Veiðimaðurinn - 01.08.1981, Síða 18
Kristján í Crystal
segir frá
Magnús Ólafsson rceðir við Kristján Sigurmundsson
Fyrri hluti
Sunnudagur, 17. júní 1962. Skeggjastaðir
í Miðfirði. Þar eiga þeir gistingu í sumar,
veiðimennirnir í Miðfjarðará, í góðu yfir-
læti hjá þeim hjónum Láru og Siggeir.
Gamla veiðihúsið við Arndísarhyl liggur
ekki á lausu, og nýja húsið gegnt Litla-
bakka er ekki einu sinni komið á teikni-
borðið ennþá.
Við höfum veitt í hálfan annan dag og
erum hálfnaðir með tímann, ég og félagar
mínir, þeir Gísli Friðrik frændi minn
Petersen, yfirlæknir á Landspítalanum,
og vinur minn Henrik P. Biering, kaup-
maður á Laugaveginum. Það er veitt á sex
stengur, með hinar þrjár eru þeir Björn
Eggertsson, bóndi í Kópavogi, Gísli
Wium, kaupmaður, sem nú er látinn, og
Kristján Sigurmundsson, sælgætisfram-
leiðandi, oft kenndur við fyrirtæki sitt og
kallaður Kristján í Crystal, einn slyngasti
laxveiðimaður, sem sögur fara af hérlendis
og sjálfsagt þótt víðar væri leitað.
Ekki hafði ég áður veitt með Kristjáni
Kristján og Magnús rceðast við (ijósm. FDS).
í Crystal og þekkti hann ekki neitt. En
einhver gárungi skaut því að mér niðrí
Austurstræti daginn áður en ég lagði af
stað í þessa fyrstu veiðiferð mína í Mið-
fjarðará, þegar hann heyrði nefnda veiði-
félagana, að ekki yrðu nú margir laxar eftir
handa okkur hinum, þegar hann Kristján í
Crystal hefði tekið sinn skammt.
Klukkan er sex að morgni þennan
þjóðhátíðardag. Eg vakna við það, að
16
VEIÐIMAÐURINN