Veiðimaðurinn - 01.06.1980, Side 24

Veiðimaðurinn - 01.06.1980, Side 24
Nýjasta tcekni við laxamerkingar byggist á því að skjóta svokölluðum örmerkjum inn í snjáldur laxaseiðanna. Seiðunum er síðan rennt í gegnum tceki, sem segulmagnar merkið og gerir mögulegt að ná því aftur við endurkomu laxins úr sjó. (Ljósm. Arni Isaksson). ákveða sinn göngutíma. Fjárveiting til að byggja slíka tjörn í stöðinni fékkst þó ekki fyrr en vorið 1978. Sú niðurstaða merkinganna 1975, að mun heppilegra væri að sleppa eins árs seiðum ofan við lónið, þótti stangast mjög á við niðurstöður í sleppingum 1973. En sem betur fer hafði tilraunin verið endur- tekin í merkingum 1976. Sú tilraun leiddi í ljós, eins og fram kemur í töflu 1, að heimtur voru þrisvar sinnum betri í hóp- um, sem sleppt var fyrir neðan lónið. Hér hafði sama tilraunin verið endurtekin tvö ár í röð með algjörlega gagnstæðri út- komu. Var nú ljóst, að hvorug sleppiað- ferðin var nægilega örugg til þess, að hægt væri að treysta henni við sleppingar úr stöðinni, einkum þar sem seiðin voru orðin minni og viðkvæmari í meðhöndlun. Þegar þessi niðurstaða lá fyrir sumarið 1977, hafði þegar verið sleppt merktum seiðum það árið. Eins og áður er getið, leiddi sú slepping í ljós, að þetta sleppi- kerfí hafði gengið sér til húðar og nauðsyn- legt var að gjörbreyta um sleppiaðferð, a.m.k. meðan jarðtjarnir einar voru fyrir hendi í stöðinni. Sleppitjörn við sjóinn var loks byggð vorið 1978. í sleppingu 1978 voru gönguseiðin í fyrsta skipti látin ráða sínum göngutíma, og þar sem vegalengdin í sjóinn úr sleppi- tjörninni var mjög stutt, var mögulegt að fóðra seiði allt þar til þau hurfu í sjóinn. Þessi sleppiaðferð sannaði gildi sitt þegar á fyrsta ári með tæplega 8% meðalheimtum merktra eins árs seiða, sem voru um 25 grömm við merkingu. 7. Göngubúningsmyndun. Eitt atriði, sem mjög mikil áhrif hefur á réttan sleppitíma og jafnvel sleppistað, er framgangur göngubúningsmyndunar, en hann ræðst mikið af hitastigi. I merking- um 1975 kom í ljós, að einn hópur, sem fengið hafði mjög mikinn hita að vorinu gaf verulega betri heimtur en saman- burðarhópar, þegar seiðunum var sleppt í lok apríl. Þannig geta eins árs seiði í eldi verið mjög missnemma tilbúin, eftir því í hvaða hitastigi þau eru alin síðustu 22 VEIÐIMAÐURINN

x

Veiðimaðurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.