyrst kom að blaðinu var blýprentið alls ráðandi. Það var gaman að fylgjast með Búbba prent- ara (Sigurður Jónssonog öllu því heiðursfólki sem í prentsmiðjunni starfaði handleika þá tækni af mikilli list. Seinna hélt offsetttæknin innreið sína. Mörg byrjunarvandamálin þurfti að yfirstíga. Stundum pirraðist ég yfir myndgæðunum. En öllu tóku þeirfeðgar, Búbbi og Árni sonurhans af sinni stóísku ró og kurteisi sem þeim var svo eiginleg. Oft kom það fyrir að þeir leiðréttu prófarkir, staf- setningarvillur og mál. Reynsla þeirra af hinu ritaða máli og kynni við afburða íslenskumenn hafði fyrir margt löngu gert þá handgengna góðri íslensku. Tölvutæknin hefur fyrir löngu hafið innreið sína í prentsmiðjurnar á Isafirði og auðveldað alla blaðaút- gáfu. Nú sendir maður bara efnið á disklingum inn í prentsmiðjuna án þess að starfsmenn hennar þurfi nok- kuð að setja það. Þannig á það líka að vera. Málgagn sem ekki hikar Nú er undirritaður ekki lengur ritstjóri Vesturlands. Vaskir ungir menn eins og þeir er skipa núverandi og fráfarandi ritnefnd stýra mínu gamla blaði og ferst það afar vel. Ég á þó bágt með að sleppa alveg hen- dinni af uppáhaldsblaðinu mínu og hef stundum gantast við strákana um að ég sé eins konar vikapiltur blað- sins! Og til þess að undirstrika það rataði það virðingarheiti inn í haus síðasta tölublaðs. Á sjötíu ára afmæli blaðsins læt ég í ljósi vonir um að það megi sem hingað til verða brjóstvöm vestfir- skra sjálfstæðismanna. Málgagn sem hikar ekki við að tala máli þess fólks sem Vestfirðina býr og trúir á þær hugsjónir sem brautryðjendurnir hófu á loft árið 1923 í Vesturlandi. Einar K. Guðfinnsson Óskum starfsfólki okkar, Viðskiptaóinum og Vestfirðingum öllum g/eðilegra jóta ogfarsxls komancli árs Flatreyarhreppur Tálknafjarðarhreppur Gná hf. Bolungarvík Harötiskur cg Kékari Hnífsdal Hólmadrangur hf. Hólmavík Ágúst og Gísli hf. Verktakar og vélaleiga Patreksfirði Söluskálinn Súðin Súðavík Isafirði Vöruflutningar Hjartar Sigurðssonar Patreksfirði Bensínstöðin ísafirði Sæfrost hf. Bíldudal Kjöt & Fiskur hf. Patreksfirði Hafsteinn Vilhjálmsson UMBOÐSVERSLUN Byggingafélagið Byggir hf. Patreksfirði Fiskiðjan Freyja hf. Bíldudalshreppur Suðureyri

x

Vesturland

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vesturland
https://timarit.is/publication/633

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.