Vesturland - 01.12.1993, Qupperneq 16
16
VESTURLAND Blað vestfirskra sjálfstœðismanna
Höldum vöku okkar
Vestfirðingar
- eftir Sigurð Bjarnason frá Vigur.
Þegar Vesturland hóf göngu sína
fyrir 70 árum var tilgangur þess fyrst
og fremst að vera málsvari frjáls-
lyndrar borgaralegrar stefnu í ís-
lenskum þjóðmálum.
Fyrsti ritstjóri þess var Sigurður
Kristjánsson, sem þá hafði um skeið
verið kennari á Isafirði og í Bolung-
arvík, gáfaður og harðskeyttur þing-
eyingur.
Vöktu skrif hans í Vesturland
þegar athygli á blaðinu. Stjórnmála-
baráttan var um þessar mundir hörð
á Vestfjörðum, ekki síst hér við Djúp.
Alþýðuflokkurinn var þá í sókn í
þessum héruðum. Var Isafjörður því
stundum kallaður „Rauði bærinn“.
Um skeið fékk Alþýðuflokkurinn
þrjá þingmenn kjöma á Vestijörðum,
Isafjarðarkaupstað, Norður-ísafjarð-
arsýslu og Vestur-ísafjarðarsýslu.
Sjálfstæðisflokkurinn átti þó
lengstum öflugt fylgi í þessum hér-
uðum.
Hika ég ekki við að staðhæfa að
málafylgja blaðs þeirra hafi átt
nokkurn þátt í því.
Vesturland var ekki aðeins póli-
tískt málgagn.
Það birti margar greinar um al-
menn hagsmunamál Vestfirðinga,
sem það studdi ötullega, skrifaði um
íslenskar bókmenntir og sögu. Það lét
sig í stuttu máli sagt ekkert mannlegt
óviðkomandi. Einnig reyndi það að
gera innlendum og erlendum fréttum
nokkur skil.
Sigurður Bjarnason.
Hika ég ekki við að
staðhæfa að mála-
fylgja blaðs þeirra
hafí átt nokkurn
þátt í því.
Ef litið er til baka verður ljóst að
Vestfirðingar voru meðal þeirra
fyrstu, sem hófust handa um útgáfu-
starfsemi þegar þjóðin var að vakna
til nýs tíma og baráttu fyrir frelsi og
framförum.
Nægir þar að nefna Olaf Olavius
frá Eyri í Seyðisfirði, Jón Einksson
og Jón Sigurðsson, Skúla Thoroddsen
séra Sigurð og prentsmiðjuna í
Hrappsey, á Isafirði og í Flatey, að
ógleymdri stórbrotinni útgáfustarf-
semi Jóns Sigurðssonar og þjóðvilja
þeirra félaga Skúla og séra Sigurðar.
Vesturland, Skutull og Baldur voru
börn hins nýja tíma, ásamt fleiri
blöðum, sem ennþá kveðja sér hljóðs
hér vestra, þótt stórblöðin í höfuð-
borginni nái nú til flestra heimila,
einnig á Vestfjörðum.
En rödd héraðsblaðanna víðsvegar
um landið, utan höfuðborgarsvæðis-
ins, má ekki þagna.
Þau hafa þýðingarmiklu hlutverki
að gegna, ekki síst þegar fram-
leiðslustarfsemi strjálbýlisins á f vök
að verjast.
Menningarlegu hlutverki þeirra má
heldur ekki gleyma.
Minnumst þess góðir Vestfirðing-
ar.
Höldum vöku okkar á óróasömum
tímum.
Þótt aukinn tækni á sjó og landi
boði margvíslegar umbætur og góð
lífskjör má sálin ekki dragast aftur úr.
Eg óska Vesturlandi, mínu gamla
blaði gagns og þroska í þágu Vest-
fiðinga og málstað okkar í heild.
Isafjarðarkaupstaður
s
Bœjarstjórn Isa-
fjarðar óskar Is-
firðingum gleði-
legra jóla og gcefu-
ríks komandi árs
og þakkar þeim
fyrir árið, sem er
að líða.
s
Bæjarstjórinn á Isafirði
Óskum starfsfólki okkar og
viðskiptavinum gleðilegra
jóla, árs og friðar og
þökkum jafnframt samstarf
og viðskipti á líðandi ári.
. ISHÚSFÉLAC
ISFIROINGA HF.
Óskum starfsfólki okkar, ViöskiptaVimim og Vcstfirðingum
öllum gkóilegjxt jóla ogfarsxts komandi árs
EFNALAUGIN
ALEERT
TRYGGVI TRYGGVASON & CO
AÐALSTRÆTI 24 400 ISAFJÖRDUR ICELAND
ísafjarðar
apútek
Olíufélag útvegsmanna hf.
MJ ÓLKURSAMLAG
ÍSFIRÐINGA
LÍFEYRISSJÓÐUR VESTFIRÐINGA
BRUNNGÖTU 7 — 400 ÍSAFIRÐI
Sparisjóður Önundarfjarðar
ÞRYMUR
VÉLSMIÐJA
ISTAK
og starfsmenn þeirra
við jarðgangagerð
Sparisjóður Mýrhreppinga
Sparisjóður Sógfirðinga
Sandfell hf.
SJOVAljIIuALIVIENNAR