Fjarðarfréttir - 02.02.2023, Síða 4
4 www.fjardarfrettir.is FJARÐARFRÉTTIR | FIMMTUDAGUR 2. FEBRÚAR 2023
Vetrarhátíð verður haldin dagana
2.–4. febrúar og fer hátíðin fram í öllum
sex sveitarfélögum höfuðborgar svæð
isins. Þessi hátíð ljóss og myrkurs
samanstendur af þrem meginstoðum:
Safnanótt, Sundlauganótt og ljósalist
ásamt fjölbreyttum viðburðum þar sem
fjöldi listamanna tekur þátt í að skapa
einstaka stemningu á höfuðborgar
svæðinu.
SAFNANÓTT FÖSTUDAG
KL. 18-23
Á Byggðasafni Hafnarfjarðar, Bóka
safni Hafnarfjarðar og í Hafnarborg
verður boðið upp á skemmtilega og
fjölbreytta dagskrá. Fjölmörg söfn opna
dyr sínar og bjóða upp á skemmtilega
og fjölbreytta dagskrá. Lögð verður
áhersla á að bjóða upp á óhefðbundna,
litríka og líflega viðburði þetta kvöld og
veita gestum nýja sýn á söfnin. Safna
nótt var síðast haldin árið 2020 og
eftirvæntingin því mikil. Íbúar og gestir
á öllum aldri geta notið Safnanætur
fram eftir kvöldi sér að kostnaðarlausu.
Á Bókasafni Hafnarfjarðar mæta
andlitsmálarar og Blaðrarinn vinsæli,
sagan Tindátarnir verður sögð með
skuggabrúðuleikhúsi af listamönnum
Kómedíuleikhússins og fram fer
rómantískur og (ó)huggulegur bók
mennta viðburður þar sem glæpa
sagnadrottningar og nýliði ársins í
sakamálum spjalla.
Á Byggðasafninu verða leikarar á
sveimi um Pakkhúsið og glæða safnið
lífi, hægt verður að skoða magnaða
muni í myrkrinu í Beggubúð og
tónlistarhópurinn Klassík heldur
tónleika kl. 19:30.
Í Hafnarborg verður verki eftir
myndlistarkonuna Þórdísi Erlu Zoëga
varpað á gafl Hafnarborgar, Sunna
Gunnlaugs Trio kemur fram á
síðdegistónleikum kl. 18 og Anna Rós
Lárusdóttir býður upp á jógastund fyrir
alla innan um skúlptúra listakonunnar
Sóleyjar Eiríksdóttur.
SUNDLAUGANÓTT Á
LAUGARDAG KL. 17-22
Ásvallalaug verður opin fram á kvöld
og í boði skemmtileg dagskrá en frítt
verður í sund í þrettán sundlaugum á
höfuðborgarsvæðinu. Ásvallalaug er í
hópi þeirra. Uppákomur í laugunum
verða af margvíslegum toga og munu
gestir fá að upplifa einstaka og
óvenjulega kvöldstund í mögnuðu
myrkri.
Gestir í Ásvallalaug fá að upplifa
öðruvísi kvöldstund í lauginni þar sem
ljós, myrkur og gleði verða allsráðandi.
Gestir eru hvattir til að taka þátt með
því að dansa og syngja til að byrja með
en slaka svo á og njóta stundarinnar
þegar líða tekur á kvöldið. Síkátu
zúmbínurnar hefja dagskrána á Aqua
zumba, Sundfélag Hafnarfjarðar stýrir
bombukeppni um hver nær stærstu
gusunni og Kvikmyndasafn Íslands
býður upp á sundbíó og sýnir lifandi
myndefni úr safnkosti meðal annars frá
Hafnarfirði og landinu öllu á risaskjá.
LJÓSASLÓÐ OG
TÍMABUNDIÐ LISTAVERK
Í tilefni Safnanætur verður verki eftir
myndlistarkonuna Þórdísi Erlu Zoëga
varpað á gafl Hafnarborgar, sem og
innri vegg safnsins, svo vegfarendur,
gestir og fólk í nágrenni þess fái notið
þessa tímabundna listaverks.
Þá verður ljósaslóð í einkennislitum
Vetrarhátíðar, grænum og fjólubláum,
sett upp í Hellisgerði í tilefni af hátíðinni
og logar slóðin alla helgina.
Sjá má alla dagskrá Vetrarhátíða á
www.vetrarhatid.is
Vetrarhátíð á höfuðborgarsvæðinu
Hefst í dag með fjölbreyttri dagskrá - Safnanótt á morgun og Sundlauganótt á laugardag
VESTURGÖTU 4 | WWW.AHANSEN.IS | SÍMI 565 1130
FERMINGAR 2023
Veitingahúsið A. Hansen hefur allt
sem þarf til að gera fermingarveisluna
enn minnisstæðari.
Ennþá dagar lausir.
Hafið samband og fáið nánari upplýsingar.
Hafnarfjarðarbær endurnýjaði ný ver ið
samning við Bergið headspace, ráð gjafa
og stuðningssetur fyrir ungt fólk að 25
ára aldri. Bergið er með útibú í Hamrin
um, ungmenna húsi Hafnar fjarðar og
hefur verið ungu fólki aðgengilegt frá því
árið 2021 eða þegar Hafnar
fjörð ur fyrst undirritaði samn
ing við Bergið að tillögu Ung
mennaráðs Hafnar fjarðar.
Markmið Bergsins er að bjóða
upp á þjónustu sem stendur
öllum opin, áhersla er á
stuðning, fræðslu og ráðgjöf. Í
Berginu er lagt upp með að
skapa notalegt og öruggt
umhverfi fyrir ungt fólk sem
þarf aðstoð fagfólks með fjölbreytta
reynslu í heimabyggð alla mánudaga.
Unga fólkið okkar sem sækir ung
mennahúsið Hamarinn hefur verið
duglegt að sækja þjónustu Bergsins en á
síðasta ári leituðu tugir einstaklinga
eftir þjónustunni og um 150 viðtöl voru
veitt. Starfsfólk Bergsins metur hvort
einstaklingurinn þurfi dýpra inngrip eða
þjónustu sem þá er veitt af sálfræðingum.
STÖNDUM MEÐ UNGA
FÓLKINU OKKAR
Þjónustan er hafnfirskum ung menn
um að kostnaðarlausu og öllum opin.
Vonast er til að þau ungmenni sem telja
sig þurfa ráðgjöf leiti til starfsfólks
Hamarsins sem aðstoðar þau við að
tengjast starfsfólki Bergsins. Unglings
árin eru umrótartími í lífinu og það er
gott og hollt að leita sér ráðgjafar,
spegla reynslu og tilfinningar og ræða
málin við utanað komandi í
trúnaði og trausti sem er eitt
af lykil gildum Bergsins.
Að vera ungur einstaklingur
í dag að fóta sig í flóknum
heimi getur verið erfitt en oft
þarf ekki annað en að tala við
einhvern og ræða málin.
Stundum er það þó ekki nóg
og þá er gott að hafa aðgengi
sem þetta og ekki síður
mikilvægt fyrir foreldra og forráðamenn
að vera meðvituð um þessa þjónustu.
Bergið og Hamarinn eru öllum ung
mennum opið, þar er einnig hægt að
hitta starfsfólk Hamarsins og annað
ungt fólk og taka þátt í fjölbreyttu
félags lífi sem þar er í boði. Með þessu
erum við að tryggja jafnt aðgengi fyrir
alla og standa með unga fólkinu okkar
sem er okkur svo mikilvægt.
Höfundur er formaður
fræðsluráðs Hafnarfjarðar.
Bergið Headspace
og Hamarinn
Kristín
Thoroddsen
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n