Vesturland

Ukioqatigiit

Vesturland - 01.12.1993, Qupperneq 11

Vesturland - 01.12.1993, Qupperneq 11
VESTURLAND Blað vestfirskra sjálfstœðismanna 11 Patreksfjarðarhöfn. annars eðlis. Þar er um að ræða ákveðna upphæð sem lögð er fram af hálfu fyrirtækis sem er með sinn grundvallarrekstur í því kjördæmi og ljóst er að sú fjárhæð skiptir ekki sköpum í atvinnulífi á Suðurnesjum. Því gera þeir sér grein fyrir, Suður- nesjamenn." - Þingmaður Sjálfstæðistlokks- ins á Vestfjörðum Einar K. Guð- finnson, hefur haldið því fram í fjölmiðlum að kjördæmið hafi orðið fyrir 4 milljarða tekjutapi vegna skerðingar afiaheimilda. Telur þú að þetta kalli á sérstakar aðgerðir af hálfu ríkisstjórnar- innar? ,,Meginmálið er það að staða Vestfjarða sem annarra hefur verið bætt með þeim aðgerðum sem ég nefndi. Hins vegar eru vandamálin þar fleiri en víða annars staðar og reyndar voru þar á ferðinni vandamál í stórum fyrirtækjum áður en til þessarar þorskskerðingar og afla- verðmætishruns kom. Fyrirtækin voru því mjög illa búin við hvers kyns áföllum. Ríkisstjórnin hefur nú í hyggju að fara yfir það í samvinnu við bankana hvernig hægt sé að bregðast við vanda einstakra fyrirtæ- kja á Vestfjörðum. Sértækar aðgerðir eru yfirleitt ekki líklegar til varanlegs árangurs en við höfum, meðal annars með því að úthluta aflaheimildum reynt að milda höggin sem hafa verið þyngst gagnvart Vestfirðingum. Við erum nú að leita slfkra leiða til að auðvelda Vestfirðingum baráttuna en það er náttúrulega ekkert sem getur komið í staðinn fyrir að þorskaflinn aukist á nýjan leik. Eg hafði miklar efasemdir um að nauðsynlegt væri að ganga jafn hart fram í niðurskurði á þorskafla og lagt var til. En sú leið varð ofan á og ég vona svo sannarlega að spár um vaxandi afla á ný rætist þannig að fólk geti farið að byggja á þeim niðurskurði sem þar var nauð- synlegt að grípa til, til þess að byggja fiskistofnana upp á ný.“ Ein mesta vegagerðarstjórn sem setið hefur - Halldór Ulöndal samgönguráð- herra hefur lýst vilja sínum til þess að það verði eitt af tveimur eða þremur forgangsverkefnum í vega- máluni á Islandi að hleypa krafti í uppbyggingu vegarins um Isa- fjarðardjúp. Myndi slík aðgerð, að þínu mati, bæta búsetuskilyrðin á Vestfjörðum? „Eg tel reyndar að vegagerð al- mennt sé til þess fallin að bæta lífs- skilyrði í þessu landi. Það þýðir þó ekki að við getum ráðist í hvað sem er og eytt hverju sem er. Þessi ríkisstjórn hefur þrátt fyrir kreppuna verið ein mesta vegagerðarstjórn sem setið hefur í landinu. Það er vegna þess að við höfum talið skynsamlegt í niður- sveiflunni að setja fjármuni í hluti sem bæru varanlegan ávöxt og kölluðu ekki á rekstur til frambúðar heldur sparnað. Þess vegna höfum við þrátt fyrir niðurskurð og erfiðleika sett mikla peninga í bætta vegi. Menn sjá árangurinn víða. Eg er ekki í vafa um að þetta mun stuðla að lífvænlegri byggð uin land allt. Vegakerfið á Vestfjörðum er erfitt en þar sjá menn fram á betri tíð. Ég ætla ekki að nefna einstaka þætti að öðru leyti en ég treysti vel á leiðsögn samgönguráð- herrans í þessum efnum eins og öðrum á hans sviði." Aðgerðir munu skila árangri á Vestfjörðum - Ef þú reynir að horfa fram á veginn, með framtíð Vestfjarða í huga. Hvernig telur þú að framtíð kjördæmisins verði á næstu árum? „Ég tel að það muni verða mikil umbrot á Vesttjörðum á næstu árum og það muni reyna mikið á fólk og fyrirtæki en ég er einnig sannfærður um að aðgerðir ríkisstjórnarinnar munu skila árangri á Vesttjörðum ekki síður en annars staðar á landinu. Við sjáum mörg tákn þess að fra- mundan séu bjartari tímar. Ekki spillir það fyrir Vestfirðingum að þeir eru duglegir, - þama býr mikið kraftafólk sem liggur vel við sjósókn og hefur dregið björg í hið sameiginlega bú með miklum árangri í gegnum tíðina. Menn mega því ekki missa móðinn þótt á móti hafi blásið. Það er ljóst að kjördæmið og atvinnulífið hlýtur að leita leiða til að styrkjast með auknu samstarfi sem bætt vegaþjónusta innan einstakra svæða á Vestfjörðum á að geta stuðlað að auk aukinnar hagræðingar. Það mun reyna á stað- festu manna, útsjónarsemi og dugnað en ég treysti Vestfirðingum með lið- styrk annarra til að komast í gegnum þessa erfiðleika." Viðtal og myndir: Steinþór Gunnarsson. Davíð í „aksjón4'. Þarna sat fréttamður Stöðvar 2 fyrir honum niður í Alþingi áður en hann fór á þingflokks- fund. ósfcum viðskiptavinumgíeðitegrajóta ogfarsæís komandi árs, meðþökjffyrir viðs((iptin á árinu sem er að Cíða. Sparisjóður Þingeyrarhrepps Óskum starfsfólki og viðskiptavinum gleðilegra jóla, árs og friðar, og þökkum samstarf og viðskipti á líðandi ári (JpGUNNVÖR HF. ‘Bestujóía- og nýárstfyeðjur tiC viðskiptavina okjjar, starfsfóCCs og annarra ‘Vestfirðinga, meðþaCffæti fyrir árið sem er að Cpeðja. FROSTI hf. Súðavík Gleðileg jól og farsælt komandi ár. Þökkum viðskiptin á líðandi ári Sendum okkar bestu óskir um gleðiiega jóla- og nýárshátíð og þökkum árið sem er að líða. ÓsCum viðsCjptavinum oCfgr og starfsfóCkj gCeðiCegrajóCa, árs ogfriðar, og þöCfum samstarf og viðsCipti á Cíðandi ári. Hraðfrystihúsið hf. Hnífsdal Gleðileg jól og farsælt komandi ár. Þökkum viðskiptin á líðandi ári. Eurocard é íslandi ÓsCum starfsfóCCi oCjjar og viðsCiptavinum gCeðiCegrajóCa, árs ogfriðar, og þöCfum samstarf og viðsCipti á Cíðandi ári. Mjölvinnslan hf. Hnífsdal

x

Vesturland

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vesturland
https://timarit.is/publication/633

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.