Arkitektúr og skipulag - 01.12.1991, Side 13
umhverfi sínu í heild. Aðeins á þann máta getum við á sem
bestan hátt skilið hvers konar áhrif athafnir og gerðir mannsins
hafa á umhverfið.
I dag gaetir aukins skilnings á því hversu mikilvægt vort
daglega umhverfi er fyrir almenna vellíðan, þroska og lífsgleði.
Menn eru smám saman að gera sér grein fyrir hversu mikilvægt
það er fyrir okkur að hið manngerða umhverfi taki tillit til
mismunandi þarfa einstaklingsins ásamt því að það komi til
móts við hinar mismunandi stofnanir samfélagsins.
Hér á eftir vil ég skoða aðallega hverskonar áhrif hið manngerða
umhverfi hefur á líðan mannsins, m.a. á heimilinu, ískólanum
og öðrum vinnustöðum.
heimilið
Heimilið sem stofnun jafngömul og raun ber vitni, varð ekki
til fyrir einhverja tilviljun, heldur er þetta hreiðurgerð
mannsins, til að sjá um og ala önn fyrir ungunum þar til þeir
verða fleygir.
Heimilið hefur breyst mikið í gegnum árin og aukin velferð
hefur haft mikil áhrif þar á og þá alveg sérstaklega hér á landi
vegna þéttbýlismyndunar. Yfir 90% íbúa íslands búa nú í
borgum í manngerðu umhverfi sem við höfum sjálf skipulagt.
En hefur okkur tekist að skapa umhverfi, sem tekur tillit til
hinna mismunandi þarfa einstaklinganna og bætir lífsskilyrðin ?
Höfum við staðið nægilega á verði og gert okkur grein fyrir að
þegar ákvarðanir eru teknar um manngert umhverfi, svo sem
vegarlagningu og skipulag nýrra íbúðasvæða, þá er ekki svo
auðveldlega um breytingar að ræða á næstum áratugum. Er
það t.d. nauðsynlegt hér, þar sem landrými er nægilegt, að
hafa svo þétta byggð, að segja má að háhýsi eða svokallað
blokkarhúsnæði sé einna helsta úrræði sem smábarna-
fjölskyldan á völ á.?
Hversu mikla áhættu taka ekki foreldrar er þeir hleypa
börnunum út fyrir dymar þar sem umferðin er geigvænleg og
slysahættan mikil, svo ekki sé talað um mengunarskaðvaldinn ?
Hvemig lítur umhverfi bamanna út, hvaða tækifæri bjóðast
þeim til skapandi athafna? í hinni þéttu byggð eru það alltaf
einhverjir sem ekki taka tillit til krafna náungans hvað þetta
snertir. Á hinn bóginn má vera ljóst, að með aukinni velferð
og nýrri tækni hafa heimilin gjörbreyst og þau eru bæði
vistleg og glæsileg og víða er ekkert til sparað, hvað varðar
nýtítsku tæki og búnað. Samt sem áður er oftog tíðum skortur
á rými fyrir frjálsan leik barna og aðra athafnasemi. Barnaher'
bergin eru lítil í samanburði við hinar stóm og glæstu dag-
stofur.
SKÓLINN
Fallegt og notalegt umhverfi hefur mikil áhrif á hegðun barna,
áhuga þeirra og námsvilj a. N ámsumhverfi þarf að örva notkun
allra skilningarvita, vekja forvitni og stuðla að ánægju og
gleði. Skólinn þarf að stuðla að bættri vellíðan bama á öllum
sviðum.
I skólann koma böm með mismunandi þarfir og þess vegna
þurfa viðfangsefnin að vera mismunandi. Börnunum þurfa að
standa til boða raunhæf verkefni og kennslan þarf að taka mið
af þroska, reynslu og umhverfi bama. Nemendur þurfa að eiga
þess kost að rannsaka og skilgreina næsta umhverfi sitt, svo
að þeir skynj i og fái tilfinningu fyrir því umhverfi sem þeir eru
í tengslum við. Á þann hátt munu þeir einnig læra að
umgangast umhverfið með virðingu og ánægju. Hefur skólinn
möguleika á að uppfylla hina margþættu starfsemi sem honum
er ætlað að gera í dag?
Enda þótt reistar hafi verið stórglæsilegar skólabyggingar og
oft og tíðum án þess að spara, þá er spumingin samt, hvort
menn hafi skipulagt nægilega vel. Er það t.d. nauðsynlegt nú
í dag þegar upplýsingatæknin er gengin í garð, að allar
skólastofurséujafnstórarfyriru.þ..b. 25 nemendur?Ættu ekki
arkitektar og hönnuðir skólabygginga að vinna með skólafólki
og þeim sem starfa í skólunum, því að það þarf vissulega að
reikna með mörgum hlutum strax á teikniborðinu ? Hvað með
leiksvæði og leikrými skólanna? Mörg böm dvelja þar drjúgar
stundir og þar skapast önnur samskipti en þau sem eru í
kennslustofunni, en þau eru engu síður mikilvæg fyrir börn og
unglinga. Leiksvæði skóla þurfa því að vera vel skipulögð og
Nemendur þurfa að eiga kost á
að rannsaka og skilgreina næsta
umhverfi sitt.
11