Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.01.1983, Blaðsíða 17

Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.01.1983, Blaðsíða 17
Það eru þessar öfgar sem okkur ber að varast. í raun ætti aldrei að skipuleggja hverfi án þess að reiknað væri með einhverjum hluta þess fólks sem stjórnvöld telja ástæðu til að leggja sérstaka rækt við, en um Ieið að sjá til þess að aldrei sé tekið fyrir óeðlilega stórt hlutfall einhvers þeirra í einu lagi. Að mörgu leyti er sú leið sem farin hefur verið í elli- málum til mikillar fyrirmyndar. Byggðar hafa verið tiltölulega litl- ar einingar á eftirsóknarverðum lóðum, á stundum inni í grónum hverfum. Og nú er svo komið að gamla fólkið auðgar Hlíðarnar, Gerðin og Laugarásinn að lífi og fjölbreytni í áðúr óþekktum mæli. Það skal viðurkennt að ófram- kvæmanlegt er að segja til um hvert sé eftirsóknarverðasta hlut- fall hinna ýmsu þjóðfélagshópa, ef frá er talin aldurs- og kynskipt- ing þjóðfélags í vaxtarjafnvægi. Hins vegar er deginum ljósara að okkar þjóðfélag, líkt og flest önn- ur, er sett saman af ungum og öldnum, ríkum og snáuðtnn, fötl- uðum og heilbrigðum, skrifstofu- mönnun og verkamönnum. Og þetta fólk býr ýmist eitt sér, í hjú- skap, með börnum, eða jafnvel í stórfjöldkyldu. Nýleg könnun í Reykjavík varpar ljósi á þetta, en samkvæmt henni er mannfjöldi á heimilum í höfuðborginni með þessum hætti: Einn í heimili tveir þrír fjórir fimm sex sjö eða fleiri 9,3 af hundraði 19,4 23.8 24.8 14,2 6,0 2,5 Skipulagsstjórnmál eru vand- meðfarnari og ákvarðanir á vettvangi þeirra afdrifaríkari en marga grunar. Leiðarljós þeirra sem eru kölluð til að taka þær ætti umfram allt að vera að auka ekki á þann aðskilnað og einangrun þjóðfélagshópanna sem þéttbýlis- þjóðfélagið leitast við að skapa, htldur leita allra ráða til að draga úr honum. Þorbjörn Broddason MAT Á AHRIFUM FRAMKVÆMDA Undanfarna tvo áratugi hafa menn í vaxandi mæli verið að gera sér grein fyrir ýmsum nei- kvæðum áhrifum sem fram- kvæmdir gætu haft í för með sér, bæði á umhverfl og líf manna, ef ekki væri að gáð. Þeir sem hafa lýst áhyggjum sínum af þessari þróun mála hafa ekki eingöngu verið úr hópi sérfræðinga og stjórnmálamanna, heldur hefur almenningur víða um heim látið þessi mál mjög mikið til sín taka. I þessu efni eins og mörgurn öðrum, hafa menn haft til- hneigingu til að skipa sér í tvo gagnstæða hópa, annars vegar eru verndunar og friðunarmenn sem magrir hverjir hafa lítinn áhuga á framkvæmdum — hins vegar eru framkvæmdamenn sem oft hafa ekki sinnt nægilega áhrifum cða afleiðingum af sín- um gerðum. Fáir hafa gerst til að bera friðarorð á milli. Engu að síður hafa alltaf verið einhverjir þeirrar skoðunar að hagsmunir ofangreindra aðila þyrftu ekki nauðsynlega að stang- ast á. Hægt væri, t.d. að finna nauðsynlegum framkvæmdum stað, þannig að þær spilltu umhverfi mjög lítið. Hægt væri að hafa áhrif á gerð, útlit og hugsan- lega mengun, sem stafaði af framkvæmdum, með ekki alltof miklum tilkostnaði. Með ákveðn um athugunum, gerð líkana og ljósmynda mætti gera sér mjög góða grein fyrir væntanlegum á- lirifum og útliti viðkomandi framkvæmdar áður en í hana væri ráðist. Hér væru yfirleitt all- taf til staðar ýmsir kostir, sem sjálfsagt væri að ræða og hafa mætti áhrif á. Þannig ætti enginn að þurfa að ganga gruflandi til leiks, og mótmæli gegn mannvir- kjum á framkvæmdastigi, eins og nú hefur orðið reyndin á með Seðlabankann í Reykjavík, ættu löngu að vera úr sögunni. En þrátt fyrir þessar hugmynd- ir, og þrátt fyrir alla þá umræðu sem hefur átt sér stað á undan- förnum áratugum um þessi mál þá hafa mörg þjóðlönd ennþá ekki tekið þessi mál föstum tökum og þróað markvissar að- ferðir til þess að meta hin marg- _ víslegu áhrif framkvæmda, áður en í þær er ráðist. Allt of oft hafa þröng þekkingarsvið, eins og hagkvæmnismat eitt saman, ráðið ferðinni og margar meiri háttar framkvæmdir verið ákveðnar án þess að nokkur gaumur væri gcf- inn að öðrum mjög mikilvægum atriðum. Reynsla undanfarinna áratuga hefur samt sýnt okkkur fram á, svo ekki verður um villst, að mat á hagkvæmni framkvæmda eitt sér hefur leitt okkur upp margar villigötur. Svipuðu máli gegnir líka ef cinhver ein fræðigrein t.d. dýrafræði, verkfræði eða veiru- fræði ræður of miklu við slíkar ákvarðanir. Það sem menn hafa verið að gera sér betur og betur grein fyrir er að stjórnmálamenn sem þurfa að taka ákvarðanir um þessi mál og almenningur, ser.i vill kynna sér þau, þurfa heildstætt mat á þeim kostum sem koma til greina við viðkomandi framkvæmd eða stefnu og jafn- framt mat á heildaráhrifum hvers kosts fyrir sig, áður en endan- legar ákvarðanir eru teknar. Flestir sérfræðingar hafa eðli- lega tilhneigingu til þess að leggja mælikvarða sinnar fræðigreinar á viðkomandi framkvæmd, oft á kostnað annarra þekkingarsviða. Þegar um framkvæmdir er að ræða sem koma inn á mjög mörg þekkingarsvið, eins og algengt er um stórframkvæmdir, koma 17

x

Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins
https://timarit.is/publication/1782

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.