Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.08.1985, Síða 9
Skipulagsmál Höfuðborgarsvæðisins I11985
9
Guðjón Petersen.
Framtíðarþróun
almannavarna
á höfuð-
borgarsvæðinu
Hlutverk almannavarna er að
skipuleggja og framkvæma
ráðstafanir sem miða að því,
eftir því sem unnt er, að al-
menningur verði ekki fyrir
líkams- eða eignatjóni af
völdum hernaðaraðgerða,
náttúruhamfara eða af ann-
arri vá, og veita líkn og að-
stoð eftir að tjón hefur orðið.
Er verkum skipt milli ríkis-
valds og sveitarfélaga við úr-
lausn almannavarna, sam-
kvæmt lögum og fer almanna-
varnaráð með umboð ríkis-
valdsins á þessu sviði, en al-
mannavarnanefndir sveitarfé-
laganna með þann þátt sem
að þeim snýr.
Á höfuðborgarsvæðinu starfa
fimm almannavarnanefndir
fyrir öll sveitarfélögin. Sam-
starf er um almannavarnir
milli Bessastaðahrepps, Kjós-
arhrepps og Mosfellshrepps
hins vegar. Kópavogur,
Reykjavík og Seltjarnarnes
starfrækja hver sína almanna-
varnanefnd. Hafa allar þessar
almannavarnanefndir gengið
frá neyðaráætlunum til við-
bragða gegn vá miðað við
ríkjandi aðstæður, að und-
antekinni almannavarna-
nefnd Seltjarnarness.
Almannavarnir höfuðborgar-
svæðisins hafa mikla sérstöðu
vegna fólksfjölda og stærðar,
gagnvart öðrum byggðum
sem liggja utan sama áhættu-
svæðis og það. Verða al-
mannavarnir svæðisins að
miða sínar varnir við eigin
getu þar sem mjög takmark-
aða aðstoð er að fá utanfrá
auk þess sem flótta- og brott-
flutningsmöguleikar höfuð-
borgarbúa eru verulega
skertir vegna lítillar móttöku-
getu annarra byggða og nauð-
syn á mikilli dreifingu flótta-
fólks af þeim sökum. Krefst
þessi staða mun markvissari
heildarskipulagningar og þró-
un almannavarna á höfuð-
borgarsvæðinu, en í nokkurri
annarri byggð landsins.
Mun ég nú víkja nánar að
einstökum þáttum í æskilegri
framtíðarþróun almanna-
varna á höfuðborgarsvæðinu.
Stjórn almannavarna
Samkvæmt lögum um al-
mannavarnir fara lögreglu-
stjórar með stjórn almanna-
varna hver í sínu umdæmi.
Veldur skipting höfuðborgar-
svæðisins í fimm lögreglu-
umdæmi því að alvarlegar
stjórn- og skipulagsveilur
geta orðið í almannavörnum
svæðisins. Höfuðborgar-
svæðið er það nátengd varn-
arheild, að samræmd heildar-
stjórn almannavarna á svæð-
inu við vá er mjög brýn. Mið-
að við núverandi stjórnarfyr-
irkomulag almannavarna
geta ákvarðanir um neyðar-
aðgerðir í einu lögregluum-
dæmi svæðisins rýrt eða haft
mótverkandi áhrif á varnar-
aðgerðir í öðru.
Hjálparlið
Reglugerð um skipan, þjálf-
un og búnað hjálparliðs al-
mannavarna gerir ráð fyrir að
almannavarnir Hafnarfjarð-
arsvæðis hafi á að skipa 100
hjálparliðum hið minnsta,
Kópavogur 100, Mosfellssveit
60, Reykjavík 800 og Sel-