Veiðimaðurinn - 01.06.1980, Side 19

Veiðimaðurinn - 01.06.1980, Side 19
M>nd 2. Hcimiur i hlullulli vii> mcOulþyngd g.mguscida mcrkira mcA plasimcrkjum ug (irmcrkjum. • • X X o X r* o - 1972 03 • - 1974 X * 1975 D ly7(’ A - I97X ____ — ('arlin O • t* / o x X □ 10 15 20 1 25 1 30 35 ^40 1 45" 1 5Ö" Meöalþyngd seida í 5 gramma þyngdartlokkum 55 sennilega gera ráð fyrir, að það fóður sé dýrara í framleiðslu. í mynd 3 eru sýndar heimtur bestu hópa eins árs seiða árin 1971-78 ásamt meðalþyngd seiðanna. Fyrir neðan má sjá heimtur sömu seiðahópa sem þyngd heimtra laxa á hvert kíló af seiðum, sem sleppt var i sjóinn, svn og tekjur af kílói slepptra seiða, miðað við verðlag 1979. A myndinni sést, að tekjur eru sam- bærilegar hjá 20 gramma seiðum með 9% heimtur eins og hjá 40 gramma seiðum með 15% heimtur. Af þessu ætti að vera Ijóst, að prósentutölur einar segja ekki alla söguna, þegar um heimtur er að ræða. Eitt atriði enn, sem hefur verið hvati að því að heimtur smárra gönguseiða væru rækilega kannaðar, eru möguleikar, sem opnast hafa til að framleiða gönguseiði á 6 mánuðum og sleppa þeim við þann aldur. Hafbeitarfyrirtæki vestan hafs hafa fyrir alllöngu síðan stytt eldistíma silfurlaxaseiða (coho), sem áður voru alin í 20 gramma þyngd á einu ári, í 6 mánuði. Með flýtingu klaks og upphafsfóðrun um áramót er að skapast grundvöllur hérlendis fyrir því að ná gönguseiðum í 30 gramma þyngd í júní-júlí. Líklegt vaxtarlínurit fyrir slíka seiðaframleiðslu er sýnt á mynd 4. Seiði framleidd á þennan hátt færu sennilega ekki í göngubúning, þó göngustærð væri náð, þar sem þetta hraðeldi er mjög frábrugðið því, sem gerist í náttúrunni, en sennilega yrði kleift með sjódælingu að aðlaga seiðin seltu á nokkrum vikum. Vonir standa til, að slík seltuaðlögunartilraun með hálfsárs seiði (0+) verði framkvæmd í Laxeldisstöðinni í Kollafírði vorið 1980. Hér hafa verið raktar forsendur fyrir því að kanna heimtur smárra göngu- seiða, og er þá ekki úr vegi að lýsa þeirri þróun, sem átt hefur sér stað í Kolla- VEIÐIMAÐURINN 17

x

Veiðimaðurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.