Arkitektúr og skipulag - 01.12.1991, Side 17
Arkitektúr
umferðarmannvirkis.
langt á veg komnar. Þá reynslu og þekkingu sem þar hafa
komið fram ættum við að geta nýtt okkur. Þá átti
Arkitektafélagiðaðild að tveimur verkefnum sem sneru að
arkitektúr í grunnskólum. Annað var samkeppni sem fór fram
ítilefni 50 ára afmælis félagsins 1989 fyriró.bekkjadeildir um
nærumhverfi skólanna. Hitt verkefnið er áðumefht tilrauna-
verkefm um manngert umhverfi í Selásskóla. Af báðum þess-
um verkefnum höfum við öðlast reynslu að byggja á. Þar sem
arkitektúr hefur ekki verið fag í grunnskólanum fyrr, má gera
ráð fyrir að það séu fáir kennarar, sem í krafti menntunar
sinnar hafi sérþekkingu á efninu. f þeim erlendu kennslu-
verkefnum, sem við þekkjum til, hefur þótt nauðsynlegt að
nýtasérarkitekt (hönnuð, landslagsarkitekt, skipulagsarkitekt)
" 1 i
1 Kennsiuna. Kennarinn undirbýr efnið, sem hentar hans
hekkjardeild, í samvinnu við þann arkitekt sem verður gesta-
fyrirlesari. Þar koma saman uppeldisleg og kennslufræðileg
þekking kennarans og fagleg þekking arkitektsins. Arkitektúr
er hægt að fella að öðrum námsgreinum í skólunum annaðhvort
sem sjálfstæða einingu eða sem hluta af tengdum fögum, t.d.
myndmennt, íslensku og samfélagsfræði. Samfélagsfræðin
mun sennilega, (flestum tilfellum, vera góður vettvangur, því
það er hægt að reikna með að efnið nýtist aftur í kennslunni,
eftir að eiginlegri innlögn er lokið.
ALÞJÓÐLEG RÁÐSTEFNA
Næsta vor verður haldin alþjóðleg ráðstefna sem ber nafnið
„Intemational Conference for Built Environment Education
in Schools (5-18).“ Að baki ráðstefnunni stendur „The
Building Experiences Trust”, í samvinnu við alþjóðlega
arkitektafélagið IUA, arkitektafélögin í Danmörku,
Sovétríkjunum, Bretlandi og Philadelphia. Ráðstefnan er
fjárhagslega styrkt af Evrópuráðinu ásamt nokkrum
fyrirtækjum í byggingariðnaðinum. Til þátttöku er boðið
arkitektum, kennurum og ráðgjöfum í mannvirkjagerð til að
skiptast á skoðunum, hugmyndum og upplýsingum um leiðir
til að efla alþjóðlega hreyfingu í menntun um byggt umhverfi.
OG HVAÐ SVO?
Það er mikilvægt að við tökum þátt í
þessari hreyfingu um að auka þekk-
ingu á gildi byggingarlistar og um-
hverfis. Ég tel að arkitektar eigi að
hafa frumkvæðið að slíkri kennslu,
sökum þekkingar sinnar og þeirrar
ábyrgðar sem þeir hafa í mótun
byggðar. V ið eigum að leita upplýsinga
hjá þeim sem þegar hafa reynt fyrir
sér í þessum efnum og taka upp
samvinnu við skólayfirvöld um
framkvæmd þessa máls. Markmiðið
er að upp vaxi nemendur, sem koma
til starfa út í samfélagi, meðvitaðri
um umhverfi sitt, manngert sem
náttúrulegt, meira en nokkru sinni
fyrr ■
15