Veiðimaðurinn - 01.06.1980, Side 10
upp úr vatninu. En þá skeði slysið. í
fyrsta skipti á 14 árum, missti hann takið
á laxi í löndun.“ Ég sagði ekki orð, en
hjartað tók mikla roku um leið og laxinn.
Ummæli Orra verða ekki höfð eftir á
prenti, nema er hann sagði: „Ég hef bara
aldrei tekið á svo þykkum sporði.“
„Þetta er í lagi hann er á ennþá“ sagði
ég. „Ég syndi eftir honum, ef hann dettur
af ‘ sagði Orri. I sömu andrá renndi laxinn
sér upp að bakkanum og nú var ekkert hik,
áður en ég vissi af lá laxinn á bakkanum
og Orri ofan á honum. Við höfðum snör
handtök við að koma tjóðrinu á hann og
negla niður hælinn og brátt lá hann aftur í
ánni, en nú með 2 metra tó í sér. Við vin-
irnir féllumst í faðma og dönsuðum
stríðsdans. „Þú hefðir getað dregið hann
eins og þorsk því að báðir krókarnir voru á
bólakafí“ sagði Orri. „Ég vissi það ekki
meðan ég var að þreyta hann“ sagði ég. Og
það er einmitt lykillinn að öllu ævintýr-
inu.
Viðureignin hafði staðið í 2 klukku-
stundir og tæpir tveir km milli töku-
staðar og löndunarstaðar.
Stórkostlegt ævintýri var á enda og ég
vissi að ég hefði nægar endurminningar
til að ylja mér við á vetrarkvöldum.
Hálfri annarri klukkustund síðar höfðum
við Orri skilað hængnum mínum, sem
reyndist 20 pund og 99 cm og hrygnunni
hans, sem var 17 pund og 92 cm ásamt
þremur öðrum löxum, öllum sprell-
lifandi niður í klakstöð og þannig goldið
Laxá svolítið af skuldinni.
Það voru þreyttir félagar, sem settust
niður við matarborð í veiðihúsinu að A,
en kannski hamingjusamari en nokkru
sinni áður. Lægðin var gengin yfir og
NA-stinningskaldi og rigning barði
húsið að utan. Það gerði ekkert til.
Við vorum alsælir.
FLUGUSTENGUR
Trefjaglerstengur:
ARCTICA
nr. 7 8V21 lína 7
nr. 8 8'/2' lína 8
nr. 9 9' lína 9
nr. 10 10' lína 10
Graphitestengur:
ARCTICA graphite
nr. 85/8 8V21 lína 7/8
nr. 90/9 9' lína 8/9
nr. 90/10 9 lína 9/10
nr. 100/9 10' lína 8/9
Fást í flestum
sportvöruverzlunum
Þorst. Þorsteinsson
8
VEIÐIMAÐURINN