Arkitektúr og skipulag - 01.12.1991, Síða 44
Ástandiö á götum Reykjavíkur var ekki mjög skipulegt fyrir u þ.b. 40 árum þegar þessi mynd var
tekin. Myndin er frá gatnamótum Tryggvagötu og Grófarinnar; heldur hefur ástandið lagast á
þessum fjórum áratugum en á sama tíma hefur bílafjöldinn margfaldast.
má að slysatíðni í umferðinni í nýjum hverfum sé ekki nema
um helmingur af því sem er í gömlum hverfum og er þá miðað
við umferðarmagn. Ef svo er ekki hefur mistekist með
gatnaskipulagið.
Annað, sem fólk telur augljóslega til beinna áhrifa á umhverfið
af völdum umferðarinnar, er hávaðinn. Samkvæmt erlendum
rannsóknum kvarta íbúar í borgum verulega undan háyaða í
umferðinni. Sænsk rannsókn sýndi að u.þ.bl0% urðu fyrir
verulegum óþægindum vegna hávaða frá umferð og 25% urðu
fyrir nokkrum óþægindum. Áhrifin af þessum óþægindum á
fólk eru svo með ýmsu móti, þunglyndi, svefnleysi o.s.frv., en
það heyrir undir geðlæknisfræði og verður ekki nánar út í þá
sálma farið. Hávaðinn veldur því aftur á móti að íbúðarhús
við miklar umferðargötur falla í verði og afleiðingin af því er
sú að fasteignimar drabbast niður. Hverfisgata og að nokkru
leyti Miklabraut í Reykjavík eru dæmi um þetta.
Loftmengun er það þriðja, sem fólk telur almennt fylgja
bílaumferð. Það eru ekki ýkjamörg ár síðan farið var að gefa
þessum þætti umferðarinnar gaum. Fram að því litu menn svo
á að verksmiðju- og kolareykur vegna húshitunar væru
langtum stærri þáttur í loftmenguninni en nokkum tíma
ökutækin. Meira að segja þótti mikil bót að vélknúnum
ökutækjum í stað hesta og hestvagna þar sem hrossataðið
hvarf af götunum. Á frægri mynd af borgarstjóranum í
Reykjavík, Knud Zimsen, þar sem hann er að stjóma umferð
á gatnamótum Austurstrætis og Pósthússtrætis er
hrossataðshraukur á miðri mynd í forgrunni.
Mörg eru þau efni, sem frá bílvélum koma, og sum þeirra
stórhættulegheilsumanna. Kolmónoxíð (CO) eroftastnotað
sem viðmiðun um loftmengun frá bílvélum og m.a. mæling sú,
sem Bifreiðaskoðun Islands gerir á útblæstri, er hundraðs-
hluti CO. Þeir sem hafa farið með bíl í skoðun þar hafa e.t.v.
tekið eftir því. Það eru þó fleiri efni sem koma frá bílvélum og
má til dæmis nefna nituroxíð svo og ýmis kolefnissambönd,
sem hafa orðið til við ófullkominn bruna í bílvélinni. Þegar
nituroxíð og kolefnissamböndin koma saman við sérstök
veðurskilyrði verður til mjög áberandi og óþægileg mengun,
sem þekktust er í Los Angeles en einnig í öðrum stórborgum
þar sem bílaumferð er mikil. Hér á landi, þ.e. í Reykjavík,
getur þetta gerst á köldum og kyrrum vetrardögum og má búast
við slíku ástandi einu sinni til tvisvar á ári. Skiptir þá litlu
hvort um er að ræða niðri í dölum eða uppi á hálsum því
hitahvörfin eru yfirleitt í meira en 100 metra hæð yfir sjó.
Venjulega er vindur í Reykjavík nægur til þess að loftmeng-
unin sé langt undir leyfilegum eða æskilegum efri mörkum,
a.m.k. er lognið yfirleitt það skammvinnt að mengunin nær
ekki að safnast upp yfir óleyfileg mörk.
Þá eru einnig í útblæstri bíla nokkur aukaefni sem hættuleg
teljast, ýmiss konar bensen-sambönd eru þar í en einnig
þungmálmar og er blý helst þeirra. Þess vegna hefur á síðustu
árum verið boðið upp á blýlaust bensín fyrir vélar, sem til þess
eru gerðar. Gallinn er aftur á móti sá að bensen og annað, sem
talið er geta valdið krabbameini, er sett í bensínið í staðinn og
getur jafnvel orðið til meiri vandræða en blýið ef ekki fylgir
sérstakur hreinsibúnaður. Slíkur búnaður verður gerður að
skyldu í nýjum bílum á næstunni, en meðan bílar aka enn án
42
J