Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.12.1981, Side 27

Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.12.1981, Side 27
framkvæmdasvæoi interpnse zones: Að undanförnu hefur breska ríkisstjórnin beitt sér fyrir því að koma á svo- nefndum framkvæmdasvæðum, í tilraunaskyni, á svæðum þar sem um er að ræða hnignun atvinnulífs eða umhverfis, og þar sem venjulegar skipulagsaðgerðir hafa brugðist. Megin markmiðið með svæðunum er að kanna hvernig efla megi iðnað, verslun, og álíka starfsemi með því að létta af fyrirtækjum á þessum svæðum ýmiss konar ákvæðum, álögum og gjöldum, (t.d. bæði ýmsum skipulagsákvæðum, fasteignasköttum o.fl.) og með því að flýta sérstaklega fyrir ýmsum málum sem þessi fyrirtæki varðar. Gert er ráð fyrir að þessar fyrirgreiðslur gildi í 10 ár. Nú þegar hafa ellefu slík svæði verið ákveðin á Bretlandseyjum og er stærð þeirra frá 50 - 200 ha. Frekari upplýsingar um þessi framkvæmdasvæði liggja fyrir á Skipulagsstofmni. KÖNNUN Á VALVÖRUVERSLUN Síðastliðinn október var gefið út á vegum Skipulagsstofu höfuðborgarsvæðisins sérrit er hefur að geyma niðurstöður könnunar á valvöruverslun á höfuðborgar- svæðinu. Þessi könnun var unnin í samráði við Borgarskipulag Reykjavíkur, en einnig var samband haft við aðra skipulagsaðila á svæðinu og Kaupmannasamtök íslands. Skipulagsmál hafa áður getið þessarar könnunar (Skipulagsmál 1/81 og 2/81) en hún er grundvölluð á svokölluðu þyngdarafls-reiknilíkani. Erlendis eru slík reiknilíkön algeng hjálpartæki við skipulag verslunar. Hægt er að nota þessi líkön m.a. til að spá um fjölda verslunarferða milli einstakra íbúðar- og verslunarhverfa. Er þá oft talað um að ákveðið verslunarhverfi hafi mismunandi mikið aðdráttarafl, og er hverfið talið því sterkara sem aðdráttaraflið er meira. Hér skiptir miklu hversu aðgengilegt verslunarhverfið er og fjarlægð þess frá íbúðarhverfum. Einnig skipta verslunarhættir fólks miklu máli. Verslunarkannanir hafa sýnt að velta valvöru sýnir góða fylgni við aðdráttar- afl verslunarhverfa og var því ákveðið að könnunin næði eingöngu til valvöru- verslunar. Með valvöru er átt við þá vöru sem "neyta/nota" má oftar en einu sinni. Þessi könnun náði því ekki til matvöru og hreinsiefna svo dæmi séu tekin. ÞÓ væri unnt að nota þetta reiknilíkan sem nú hefur verið byggt upp á Skipulagsstofunni til þess að gera hliðstæða könnun á dagvöruverslun. Reiknilíkanið var notað til að reikna út rúmlega 70 framtíðarmöguleika á stærðarhlutföllum milli verslunarhverfa á svæðinu. Þegar þessir möguleikar höfðu verið vegnir og metnir m.a. með hliðsjón af byggingaráformum sveitar- félaganna næstu 20 árin voru 7 kostir valdir til frekari úrvinnslu, 2 fyrir 1986 og 5 fyrir 1998. Könnunin leiddi margt athyglisvert í ljós sem þó verður ekki rakið hér í einstökum atriðum. Vert er samt að geta þess að nokkur verslunarhverfi t.d. miðbær Kópavogs, Ármúli/Skeifan, Glæsibær og Mjóddin í Breiðholti reyndust öflug í þeim skilningi að niðurstöður urðu þeim ávallt í hag. Af þessum verslunarhverfum reyndist Mjóddin öflugust, enda vel staðsett gagnvart gatna- kerfi og í miðju fjölmennrar íbúðarbyggðar. Gamli Miðbærinn í Reykjavík kom ekki sérlega vel út miðað við þær forsendur sem gefnar voru. Því virðist meiga gera ráð fyrir að Gamla Miðbænum muni hnigna talsvert ef ekkert verði að gert og því fari fram sem horfir. Á undangengnum árum hefur staðið til að byggja nýjan miðbæ í Kringlumýri. Niðurstöður könnunarinnar sýndu svo ekki varð um villst, að uppbygging mikils verslunarrýmis þar myndi draga mikið frá aðliggjandi verslunarhverfum.

x

Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins
https://timarit.is/publication/1782

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.