Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.01.1983, Blaðsíða 31
ins. Rit. 111/1981. Umferðarhávaði
og hugsanlegar aðgerðir í skipulagi.
11. Öryggisseftirlit ríkisins 50 ára.
Skýrslaumstarfsemina 1928- 1978.
12. Ingimar Sigurðsson, deildarstjóri.
Rit Heilbrigðis- og tryggingamála-
ráðun. nr. 1/1980.
13. Bifreiðaskýrsla Hagstofu íslands og
Bifreiðaeftirlitsrík. l.janúar 1982.
14. Skýrsla Bifreiðaeftirlits rík. 1981.
15. Lennart Persson, Miljöskydd
Publica, Stockholm.
16. OECD Publications. Conference on
Noise Abetement Policies 7th - 9th
May 1980.
17. OECD Publications. Reducing Noise
in OECD Countries.
Harald Holsvik
UM LOFTMENGUN
Inngangur:
I þessari stuttu grein er engin
leið að gera sviðinu loftmengun
nein tæmandi skil. Þannig verður
hér á eftir ekki minnst á eitt
einasta loftmengunarefni, né
áhrif þess í umhverfinu, heldur
reynt að ræða almennt um loft-
mengun og kerfi til að hafa stjórn
áhenni.
Um stjórnun loftgæða.
Með nýjum lögurn nr. 50/1981
eru Mengunarvarnir settar á
stofn sem sérstök deild í Holl-
ustuvernd ríkisins. Undir Meng-
unarvarnir falla skv. lögunum öll
svið mengunar, þ.e. mengun
lofts, vatns og lands, auk meng-
unar af völdum hávaða og
geislunar. Lögin gera ráð fyrir, að
samin verði sérstök mengunar-
varnareglugerð. Útagáfa reglu-
gerðarinnar hlýtur að marka
Mengunarvörnum ákveðna
starfsfarvegi, og er því samning
hennar brýnt verkefni. Um loft-
mengun er tiltekið í lögum nr. 50/
1981, að liður í væntanlegri
mengunarvarnareglugerð skuli
vera um varnir gegn loftmengun,
þar sem fram skulu koma viðmið-
unarreglur fyrir leyfilega loft-
mengun.
I aðalatriðum eru tvær leiðir
færar til þess að hafa stjórn á gæð-
um lofts.
a) Að nálgast það, sem „best er
hægt að gera”, tekið mið af
tæknilegum og efnahags-
legum aðstæðum.
b) Að setja staðla fyrir hvers kon-
ar loftmengun, sem ckki sé
heimilt að fara yfir.
Best er að sameina báðar þessar
leiðir, og raunar verður það að
teljast allt að því nauðsyn. Leið a)
er ekki fullnægjandi vegna þess
að hún leyfir aukningu loftmeng-
unar án þaks. Fyrr eða síðar kem-
ur að því, að mengun á ákveðnu
svæði, þar sem t.d. iðnaður er
mikill, nái óviðunandi stigi, jafnt
þótt „besta” mengunarvörn sé
notuð. Leið b) er ófullnægjandi
að minnsta kosti af tvennum
ástæðum. í fyrsta lagi rýrir hún
notagildi lands, því í síðasta lagi
þegar stöðlun er náð, verður að
gera ráðstafanir til að koma í veg
fyrir aukna mengun, t.d. með því
að skipuleggja ekki frekari um-
svif á svæðinu. Stöðlun verður að
sjálfsögðu náð fyrr, ef ekki eru
viðhafðar „bestu” mengunar-
varnir.
í öðru lagi er það takmarkið
með mengunarvörnum að halda í
lágmarki loftmengun frá allri
starfsemi á ákveðnu svæði um leið
og þess er gætt, að hvergi innan
svæðisins sé mengun yfir stöðl-
um. Takmarkið með mengunarv-
örnum er aldrei að leyfa loft-
mengun að ná gildi rétt neðan
staðla á öllu svæðinu.
A myndinni hér að ofan hafa
þessir 2 stjórnunarþættir loft-
gæða, þ.e. nálgun þess sem „best
er hægt að gera” og setning staðla
verið teiknaðir inn. Mengunin
fylgir línum A og B við misgóðar,
en línu C við „bestu mengunar-
varnir”. I punkti D er staðli náð,
og eftir það ætti ekki að leyfa
aukningu á mengandi þáttum
nema að gera kröfur til meng-
Staðall
aukinnar mengunar.
unarvarná, sem er umfram það,
sem „best er hægt að gera”. Slikt
verður hins vegar ekki gert nema
með opinberri aðstoð.
Þegar stjórnun loftgæða er sl /.
þessum tveim grundvallar-
atriðum, er talið áhrifaríkt að
vinna á eftirfarandi hátt:
1) Að starfsemi allra nýrra
mengunarvalda sé háð leyfi í
hverju séu gerðar mengun-
arvarnarkröfur til starf-
seminnar, sem byggi á nálgun
að því, sem „best sé hægt að
gera”.
2) Að öllum starfandi en leyfís-
lausum mengunarvöldum
verði gefinn ákveðinn tími til
að uppfylla mengunarvarna-
kröfur svipaðar þeim, sem
ge.rðar eru til nýrra meng-
unarvalda.
3) Loftgæði í þéttbýli verði
stjórnað með viðmiðun við
staðla.
Nokkur almenn atriði um loft-
mengun.
íslendingar hafa lengi verið
stoltir af hrcinu andrúmslofti og
tæru vatni, og víst er um það, að
mengun þessara umhverfisþátta
hér er ekki í líku mæli og víða
annars staðar. En það táknar ekki
það, að við höfum ekki okkar
mengunarvandamál. Nær-