Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.09.1984, Side 32

Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.09.1984, Side 32
SKIPULAGSMÁL HÖFUÐBORGARSVÆÐISINS 32 ingatæknibyltingin hefur breytt forsendum framleiðslu og þjón- ustu, svo og samgangna. Straumur nýjunga byggður á þessari þekk- ingu hefur komið fram á sjónarsvið- ið, nýjar vörur og tæki sem móta hversdagslífið með margvíslegum hætti. Framundan er önnur bylting af völdum nýrrar þekkingar á sviði líf- og lífefnatækni, sem margir telja að muni á næstu áratugum fara að hafa jafnvíðtæk áhrif á framleiðsluaðferðir í iðnaði og landbúnaði, svo og heilbrigðisþjón- ustu og hin nýja upplýsingatækni. Til að hagnýta sem skjótast þá möguleika sem ný tækniþekking opnar, hefur í mörgum löndum ver- ið tekin sú stefna að hvetja til nán- ari samskipta en áður hafa tíðkast milli fyrirtækja, háskóla og rann- sóknastofnana, m.a. með því að stofna eins konar „tæknigarða“ eða vísindaborgir. Hafa þá verið skipu- lögð stór svæði þar sem gert er ráð fyrir að fyrirtæki, háskólar eða háskólastofnanir, svo og aðrar rannsóknastofnanir og æðri skólar fái aðsetur og reynt að skapa um- hverfi sem er hagstætt fyrir sam- skipti milli manna sem standa á líku þekkingarstigi, en með mismun- andi reynslu og viðfangsefni. Þann- ig gefst kostur á víxlfrjóvgun hug- mynda og gagnkvæmri aðstoð sem reynst hefur mjög hvetjandi fyrir framfarir. Fyrirmyndin er fengin frá tæknibæj- um, sem risið hafa upp í kringum háskólana í Bandaríkjunum, MIT, CIT, Stanford, o.fl., og víða er nú verið að stuðla að sams konar upp- byggingu. Japanir eru nú að byggja vísindaborgina Tsukuba utan við Tokyo. í smáríkinu Singapore (sem er um 630 ferkm. að stærð og íbúa- talan er 2,5 millj.) hafa verið lagðir 7000 ha lands undir iðngarða, en í nánum tengslum við það er 72 ha „vísindagarður“, þar sem rann- sóknastofnanir og þjónustufyrir- tæki við hátækniiðnað fá aðsetur. Á þessum svæðum eru nú 3000 fyrir- tæki starfandi og starfsmenn yfir 220 þús. í Lundi og Gautaborg í Svíþjóð er hliðstæð uppbygging í gangi í tengslum við tæknihá- skólana á þessum stöðum. Hugmyndir þessar eru að því leyti sérstaklega áhugaverðar fyrir ís- lendinga að með þessu væri hugsan- legt að þjappa betur saman því hug- viti og tækniþekkingu sem íslend- ingar ráða yfir, en vegna mann- fæðar og takmarkaðra fjármuna, en yfirfljótandi verkefna, hafa kraft- arnir dreifst mikið og ekki tekist nægilegt samstarf og samskipti milli manna, milli stofnana og milli at- vinnulífs fyrirtækja og stofnana. Hinir takmörkuðu kraftar eru raun- ar eitt aðalvandamál íslenskrar rannsókna- og þróunarstarfsemi. Samvinnunefnd Ríkis og Reykja- víkurborgar um skipulag á Keldna- og Keldnaholtssvæðinu hefur ákveðið að stuðla að þróun í þessa átt í deiliskipulagsáætlun fyrir svæð- ið. í þessu skyni efndi nefndin til ráðstefnu um svæðið sem haldin var hinn 11. maí s.l. Á ráðstefnunni, sem um 80 manns sóttu, kom fram mikill áhugi á málinu, ef til vill meiri en búast mátti við, og já- kvæður vilji til að stuðla að upp- byggingu svæðisins í þessum anda. Fram komu ábendingar um fjöl- þætta möguleika til að nýta náttúru- lega kosti svæðisins, svo og mögu- leika til samskipta atvinnulífs, há- skóla og rannsóknastofnana at- vinnuveganna á svæðinu, og skiln- ingur á gildi þess að þjappa saman hinum ýmsu þekkingargreinum. Bent var á að nauðsyn væri á að skapa hvata til aukins samstarfs, og sérstaklega þyrfti að breyta til um fjármögnun rannsóknaverkefna þannig að fé rynni meira til ein- stakra verkefna, en í minnkandi mæli í heildarsummu til stofnana. Ennfremur yrði þáttur atvinnufyrir- tækja í fjármögnun og framkvæmd rannsókna að aukast til að fyrirtæki og stofnanir skynjuðu gagnkvæman hag af samksiptunum og mætu hann að verðleikum. Á ráðstefnunni komu einnig fram fyrirvarar um að nýting vestursvæð- is háskólans yrði að fylgja með, og ekki mætti gleyma þörfum grund- vallarrannsókna, þar sem ekki yrði komið við þátttöku fyrirtækja og ekki mætti eingöngu hugsa um skammtímaávinning af rannsókn- um. Pá væru látnar í ljósi áhyggjur af áhrifum samþjöppunar á byggða- jafnvægi í landinu. Slíkt hverfi kynni að laða til sín fyrirtæki og framtak, sem aftur kynna að draga úr vexti annars staðar. Varðandi áhyggjur af byggðaáhrif- um af slíkri skipulagðri samþjöpp- un þekkingarstarfsemi og iðnaðar er þó það að segja, að allar líkur eru á að þau geti allt eins orðið jákvæð. í fyrsta lagi er ljóst að án samþjöppunar af þessu tagi er alls- endis óvíst að nokkur umtalsverð þróun hátækniiðnaðar verði. Fyrstu skrefin eru erfið og við þurfum á öllu að halda til að koma þróuninni af stað. í öðru lagi er eins líklegt að samþjöppunin leiddi fyrst og fremst til þróunar á nýjum fyrirtækjum og nýrri framleiðslu, sem að líkindum hefði annars ekki komið til og tekur þannig ekkert frá öðrum. í þriðja lagi er líklegt að með þessum hætti gætu risið upp mun öflugri stofnan- ir og betri aðstaða til að veita ráð- gjöf og aðstoð við fyrirtæki út um landið. í þessu sambandi skal minnt á að Iðntæknistofnun íslands hefur nýlega verið falið að samræma og veita aðstoð við störf iðnráðgjafa í hinum ýmsu landshlutum og stefnir að því að bæta þjónustu sína við fyrirtæki úti á landi, m.a. í gegnum þessa tengiliði. Til umræðu er einn- ig stofnun útibúa. Öflugur bakhjarl í aðalstöðvum á Keldnaholti er al- gjör forsenda góðrar þjónustu við landsbyggðina. Vísa má til reynslu hjá tæknistofnununum tveimur í Danmörku, sem hafa miðlunar- skrifstofur í flestum héruðum Dan- merkur, en höfuðstöðvar annars vegar í Kaupmannahöfn og hins vegar í Árósum. Okkar eigin reynsla sýnir að með vexti rannsóknastofnana atvinnu- veganna á síðustu 10 árum hafa af- köst þeirra í gagnlegum rann- sóknaniðurstöðum og upplýsingum til atvinnuveganna stóraukist, raun- ar langt umfram fjölgun starfsliðs á stofnunum. Lykilatriðið er að nú er hægt að taka upp eðlilegt samstarf og hafa gagnkvæman stuðning við lausn vandasamra verkefna, en áður hafði hver sérfræðingur sitt víðfeðma ábyrgðarsvið og gat lítið leitað til annarra né sinnt öðrum verkefnum og naut því heldur ekki stuðnings þegar vandamál bar að höndum. Þannig einangruðust menn oft á tíðum í verkefnum sín- um. Margar athuganir hafa verið gerðar á forsendum nýsköpunar og lykilat- riðin hafa reynst vera greið og tíð

x

Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins
https://timarit.is/publication/1782

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.