Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.12.1987, Síða 33
stöpjagsmál
NORÐAUSTURLEIÐIN
Þann 8. október gengust stjórn
Samtaka sveitarfélaga á höfuð-
borgarsvæðinu og atvinnumála-
nefnd höfuðborgarsvæðisins fyrir
málþingi um siglingaleið milli
Norður-Atlantshafs og Austur-
landa fjær um Norður-Ishafið.
Málþingið fór fram á ensku enda
fluttu erindi gestir frá Banda-
ríkjunum, Sovétríkjunum og
Bretlandi. Var málið skoðað frá
ymsum hliðum, tæknilega, hag-
rænt og stjórnmálalega. Niður-
staða málþingsins var í stuttu
máli að fyllsta ástæða væri að
fylgja þessu eftir með alþjóðlegri
ráðstefnu að ári um siglingar á
Norður-íshafinu og að íslend-
ingar ættu þar verulegra hags-
muna að gæta.
Formaður atvinnumálanefndar
höfuðborgarsvæðisins.Jóna Gróa
Sigurðardóttir, setti málþingið
með ávarpi en aðrir fyrirlesarar
voru Gestur Ólafsson, Þór
Jakobsson, Haraldur Ólafsson,
Vilhjálmur Lúðvíksson, Thomas
W. Möller, Gísli Viggósson,
Einar Hermannsson, Vladimir
Maslov, Gulnur Aybet, Frederic
Seibold og Eyjólfur Konráð
Jónsson. Umræðum, sem á eftir
fóru, stjórnaði Gunnlaugur Sig-
mundsson og Róbert Trausti
Ámason frá Utanríkisráðuneytinu
tók saman yfirlit um það sem
fram kom á málþinginu.
Erindi þau sem flutt voru á
málþinginu hafa verið gefin út og
fást á skrifstofu SSH í
Hamraborg 7 á kr. 1.000,- hvert
eintak.
The Arctic Sea Route
W
The Association of Municipalities
in the Capital Area
31