Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.12.1987, Qupperneq 32

Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.12.1987, Qupperneq 32
30 sftpJagsmál verðlagi í september 1987. Skipting kostnaðar milli sveitar- félaga hefur verið þannig að lengd nyrrar girðingar innan viðkomandi sveitarfélags var látin ráða hálfri hlutdeild en fbúafjöldi látinn ráða hinum helmingnum. Fjárheld girðing um höfuð- borgarsvæðið hefur ymsa kosti í för með sér. í fyrsta lagi er svæðið innan girðingar nú verndað fyrir ágangi búfjár og er þar með skapaður grundvöllur fyrir aukna ræktun og gróður- vernd innan girðingarinnar. í öðru lagi er nú hægt að setja sam- ræmdar reglur um lausagöngu búfjár innan þessa svæðis. A vegum SSH hafa verið gerð drög að samþykkt um lausa- göngu búfjár innan girðingar. Nokkur aðildarsveitarfélaganna hafa þegar staðfest slíkar sam- þykktir en munu öll ljúka því á komandi vetri. í þriðja lagi má nú fjarlægja tugi kílómetra, ef ekki hundruð, af gömlum girð- ingum, sem eru innan þessarar girðingar. Föstudaginn 6. nóvember sl. var haldin dálítil samkoma við eitt hlið girðingarinnar ofan Lækjar- botna. Eftir stutta kynningu for- manns nefndarinnar "lokaði" formaður SSH, Magnús Sig- steinsson, girðingunni á tákn- rænan hátt með því að loka gönguhliði á girðingunni. Þótt girðingin sé þannig orðin endanlega lokuð, er fram- kvæmdinni ekki að fullu lokið. Eftir er að setja upp og ganga frá nokkrum hliðum, prílum og merkingum. Einnig er eftir að girða að nyju nokkra kílómetra við Kaldársel og Búrfell og verður þá m.a. Búrfell og Búrfellsgjá innan girðingarinnar. Tengist nýja girðingin þar í efra horn Heiðmerkurgirðingarinnar og bætist þar stórt svæði, aðal- lega í Garðabæ, við friðunar- svæðið. Áhrifa þessarar framkvæmdar er þegar farin að gæta og standa vonir til að góður friður verði um þetta mál fljótlega. Flestir þeir, sem nefndin hefur heyrt frá, eru ánægðir með þessa breytingu og á það bæði við eigendur búsmala og þá sem hugsa gott til aukinnar ræktunar.

x

Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins
https://timarit.is/publication/1782

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.