Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.12.1987, Síða 9

Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.12.1987, Síða 9
§<ipLiagsmál 7 VEGIR OG UMFERÐ Á HÖFUÐBORGAR- SVÆÐINU Erindi Matthíasar Á. Mathiesen, samgöngu- ráóherra á aðalfundi Samtaka sveitarfélaga á höfuöborgarsvœöinu laugard. 14. 11. 1987. Allar tölulegar upplysingar eru fengnar hjá Vegagerð ríkisins. I. Byggð og fólk Fram um miðja þessa öld voru einungis tvö þéttbylissvæði á höfuðborgarsvæðinu, Reykjavík og Hafnarfjörður. Samfara mjög örri fólksfjölgun stækkuðu þessi þéttbyli, en jafnframt tóku ny að myndast, fyrst í Kópavogi, Garðabæ og á Seltjamamesi, en síðar í Mosfellsbæ, á Álftanesi og Kjalarnesi. Líta verður á þetta svæði sem eina heild, þar sem atvinnustarfsemi og þjónusta af ymsu tagi er dreifð um byggð- imar. Svæðið er stórt miðað við mannfjölda og þarfnast greiðra samgangna. Þessi þróun hefur haldið áfram til þessa dags. Á þessu svæði búa nú um 134 þúsund manns og hefur íbúum fjölgað um því sem næst 30% á síðustu 15 árum, en árið 1970 vom íbúar höfuðborgarsvæðisins um 108 þúsund. A sama tíma hefur bílaeign landsmanna aukist verulega umfram fólksfjölgun og á það ekki síst við um höfuð- borgarsvæðið, þar sem bílum hefur fjölgað um 300% á síðustu 15 ámm - þeir voru rúmlega 24 þúsund árið 1970, en rúmlega 64 þúsund árið 1986. Bílaeign er gjaman mæld á þann kvarða hve margir fólksbílar koma á hverja þúsund íbúa. Þannig vom 222 bílar á hverja þúsund íbúa árið 1970; þeir vom 330 árið 1975, 394 árið 1980 og árið 1986 vom 479 bflar á hverja þúsund íbúa höfuðborgarsvæðisins. Aukin bflaeign endurspeglar vax- andi hreyfanleika fólks. Aukin atvinnuþátttaka kvenna, atvinnu- og skólasókn um lengri vega- lengdir, aukin eftirspurn eftir menningarlegum og félagslegum samskiptum og vaxandi útivist em allt atriði sem em vel þekkt og setja mark sitt á lífshætti nútímans. Þá má minna á hlutverk höfuð- borgarsvæðisins sem miðstöðvar landsins alls í flestum greinum. Það hefur í för með sér að lands- menn sækja þangað margháttaða þjónustu. Mikill hluti þeirra kemur á bfl og dvelur á höfuð- borgarsvæðinu um skemmri eða lengri tíma og á þar með sinn þátt í umferðinni á svæðinu. II. Umferð og umferðar- öryggi Þótt framangreind þróun hafi vissulega valdið mikilli aukningu umferðar hefur sú þróun einkennst af nokkmm sveiflum og koma þar m.a. til áhrif bensínverðs. Tölur um þróun umferðar í Reykjaneskjördæmi árin 1975-85 syna þannig t.d. að vöxtur umferðar fyrri hluta tímabilsins var fremur hægur, en tók stökk eftir 1980. Akstur á þjóðvegum í kjördæminu árið 1975 var 69.9 milljónir kfló- metra, en var árið 1980 77.3 milljónir kflómetra, en þetta er 11% aukning. Árið 1986 var akstur í kjördæminu mældur 105.2 milljónir kflómetrar og er það 36% aukning frá árinu 1980. Ekki liggja fyrir aðgengilegar tölur um umferð innan þétt- býlissvæðanna, en gera má ráð fyrir að sú mynd sé hliðstæð. Er þess þó að vænta að um- ferðaraukning sé þar meiri en á þjóðvegunum. Hliðstæð aukning í umferð hefur orðið um allt land. Sérstaða höfuðborgarsvæðisins felst hins vegar í því hve umferðin er mikil. Um marga vegarkafla á þjóð- vegakerfi höfuðborgarsvæðisins fara þúsundir bíla á dag og allt upp í 30 þúsund bflar þar sem mest er. Enn meiri umferð er á þjóðvegum í þéttbýli. Á mörg- um köflum er umferð meiri en 10 þúsund bflar á dag og sá hæsti nær 50 þúsund bflum á dag. Ör

x

Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins
https://timarit.is/publication/1782

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.