Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.01.1983, Blaðsíða 27
201.gr.
þætti, sem viðkoma hávaða-
vandamálum (4).
Tæknitíðindi nr. 81 gefið út af
Rannsóknastofnun fiskiðnaðar-
ins, en þar fjalla þeir Torfi
Guðmundsson og 'frausti Eiríks-
son, verkfr., um hávaða og
hávaðavarnir í fiskvinnsluhúsum
(5) .
I Siglingamálum nr. 8 í maí
1977 er einnig að finna ágæta
grein um hávaðavarnir í fiskiskip-
um eftir Baldur Jónasson, verkfr.
(6) ; ^
1 Iðnaðarmannablaðinu, 2. tbl. I
1978, birtist grein eftir Stefán
Guðjóhnsen, tæknifræðing (7).
Þar er vel lýst eiginleikum mæli-
tækja, ásamt ýmsum grundvallar-
atriðum um hávaðavandamál al-
mennt.
I Iðnaðarmálum, riti Iðntækni-
stofnunar Islands, 1. tbl. 26. árg.
1979, er ágæt grein eftir Sigurð
Bjarklind, heilbrigðisfulltrúa á
Akureyri (8) um hávaða á vinnu-
stöðum.
Heilbrigðiseftirlit ríkisins tók
síðan saman lítilsháttar fróðleik
um umhverfishávaða, m.a. frá
flugumferð flugvéla við Reykja-
víkurflugvöll. Nefnist samantekt-
in „Hávaði, mælingar á umhverf-
ishávaða, stjórnun hávaðavarna.”
Rit Heilbrigðiseftirlits ríkisins 1/
1981 (9).
Nýlega hefur svo Skipulags-
stofa höfuðborga’ svæðisins lagt
hönd á plóginn með samantekt
um „Umferðarhávaða og hugs-
anlegar aðgerðir í skipulagi” (10),
Rit III, sept. 1981.
Eins og sjá má af ofangreindri
upptalningu, er því nokkuð búið
að fjalla um hávaða og hávaðamál
á umliðnum árum. Heilbrigðis-
eftirlit Reykjavíkurborgar,
atvinnusjúkdómadeild, hefur
einnig geflð út ýmsa bæklinga og
myndspjöld til varnaðar og fróð-
leiks á vinnustöðum. Fyrrverandi
Öryggiseftirlit ríkisins og nú-
verandi Vinnueftirlit ríkisins
hafa gert athuganir á hávaða á
vinnustöðum á umliðnum árum.
Yfirlit yfir þjónustu Öryggiseftir-
litsins á þessu sviði er að finna í
skýrslu stofnunarinnar yfir tíma-
bilið 1928 - 1978 (1 1). Þessu er
hér með komið á framfæri til
þeirra, sem áhuga hefðu á að
kynnast nánar þeim ritsmíðum á
j íslensku, sem vitað er um í dag.
■ Abendingar um ótalið eru vel
þegnar. Með yfirsýn yfir ofanrit-
að efni verður því talið, að ekki sé
þörf á frekari skilgreiningum á
eðlisfræðilegum þáttum hávaða
að svo komnu máli, heldur bcri að
reyna að víkja nánar að ýmsum
lögum og lagafyrirmælum
varðandi hávaða hérlendis.
Söguleg þróun á sviði löggjafar
um heilbrigðis- og umhverfis-
mál:
Fyrstu lög um heilbrigðissam-
þvkktir hreppsfélaga eru frá
1905, en lög um heilbrigðis-
nefndir eru frá 1940. Skv. lögum
var lögreglustjóri lögskipaður
formaður nefndarinnar. Héraðs-
læknir var ennfremur lögskipað-
ur nefndarmaður, þar sem hann
var búsettur, annars fulltrúi hans.
Aðrir nefndarmenn voru kosnii
af hlutaðeigandi sveitarstjórn.
Yfirstjórn heilbrigðiseftirlits og
hollustuhátta var í höndum þess
ráðherra sem fór með heilbrigðis-
mál, en á þeim tíma var ekki sér-
stakt ráðuneyti, heldur fór Dóms-
og kirkjumálaráðuneytið með þá
málaflokka (tekið úr riti
Heilbrigðis- og tryggingamála-
ráðuneytisins nr. 1/1980). (12).
Úr heilbrigðisreglugerð nr. 45/
1972:
XX. Kafli
Uin hávaða ogtitring.
200. gr.
200.1. Forráðamönnum verk-
smiðja, stofnana eða
annarra fyrirtækja er
skylt að gera allt, sem í
þeirra valdi stendur, til
þess að draga úr eða að
koma í veg fyrir heilsu-
spillaiuli hávða eða
hávaða til óþæginda.
200.2 Nú er ekki, vegna eðlis
starfseminnar, hægt að
draga úr hávða, og er þá
starfsmönnum skylt að
nota heyrnarhlífar viður-
kenndar af heilbrigðiseft-
irlitinu, sem fyrirtækið
lætur þeim í té endur-
gjaldslaust, enda auki það
ekki slysahættu að öðru
leyti.
201.1 Þegar meta skal heilsuspill-
andi áhrif hávaða fyrir
starfsfólk, skal sérstaklega
hafaí huga:
1. Styrkhávaðansmældan í
desibel (decibel).
2. Tónhæðhávaðans.
3. Hvort hávaðinn er stöð-
ugur eða breytilegur.
4. Daglega tímalengd há-
vaðans.
5. Heildartímabil, sem ætla
má, að hávaðinn vari
(dagar-vikur).
202. gr.
202.1 Líta ber á 85 desibel
sem hámark leyfilegs
hávaða á vinnustöðum sbr.
þó 201.gr. (2 -5).
203. gr.
203.1. Heilbrigðisnefnd getur
bannað mjög hávaða-
sömum flutninga- og far-
artækjum umferð um til-
teknar götur í íbúðar-
hverfum allan sólarhring-
inn eða að kvöldlagi og
um nætureftir atvikum.
204. gr.
204.1 Flugvelli má ekki staðsetja
eða breyta þeim þannig,
að heilsuspillandi hávaði
hljótist af eða truflun á
einkalífi manna, vinnu-
friði eða næturró.
204.2 Sérstakt tillit ber hér að
taka til sjúkrahúsa og
annarra heilbrigðis-
stofnana.
204.3 Bannað er að byggja íbúð-
arhús í nágrenni flugvalla
í aðflugsstefnu flugbrauta.
205. gr.
205.1 Að öðru leyti ber að gæta
ákvæða 26. og 36. gr. þess-
arar reglugerðar, annarra
laga, reglugerða og
samþykkta, sem um þetta
efni fjalla og gilda fyrir
umdæmið eða allt landið.
Eftir gildistöku laga nr. 46/
1980 um liollustuhætti og öryggi
á vinnustöðum féll eftirlit með öl-
lum hávaða í starfsumhverfi j