Fjarðarfréttir - 02.02.2023, Page 10
10 www.fjardarfrettir.is FJARÐARFRÉTTIR | FIMMTUDAGUR 2. FEBRÚAR 2023
Einu sinni voru sjoppur á hverju
horni, margar breyttust í mynd
bandaleigur en flestar eru horfnar ef
bensínstöðvar eru undanskildar.
En þeir Snorri Guðmundsson, Sindri
Þór Jónsson og Jökull Ágúst Jónsson
voru ekki á þeim buxunum að tími
sjoppanna væri liðinn er þeir ákváðu að
opna sjoppu að Flatahrauni 21.
Fékk hún það frumlega nafn, Nýja
sjoppan, enda ekki margar nýjar
sjoppur um þessar mundir.
Að sögn Jökuls Ágústs, sem er
rekstrarstjóri Nýju sjoppunnar, er þetta
bland af sjoppu og skyndibitastað. Þar
er boðið upp á hamborgara, snitsel,
báta, samlokur og nokkrar útfærslur af
pylsum auk þess sem á matseðlinum
má sjá Gelgjufæði, sem er franskar
kartöflur, ostur og sósa.
Þeir hafa reynt að halda verðinu lágu
eins og hefur verið í Bláu sjoppunni í
Starengi, sem er að hluta í eigu sömu
aðila.
Auk hefðbundinna gosdrykkja, bjóða
þeir upp á Mønster gosdrykki sem þeir
flytja sjálfir inn og hafa verið vinsælir.
Nýja sjoppan var opnuð 10. janúar og
hafa matartilboðin verið vinsæl enda
verðin mjög lág að þeirra sögn.
Þeir Sindri og Snorri reka einnig Polo
verslunina að Reykjavíkurvegi 72 en
slík verslun er einnig í hliðarými Nýju
sjoppunnar.
Opið kl. 1022 virka daga, 1122
laugardaga og 1222 á sunnudögum.
Það er Flottborg sem er rekstrarfélag
Nýju sjoppunnar.
Nýja sjoppan hefur opnað við Flatahraun
Segja tíma hverfissjoppunnar ekki liðinn
Sindri Þór Jónsson og Jökull Ágúst Jónsson, tveir af eigendum Nýju sjoppunnar.
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
Nýja sjoppan að Flatahrauni 21, gegnt Kaplakrika.
Erla Björg á
hádegis tónleikum
Á þriðjudaginn kl. 12 eru fyrstu
hádegistónleikar ársins í Hafnarborg en
þá mun Erla Björg Káradóttir, sópran,
koma fram ásamt Antoníu Hevesi,
píanóleikara og listrænum stjórnanda
tónleikaraðarinnar. Tónleikarnir bera
yfir skriftina „Söknuður“ en fluttar
verða aríur úr óperum og óperettum
eftir Massenet, Puccini, Strauss og Jón
Ásgeirsson.
Erla Björg Káradóttir lauk fram
haldsstigi í söng við Tónlistarskólann í
Garðabæ og stundaði síðan
framhalsnám við tónlistarháskólann í
Salzburg, Austurríki. Erla Björg hefur
komið fram á ýmsum tónleikum bæði
hér á landi og erlendis.
Antonía Hevesi, píanóleikari, hefur
frá upphafi verið listrænn stjórnandi
hádegistónleika í Hafnarborg, sem hafa
verið fastur liður í dagskrá safnsins
síðan 2003.
Tónleikarnir hefjast kl. 12 og standa
yfir í um hálfa klukkustund. Tón
leikarnir eru öllum opnir á meðan
húsrúm leyfir. Aðgangur ókeypis.
Erla Björg Káradóttir
Úrskurðarnefnd umhverfis og
auðlindamála felldi þann 20. janúar sl.
úr gildi ákvörðun byggingarfulltrúa
Hafn ar fjarðarkaupstaðar frá 23.
nóvember 2022 um samþykki bygg
ingaráforma um byggingu knatthúss að
Ásvöllum 1.
Tók nefndin fyrir afgreiðslu skipulags
og byggingarfulltrúa Hafn ar fjarðar
kaupstaðar frá 28. september 2022 um
að fela skipulagsfulltrúa að gefa út
framkvæmdaleyfi fyrir jarð vinnu að
Ásvöllum 3–5 og ákvörðunum bygg
ingar fulltrúa Hafnarfjarðar kaup staðar
frá 23. nóvember og 21. desem ber 2022
um samþykki byggingar áforma að
Ásvöllum 1 og Ásvöllum 35. Kröfu um
ógildingu ákvarðana bygg ingafulltrúa
um samþykki byggingar áforma að
Ás völlum 35 frá 21. desember 2022 var
hins vegar vísað frá nefndinni. Kröfu
um ógildingu af greiðslu skipulags og
bygg ingar fulltrúa frá 28. september
2022 um samþykki framkvæmdaleyfis
á sömu lóð var einnig vísað frá
nefndinni.
Telur nefndin verulega annmarka á
máls meðferð og afgreiðslu Hafn arfjarð
ar bæjar vegna knatthúss að Ásvöllum 1
svo mikla að fella verði hana úr gildi.
Byggingarleyfi hafði ekki verið gefið
út þó byggingarfulltrúi hafi samþykkt
byggingaráform án þess að árita aðal
uppdrætti. Þá hefur nefndin ekki fengið
upplýsingar frá Hafnarfjarðar kaupstað
um hvort gefið hafi verið út leyfi fyrir
þeirri jarðvinnu sem þegar er hafin.
Málið var til kynningar á fundi
skipulags og byggingarráðs 26. janúar
sl. en var aðeins lagt fram skv. fundargerð
og var ekki á dagskrá bæjarstjórnar í
gær.
Byggingaráform
knatthúss felld úr gildi
Jarðvegsframkvæmdir hafnar án byggingarleyfis