Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.09.1984, Side 7

Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.09.1984, Side 7
SKIPULAGSMÁL HÖFUÐBORGARSVÆÐISINS 7 þetta hlutfall höfuðborgarsvæðisins af íbúatölu landsins haldast nokkuð stöðugt a.m.k. fram að næstu alda- mótum. Milli þessara tveggja tímabila eru vissulega skörp skil. Hluta af skýr- ingunni er efalaust að leita í hinni svo kallaðri byggðastefnu, - þegar fjármagni úr opinberum sjóðum er veitt í allrílcum mæli til ýmissa byggðalaga út um land og þá til framkvæmda er veittu aukna at- vinnu, þannig að byggðalögin héld- ust áfram í byggð. Það er einnig athyglisvert hve hlut- fallsleg skipting íbúa höfuðborgar- svæðisins eftir atvinnugreinum hef- ur breyst síðustu 20 árin eða svo (sjá mynd 3). % Hlutfallsleg skiptlng íbúa höfuð- borgarsvæðisins eftir atvinnu- greinum. Ef miðað er við heildarfjölda starf- andi á svæðinu, þá hefur fjöldi mannára (starf eins manns í eitt ár) í iðnaði, samgöngum, byggingar- iðnaði og sjávarútvegi farið fækk- andi. Aftur á móti hefur orðið mikil aukning á sviði viðskipta og þjón- ustu, sérstaklega á því síðartalda. Er nú svo komið að í þessum grein- um atvinnulífsins starfa 57% allra virkra framteljenda á höfuðborgar- svæðinu. En í frumgreinum svoköll- uðu landbúnaði og sjávarútvegi starfa nú aðeins milli 4 og 5%. Á öllu landinu er þetta sama hlutfall 32%. Efalaust eru til margar skýringar á áðurnefndum breytingum. Kannski er hluta þeirra að leita í fram- kvæmd byggðastefnunnar og þá þannig að fólk sem hefur flutt til höfuðborgarsvæðisins síðustu 20 árin hefur fyrst og fremst hafið störf í þjónustu og viðskiptagreinum. At- vinnutækifærin hafa einnig verið hvað flest þar. Aftur á móti hefur fólk sem starfar sérstaklega í iðnaði og byggingarstarfsemi á áður- nefndu tímabili fluttst út á land í kjölfar „byggðapeninganna“. En þess skal einnig getið að hluti af skýringunni eru hin svokölluðu „margfeldisáhrif". Felst hún í því að aukin atvinna úti á landi orsakar enn fleiri atvinnutækifæri á höfuð- borgarsvæðinu og þá einkum í þjónustu- og viðskiptagreinum. Er nú talið að þessar fjölmennustu greinar atvinnulífsins á höfðborgar- svæðinu, geti vart tekið við fleirum til starfa og bent er á áð vaxtar- broddinn sé í staðinn að finna í iðnaðargreinum og þá einkum framleiðsluiðnaði með útflutning í huga. Á Skipulagsstofu höfuðborgar- svæðisins hefur verið reynt að meta atvinnuþátttöku íbúa svæðisins og hvernig fjöldi starfandi manna gæti hugsanlega breyst á komandi árum. Þessari athugun var gerð nokkur skil í síðasta hefti Skipulagsmála (1. TBL. 5. ÁRG. APRÍL 1984). En þar kom m.a. fram að um 15.000 manns muni að líkindum bætast við atvinnumarkað höfuðborgar- svæðisins næstu 20 árin. Aldursskipting íbúa höfuðborgar- svæðisins hefur einnig tekið breyt- ingu síðustu 20 árin, því meðalaldur þeirra hefur hækkað (sjá mynd 4). Árið 1960 voru t.d. 6% íbúanna 65 ára og eldri,en nú er hlutfall þeirra um 10%. íbúar svæðisins yngri en 15 ára voru 36% en eru 25% í dag. Sem ástæðu má nefna betri lífskjör, eitthvað lækkandi fæðingartíðni, og aldraðir hafa í ríkari mæli flust til höfuðborgarsvæðisins, vegna góðr- ar þjónustu á vegum hins opinbera, - heimili fyrir aldraða hafa víða ver- ið reist á svæðinu og fullkomin % 100 90 70 60 50 40 30 20 10 0 1960 1980 2000 AR Aldursskipting íbúa höfuðborgarsvæðisins heilbrigðisþjónusta er jafnframt til staðar. Ein skýringin á því hve meðalaldur íbúa höfuðborgarsvæð- isins hefur hækkað síðustu árin kann einnig að felast nokkuð í því að til svæðisins hafi á sínum tíma frekar flutt ungt fólk í leit að at- vinnu eða til að setjast í skóla og síðan sest þar að. Með tíð og tíma hafa foreldrarnir síðan fylgt á eftir. 65 ára og eldri Yngri en 15 ár?. Samfara mikilli fólksfjölgun síðustu áratugi m.a. hefur byggð á höfuð- borgarsvæðinu þanist út. Mynda- röðin hér til hliðar ætti að bera því best vitni, en með henni er reynt á stflfærðan hátt að sýna þróun byggðarinnar frá síðustu alda- mótum. Elsta byggðin er í „hafnar- bæjum“ Reykjavík og Hafnarfirði. Utan þessara bæja tók þéttbýli vart að myndast fyrr en um miðja öldina og þá fyrst í Kópavogi, Garðabæ og á Seltjarnarnesi, en síðar í Mosfells- sveit og á Álftanesi. Fyrst í stað voru þessir þéttbýliskjarnar nánast svefnbæir, en nú hin síðari ár hefur atvinnustarfsemi einnig náð að blómstra á þessum stöðum þannig að nokkurt jafnvægi virðist vera að nást milli sveitarfélaganna hvað þetta varðar.

x

Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins
https://timarit.is/publication/1782

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.