Veiðimaðurinn - 01.06.1980, Side 25
mánuði fyrir sleppingu. Erlendis hefur
verulegum fjármunum verið varið í að
reyna að fínna líffræðilega mælieiningu,
sem gæfi til kynna framgang göngu-
búningsmyndunar, en ekki liggur hag-
kvæm lausn fyrir enn. Af þessum ástæð-
um verður að telja óráðlegt að sleppa
seiðum með mismunandi eldisforsögu út
á sama degi og búast við sambærilegum
heimtum úr öllum hópunum. Mun lík-
legra til árangurs er að setja seiðin í sleppi-
tjörn, sem opnuð er í byrjun göngutíma,
og seiðin síðan látin tínast út í samræmi
við þroska sinn.
III. Niðurlagsorð.
Það ætti að vera ljóst af því, sem hér hefur
verið greint frá, að fjölmargir þættir hafa
haft áhrif á heimtur gönguseiða úr sjó
í Laxeldisstöðina í Kollafírði og samspil
milli þessara þátta er oft mjög flókið. Einn
þáttur, sem veruleg áhrif hefur haft á
árangur, er sú rannsóknaaðstaða sem
fyrir hendi hefur verið í Laxeldisstöð-
inni, bæði með tilliti til eldis og sleppinga.
„Hafa skal það, sem hendi er næst, og
hugsa ekki um það, sem ekki fæst“ sagði
karlinn, sem var að búa til naglasúpuna,
og reyndist það honum vel. En að þurfa
að búa við slíkt í rannsóknastarfsemi er
að sjálfsögðu óviðunandi. Sem betur fer
hefur hér orðið breyting til batnaðar
síðastliðin tvö ár, þó betur megi, ef duga
skal.
Það hefur verið alláberandi í almennri
umræðu um heimtur í Kollafjarðarstöð-
inni, að menn drægju mjög almennar
ályktanir um árangur af heildarheimtum
merktra seiða. Slíkt er raunar fáránlegt
og verður það best skýrt með eftirfarandi
dæmisögu:
í ákveðinni tilraunastöð hafa fengist
eftirfarandi heimtur úr sleppingum:
Sérhannað leitartceki er notað við að finna ognáör-
merkjum úr laxinum þegar hann veiðist (heimtist).
Veiðiuggaklipping er notuð, sem útvortis einkenni
um örmerkingu. Allir veiðiuggaklipptir laxar
eiga því að bera slík merki. (Ljósm.Árniísaksson).
Sleppiár Seiðaslepping Heimtur seiðahópa % Heildarheimtur
Eins árs Hálfs árs Eins árs Hálfs árs Fjöldi Prósent
1980 .... 20 000 20 000 8% 2% 2 000 5%
1981 .... 40 000 8% 3 200 8%
Til viðbótar við upplýsingarnar í töfl-
unni er vitað, að eins árs seiði hafa verið í
framleiðslu í 10 ár og heimtur verið góðar
en hálfs árs seiðunum er verið að sleppa í
fyrsta skipti. Nú er spurningin sú, hvort
árangur sé betri fyrra eða seinna árið.
Það er óumdeilanlegt, að laxafjöldi og
heildarprósenta eru mun hærri seinna
árið, og allur þorri manna mundi að sjálf-
sögðu segja, að það væri betra. A hinn
bóginn mundu menn með skilning á
málinu og vísindalegt innsæi skilja þýð-
ingu þess að fara inn á nýjar brautir,
með sleppingu hálfsárs seiða, sem gætu
valdið straumhvörfum í framtíðinni, og
meta þannig árangur frá öðru sjónarhorni.
Þannig er djúpstæður skilningur manna á
viðfangsefninu forsenda fyrir raunhæfu
mati á árangri.
VEIÐIMAÐURINN
23